Morgunblaðið - 15.09.2000, Side 75

Morgunblaðið - 15.09.2000, Side 75
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. SEPTEMBER 2000 75 FÓLK í FRÉTTUM ÞÚ ERT SJÁLF- UR HÖRÐUR Hausttónleikar Harðar Torfasonar, söngvaskáldsins hugum- prúða, hafa verið fastur liður í menningarlífi landans í hvorki meira né minna en 24 ár. Arnar Eggert Thoroddsen ræddi við Hörð um lífíð og listina yfir hressandi morguntei. Morgunblaðið/Kristinn Listaskáldið góða, Hörður Torfason, bíður kvöldsins með spekt. HAUSTIÐ hefur jafnan verið tímibreytinga og umróts, í veðurfari sem í lífsskipu- lagi manna; ný störf og nýjir skól- ar - nýtt líf með nýjum loforðum. Fastir punktar eru fáir og ógreini- legir, fyrir utan kannski áður- nefnda tónleika sem verða að telj- ast með rótgrónari tónlistar- viðburðum hérlendis. Segja má með sanni að Hörður sé listamaður langt fram í fingurgóma, listina ástundar hann hennar vegna og hennar einnar og hefur aldrei á ferli sínum, sem spannar nú rúma þrjá áratugi, gefið þumlung eftir af þeirri sannfæringu. Hörður er sannkallaður þúsundþjalasmiður í þeirri viðleitni sinni: leikari, leikstjóri, ljóðskáld og tónlistar- maður og á að bak ium 100 leiksýningar og tæpan tug hljóm- platna. Og tuttugu og þrjá haust- tónleika sem enn bættist við nú á föstudagskvöldið, nánar tiltekið í Islensku Óperunni. AIls konar hausttónleikar „Já, þessir hausttónleikar hafa sífellt verið að hlaða utan á sig,“ segir Hörður. „Upphaflega byrj- uðu þetta sem tónleikar fyrir kannski tvær, þrjár manneskjur. Ég man t.d. einu sinni eftir því þegar ég var í Kaupmannahöfn að þá lét ég nægja að halda tónleika í afmælisveislu hjá Einari Má rit- höfundi. Ég hef alltaf lagt sérstaka vinnu í þessa tónleika, stundum hef ég t.d. tekið eitthvað ákveðið skáld fyrir á tónleikum, ég man nöfn eins og Steinn Steinarr, Hall- dór Laxness og Tómas Guðmunds- son. Það er því alltaf eitthvað þema í hverjum tónleikum og eins verður með þessa en ég læt ekkert uppi með hvað það er. Mér finnst skemmtilegra að koma fólki á óvart.“ Skáldagyðjan er kröfuhörð Hörður er heltekin af skálda- gyðjunni og er alltaf að. „Ætli ég hafi ekki samið um svona 30 - 40 texta núna í sumar. Af þeim nota ég kannski 5-6. Sumir fara svo í kistu og bíða þar þangað til að allt í einu! (smellir fingrum ákveðinn) ...maður sér eitthvað nýtilegt í honum.“ Fyrsta plata Harðar kom út árið 1971 hjá SG hljómplötuútgáfunni. Þar söng hann ljóð eftir valin- kunna höfunda við eigin lög. Það var ekki fyrr en nokkrum árum síðar að hann tók að læða eigin textum út. „Fyrr á tímum kom mér vart til hugar að fara að yrkja eitthvað sjálfur. Ég er alinn upp í það mikilli virðingu fyrir skáldun- um að fyrst um sinn lét ég mér nægja að túlka þá.“ Sá fyrsti Það er vel þekkt staðreynd að Hörður Torfason var fyrstur manna hérlendis til viðurkenna samkynhneigð sína. Það þætti kannski ekki fréttnæmt í dag en á þessum tímum varð uppi fótur og fit í íslensku samfélagi. „Það fór allt hérna á annan endann," segir Hörður ákveðinn í bragði. „Þú get- ur ímyndað þér blöðru fulla af hel- íum. Ég stakk gat á hana.