Morgunblaðið - 30.09.2000, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913
224. TBL. 88. ÁRG.
LAUGARDAGUR 30. SEPTEMBER 2000 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Fjöldamótmæli og borgaraandóf í Júgóslavíu
Hart þrýst á um
endurtalningu
Belgrad. Reuters, AFP.
VOJISLAV Kostunica, leiðtogi
stjórnarandstöðunnar í Júgóslavíu,
kallaði í gær eftir því að atkvæði úr
forsetakosningunum sem fram fóru
um síðustu helgi yrðu endurtalin
undir alþjóðlegu eftirliti. Sagði hann
sig með þessu vera að gefa eftir í
deilunni við Slobodan Milosevic og
menn hans um það hver raunvemleg
úrslit kosninganna voru.
Talsmenn DOS halda því fram, að
Kostunica hafí fengið hreinan meiri-
hluta atkvæða í kosningunum sl.
sunnudag og hafa fordæmt ákvörðun
hinnar opinberu kjörstjómar, sem
að mestu er skipuð samherjum Mil-
osevic, að önnur umferð kosning-
anna skuli fara fram hinn 8. október.
Samkvæmt opinberum úrslitum
fékk Kostunica 48,2% atkvæða en
Milosevic rétt um 40%.
Mótmælafundir gærdagsins
mörkuðu upphafið að víðtækum and-
ófsaðgerðum, miðuðum að því að
þvinga Milosevic til að viðurkenna
ósigur og láta af völdum.
„Við munum halda mótmælafund-
um áfram um alla helgina og hvetj-
um til allsherjai'verkfalls á mánu-
daginn,“ sagði Zoran Djindjic, einn
leiðtoga stjórnarandstöðunnar. En
sumir borgarar hófu þegar í gær
andófsaðgerðir. Vörubílstjórar lok-
uðu þjóðvegum í miðri Serbíu, í bæj-
um og borgum þar sem stjórnar-
andstaðan hefur mest ítök hindruðu
leigubílstjórar umferð, kennsla lagð-
ist niður í sumum skólum og starf-
semi ófárra fyrirtækja stöðvaðist er
verkamenn lögðu niður vinnu. Einn-
ig kom til lokana kvikmynda- og leik-
húsa í Belgrad og víðar.
Grísk málamiðlun rædd
Tilraunir erlendra ríkja til að
stuðla að friðsamlegri lausn á málinu
halda áfram. Frakkar, sem fara fyrir
Evrópusambandinu þetta misserið,
Rússar og Grikkir - hefðbundnar
vinaþjóðir Serba - könnuðu í gær
gríska áætlun sem m.a. gerir ráð fyr-
ir að Kostunica verði talinn á að taka
þátt í annarri umferð forsetakosning-
anna. Grikkir buðust líka til að senda
eftirlitsmenn til að fylgjast með end-
urtalningu atkvæða. Öryggis- og
samvinnustofnun Evrópu, ÓSE, hef-
ur einnig krafizt þess að fá að senda
menn á sínum vegum til að sannreyna
úrslitin. Stjómvöld í Belgrad höfðu
bannað fulltrúum ÖSE að koma
nærri framkvæmd kosninganna.
Hubert Vedrine, utanríkisráðherra
Frakklands, bar í gær til baka fregnir
þess efnis, að ráðamenn í Kreml væru
að leggja á ráðin um að Milosevic
fengi pólitískt hæli í Rússlandi. Sagði
hann fulltrúa Rússlandsstjómar hafa
fullvissað sig um að ekkert væri hæft
í slíkum sögusögnum en Vedrine lauk
í gær tveggja daga vinnuheimsókn til
Moskvu.
AP
Námsmenn í Nis, næststærstu borg Serbíu, á mótmælafundi gegn
meintum kosningasvikum Slobodans Milosevic og samheija hans í gær.
Á-borðanum stendur slagorðið: „Hann er búinn að vera.“
Gengi evru og
Kaupmannahöfn. Morgnnblaðið.