“ Hörður segist hafa ferðast um landið m.a. með það að markmiði að vinna gegn fordómum í garð samkyn- hneigðra og það hafi alltaf verið stór hluti af hans starfi. „Ég er alltaf að segja sömu söguna. Aftur og aftur og aftur. Afhverju? Það er af því að það er alltaf að koma nýtt fólk. Og þegar ég er að tala um mig er ég í rauninni að tala um samfélagið. Af því að framkoma samfélagsins í minn garð endur- speglar skoðanir samfélagsins og með því að tala um þessa hluti, þannig tek ég á fordómunum. Launin felast svo í því að það hefur komið fyrir að fólk komi upp að mér eftir tónleika og segi: „Hörð- ur, þú ert búinn að gera mér grein fyrir því að ég er uppfullur af for- dómum“. Og ég get tekið hjartan-„-j lega undir með viðkomandi þar sem ég er að sjálfsögðu ekkert laus við fordóma frekar en hver annar. Málið er að vera meðvitaður um þá og láta þá ekki stjórna sér. I þessu felst mitt starf.“ Eins manns leikhús „Ég finn oft fyrir einsemd í þessum bransa", segir Hörður íhugull. „Ég er leikhúsmaður, ég er eins manns leikhús. Ég er ekki popptónlistarmaður. Ég hef aldrei farið þá leið. Popptónlistarmaður- * - inn er að sækjast eftir vinsældum. Það er stefnan í poppinu. Það er iðnaður. Þetta er ekki það sem ég er að gera,“ segir hann með áherslu. Hörður liggur ekki á skoðunum sínum um íslenskan tónlistarmark- að frekar en annað, vill meina að ekki standi steinn yfir steini í þeim málum og fer mikinn. „Markaður- inn er skandall hérna á Islandi. Það er eitt fyrirtæki sem á allt, all- an hringinn ef svo er að segja hvort sem varðar útgáfur, upptök- ur eða verslanir. Það teygir arma sína um allt eins og skrímsli sem vill kæfa allt sem það á ekki eða fær ekki. Mér finnst þetta grátlegt -f. því að þessir aðilar ættu að skilja að þeir hafa siðferðislega ábyrgð og ættu að rækta lifandi list í land- inu og vera meira hvetjandi. Sköp- un fylgir oftast sársauki, maður lif- ir af því að maður vill fást við lífið. Það getur oft verið sárt að vera til og það er fólk alltaf að reyna að forðast, tilhneiging mannsins er að stytta sér leið gegnum flest. Kaupa sig inn í þægindi þar sem það er ekkert sem að snertir það lengur, ekkert sem hrekkir það. Hinn lif- andi dauði sem svo margir sækja ■ í.“ Sterkari gátu lokaorðin vart verið frá þessum stolta manni sem stendur á sínu hvað sem það kost- ar.Hausttónleikar Harðar byrja stundvíslega kl. 21.00 í kvöld. MYNPBONP Frambæri- legt handrit Blóðpeningar (Blood Money) Spennumyml ★★ Leikstjóri: Aaron Lipstadt. Aðal- hlutverk: Alan Arkin og Brian Bloom. (92 mín.) Bandaríkin, 1999. Sam myndbönd. Bönnuð innan 16 ára. BLÓÐPENINGAR er epísk fjölskyldumynd, þar sem sögumaður hefur strax í upphafi dramatíska frá- sögn af kynnum sínum af Restrelh mafíufjölskyld- unni, þó einkum Tony, viðskipta- lærðum hluta- bréfasnillingi sem sleit sig lausan úr glæpastarfsemi fjölskyldunnar og flutti til New York. Við kynningu aðstæðna, sem m.a. lýsir því hvernig bróðir Tonys er myrtur, er hins vegar beitt einhverri þeirri útjöskuðustu töku-, klippinga- og tónlistartækni sem um getur. Það fer því ekki milli mála við upphaf þessarar kvikmyndar að eitthvað bogið er við hana, en það er fyrst og fremst leikstjórninni að kenna. Handritið er nefnilega bara nokkuð frambærilegt, en það er sómasamleg úrvinnsla á gömlu mafíugoðsögninni. Þannig að þótt kvikmyndin sé frekar illa gerð, nær efniviðurinn engu að síður að fanga athygli manns. Heiða Jóhannsdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.