STAÐA dönsku krónunnar styrktist
lítillega í gær þrátt fyrir að meirihluti
dönsku þjóðarinnar hefði á fimmtu-
dag greitt atkvæði gegn aðild að
Efnahags- og myntbandalagi Evrópu
(EMU).
Danski seðlabankinn hækkaði í
gær inn- og útlánsvexti um 0,5%, í
5,6% sem er minna en búist hafði ver-
ið við, að sögn Jorgen Birger Christ-
ensens, aðalhagfræðings Danske
Bank. Mogens Lykketoft fjármálar-
áðherra ítrekaði í gær að ríkisstjóm-
in myndi gera allt til að veija krón-
una, „við ætlum ekki að refsa dönsku
þjóðinni fyrir að greiða atkvæði gegn
[evrunni]," sagði hann.
Gengi evrunnar, rétt eins og krón-
unnar, var stöðugt í gær og segir
Christensen ástæðuna að markaður-
inn hafi verið viðbúinn því að Danir
myndu hafna aðild. „Ragnarök brjót-
ast ekki út 29.
september,"
sagði Ole Stavad,
ráðherra skatta-
mála, en svigrúm
í efnahagsmálum
væri nú minna.
Ekki kom til
óláta í Kaup-
mannahöfn í
kjölfar þjóðar- Poul Nyrup
atkvæðagreiðsl- Rasmussen
unnar eins og
óttast hafði verið og danskir stjóm-
málamenn höfðu einnig hægt um sig
enda löng og erfið kosningabarátta að
baki. Marianne Jelved viðskiptaráð-
herra kvaðst í gær hafa upplifað
versta dag póhtísks lífs síns er hún
fundaði með starfsbræðmm sínum
hjá Evrópusambandinu.
Andstæðingar aðildar að Evrópu-
Telja að
menn geti
lifað lengur
en í 120 ár
London. The Daily Telegraph.
HÁMARKSÆVISKEIÐ
manna hefur lengst í rúma öld í
iðnríkjunum og ekkert bendir
til þess að sú þróun stöðvist,
samkvæmt rannsókn banda-
rískra og sænskra lýðfræðinga
sem telja að ekkert sé hæft í
kenningum vísindamanna um
að fólk geti ekki lifað lengur en
í um 120 ár.
„Hámarksæviskeið manna er
að breytast," sagði John Wilm-
oth, lýðfræðingur við Kalifom-
íu-háskóla. „Sjaldgæft er að
fólk lifi lengur en í 110 ár en
komandi kynslóðir gætu lifað
enn lengur en erfitt er að meta
hvort þetta geti haldið áfram
endalaust."
Bætt heilsugæsla
aðalástæðan
Rannsóknin byggðist á
sænskum gögnum um há-
marksævilengd Svía allt frá ár-
inu 1861. Wilmoth og sam-
starfsmenn hans frá Svíþjóð og
Bandaríkjunum segja að
sænsku gögnin séu mjög áreið-
anleg og góð vísbending um
þróunina í öðram iðnríkjum.
Niðurstaðan var birt í vis-
indatímaritinu Nature og þar
kemur fram að á sjöunda ára-
tug 19. aldar vom elstu Svíarn-
ir um það bil 101 árs. Hámarks-
ævin lengdist næstu áratugina
og var um 105 ár á sjöunda ára-
tugnum og 108 ár á síðasta ára-
tug.
Wilmoth segir þessa þróun
stafa af framfömm í læknavís-
indum og bættri heilsugæslu.
AP
Palestínskur múslimi fylgist með er ísraelskir óeirðalögreglumenn
skjóta gúmmíkúlum að óeirðaseggjum á Musterishæð í Jerúsalem f gær.
Harkaleg átök
í A-Jerúsalem
Jerúsalem. Reuters.
FJÓRIR Palestínumenn létu lífið á
götum Jerúsalemborgar í gær, er
óeirðaseggjum og ísraelskri lög-
reglu laust saman í grennd við helg-
ustu byggingar borgarinnar annan
daginn í röð. Auk þess var ísraelsk-
ur hermaður skotinn til bana á Vest-
urbakkanum.
Að minnsta kosti 200 Palestínu-
menn og ísraelar, auk fimm er-
lendra ferðamanna, slösuðust í
óeirðum gærdagsins sem era þær
verstu sem hafa orðið á svæðinu á
síðustu mánuðum. Hefur þessi of-
beldisbylgja þegar orðið til þess að
draga úr vonum um að sögulegt
samkomulag um lausn á 52 ára deilu
þjóðanna sé í sjónmáli.
Shmuel Ben-Ruby, talsmaður lög-
reglunnar í Jerúsalem, greindi frá
því að lögreglumenn hefðu gert
áhlaup á al-Aqsa-moskuna í elzta
hluta borgarinnar og skutu gúmmí-
húðuðum málmkúlum að hópum
ungra Palestínumanna sem höfðu
kastað grjóti að fólki sem var að
biðiast fyrir við Grátmúrinn.
Ospektimar upphófust í kjölfar
hefðbundinna föstudagsbæna músl-
ima. Vísaði lögreglan um 22.000
múslimum, sem höfðu sótt hádegis-
guðsþjónustu í moskunum á Must-
erishæð, á brott til að hún gæti tekið
óeirðaseggina höndum. Að sögn
lækna á næriiggjandi sjúkrahúsum
vora fjórir látnir og yfir 200 slasaðfr
meðal þeirra sem nutu aðhlynningar
vegna óeirðanna í gær. Sumir hinna
særðu höfðu orðið fyrir byssukúlum.
Yehuda Wilk, yfirmaður ísraelsku
lögreglunnar, neitaði því að vopn
lögreglunnar hefðu verið hlaðin
málmkúlum. Ben-Ruby sagði að
tugir lögreglumanna hefðu slasazt
vegna steinkasts óeirðaseggja. Þrír
hefðu hlotið alvarleg meiðsl vegna
þessa.
Saka hverjir aðra
um að eiga upptökin
Stjómmálaleiðtogar ísraels og
Palestínumanna sökuðu hverjir aðra
um að bera ábyrgð á því að óeirðirn-
ar brutust út.
Til átaka kom einnig á einöngrað-
um svæðum á Vesturbakkanum.
ísraelar lýstu yfir banni við ferðum
ísraelskra borgara til yfirráðasvæða
Palestínumanna á Vesturbakkanum
og Gaza.
Er búizt við því að spenna verði
áfram mikil í dag, laugardag. Heim-
astjórn Palestínumanna hefur lýst
yfir allsherjarverkfalli á yfírráða-
svæði sínu og þeir sem létu lífið í
gær verða bornir til grafar.
krónu stöðugt
sambandinu hafa
krafist viðræðna
við flokksleið-
toga og nýrra
áherslna í
Evrópu-umræð-
unni í Danmörku
og nær allir
flokksleiðtogar
eru sammála um
þörfina á því að
setjast niður og
ræða stöðuna ít-
arlega. Fylgismenn EMU-aðildar og
stjómmálasérfræðingar era þó
svartsýnir á að umræður um evrópu-
mál leiði til nokkurs.
Til marks um það er að Niels Hel-
veg Petersen utanríkisráðherra
ákvað í gær að fresta um óákveðinn
tíma öllum áformum um þjóðarat-
kvæði um varnarsamstarf ESB en
ráðherrann hafði vonast til þess að
það gæti orðið árið 2002.
Hogni Hoydal, varalögmaður fær-
eysku landstjómarinnar, kvaðst í
gær óttast að úrslit þjóðaratkvæðis-
ins hefðu slæm áhrif á viðræður Fær-
eyinga og Dana um sjálfstæði. Telur
Hoydal að Danir verði því andsnúnari
en fyrr að sleppa hendinni af Færeyj-
um, jafnvel þótt ótti þeirra við að tapa
fullveldisrétti til ESB ætti með réttu
að auka skilning þeirra á afstöðu
Færeyinga.
■ Danmörk ky rrstæð/26
MORGUNBLAÐID 30. SEPTEMBER 2000