Morgunblaðið - 30.09.2000, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Viðræður Byggðastofnunar og Sparisjóðs Bolungarvíkur
Fj ármálaráðuneytið
vill fylgjast með
Fjármálaráðuneytið hefur óskað eft-
ir því við viðskipta- og iðnaðarráðu-
neytið að fá að fylgjast með fram-
gangi viðræðna Byggðastofnunar
við Sparisjóð Bolungarvíkur um að
sjóðurinn sjái um fjármálaumsýslu
stofnunarinnar, en málefni Byggða-
stofnunar heyra undir viðskipta- og
iðnaðarráðuneytið.
Fram hefur komið hjá Kristni
Gunnarssyni, formanni stjórnar
Byggðastofnunar, að stofnunin hafi
ekki áhuga á að bjóða umsýsluna út
og í samtali við Morgunblaðið á
föstudaginn var vildi hann ekki upp-
lýsa um hve miklar upphæðir væri
að ræða í þessum efnum.
Samkvæmt reglugerð um innkaup
ríkisins frá árinu 1996 ber að bjóða
út öll vörukaup og aðkeypta þjón-
ustu ríkisfyrirtækja og -stofnana
sem eru umfram þrjár milljónir
króna og framkvæmdir sem eru um-
fram fimm milljónir króna.
Getur tekið upp mál
að eigin frumkvæði
Guðmundur Ólason, sérfræðingur
hjá fjármálaráðuneytinu, sagði að-
spurður í samtali við Morgunblaðið
að samkvæmt ákvæðum reglugerð-
arinnar bæri skilyrðislaust að bjóða
út þjónustu og framkvæmdir á veg-
um ríkisins sem væru umfram ofan-
greind mörk. Ef um brot á þessum
reglum væri að ræða gæti sam-
keppnisaðili sent kæru til ráðuneyt-
isins sem síðan leitaði álits kæru-
nefndar útboðsmála um það hvort
um brot væri að ræða eða ekki. Ef
um brot væri að ræða og búið væri
að gera samning gæti ráðuneytið
ekki rift þeim samningi, en þá gæti
komið til kasta dómstóla. Ef hins
vegar ekki væri búið að gera samn-
inga gæti ráðuneytið stöðvað frá-
gang þeirra.
Guðmundur bætti því við að ráðu-
neytið gæti einnig tekið upp mál
vegna útboðs að eigin frumkvæði,
enda væri það eftirlitsaðili á þessu
sviði. Ráðuneytið hefði engar efnis-
legar forsendur til að taka afstöðu
hvað þetta mál Byggðastofnunar
varðaði, en hefði óskað eftir því við
iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið að fá
að fylgjast með framgangi þess.
Dyttað að
skrúfunni
ÞEIR voru að dytta að skrúfunni
á bát einum í flotkvínni í Hafnar-
firði í gær þegar ljósmyndari
Morgunblaðsins var þar á ferð-
inni.
Sem nærri má geta safnast
reiðinnar býsn utan á skrúfur
skipa er þau sigla um heimsins
höf og það er oft heilmikið verk
að brjóta það sem aukreitis er af
þegar á þurrt land er komið.
Samfylk-
ingin stofn-
ar kjör-
dæmaráð
SAMFYLKINGIN stofnar
kjördæmisráð í Norðvestur-
kjördæmi á morgun, sunnudag,
og er það fyrsta kjördæmisráð
flokksins af sex sem stofnuð
verða skv. nýrri kjördæma-
skipun.
Að sögn Björgvins G. Sig-
urðssonar, framkvæmdastjóra
þingflokks Samfylkingarinnar,
verður næst stofnað kjördæm-
isráð fyrir Suðurkjördæmi á
stofnfundi á Selfossi 7. október.
Aðspurður hvaða áhrif
breytt kjördæmaskipan hafi á
skipulag Samfylkingarinnar
sagði Björgvin að áhrifin yi’ðu
mest á starfið í kjördæmunum
sjálfum, enda væri um mun
stærri kjördæmi að ræða og
langar vegalengdir innan kjör-
dæma.
Ahersla verður lögð á stofn-
un samfylkingarfélaga í öllum
stærri sveitarfélögum landsins
en starf þessara félaga samein-
ast svo í kjördæmaráðunum.
Björgvin sagðist ekki gera
ráð fyrir að nýja kjördæma-
skipanin breytti mjög miklu
fyrir störf almennra félags-
manna innan Samfylkingarinn-
ar sem störfuðu í samfylkingar-
félögum víðsvegar um landið en
breytingin yrði hins vegar
meiri fyrir þingmenn flokksins,
vegna stóraukinnar yfirreiðar
þeirra um víðfeðm kjördæmin.
Morgunblaðið/Rax
v_ 3 Vasar
:0
> CT3 I! f|jp?
ns
bí mWB
ro Ol <u
10 ftj
Mörkinni 3, sími 588 0640
Opið mán.-fös. frá kl. 12-18
í tilefni lárs afmælis Antik 2000
bjóðum við einstakt afmælisverð á
öllum vörum í dag frá kl. 12-18.
Borðstofuborð, stólar, skápar, bóka-
hillur og ýmislegt fleira á frábæru
afmælisverði... bara í dag!
Langholtsvegi 130 • Reykjavík
antik2000@simnet.is-0 5 3333 90
Doktorsvörn
við lækna-
deild HÍ í dag
DOKTORSVÖRN fer fram við
læknadeild Háskóla íslands í dag,
laugardaginn 30. september. Gunnar
Guðmundsson læknir ver doktorsrit-
gerð sína „Cytokines in Hypersens-
itiivity Pneumonitis" sem lækna-
deild hefur metið hæfa til
doktorsprófs. Ritgerðin fjalla um
heysótt, sem er sjúkdómur sem fyrst
var lýst í heiminum á Islandi árið
1790. Dauðar hitakærar bakteríur,
sem vaxið hafa í illa þurrkuðu heyi
og þyrlast upp þegar heyið er gefið
og berast ofan í lungu, valda sjúk-
dómnum. Andmælendur af hálfu
læknadeildar verða prófessor Helgi
Valdimarsson við Háskóla Islands
og Mark Schuyler, M.D. frá Uni-
versity of New Mexieo í Albuq-
uerque í Bandaríkjunum. Forseti
læknadeildar, Reynir Tómasson pró-
fessor, stjómar athöfninni.
Doktorsvörnin fer fram í Hátíðar-
sal Háskóla Islands og hefst klukkan
14. Öllum er heimill aðgangur.
Full búð af
nýium vörum
Opið 10 til 18
lau. 11-14
Smáskór
I bláu húsi við Fákalen - Sími 568 3919
hand
VERKS
MARKAÐUR
byrjar næsta laugardag
og verður síðan annan
hvern laugardag til jóla!
Vilt þúverameð?
Upplýsingar í síma 565-5666
FjÖRÐlR
■ miðbœ HafnarJjarðar
VINGIARNLEG VERSLUNARMIÐSTÖÐ
LAUGARDAGUR 30. SEPTEMBER 2000 9
Gili, Kjalarnesi
s. 566 8963/892 3041
Ný sending
Mikið afgóðum hlutum
Opið lau.-sun. kl. 15-18, þri.-fim. kl. 20.30-22.30
eða eftir nánara samkomulagi. Ólafur.
Visa- og Euro-
raðgreiðslu^^^^^
Nýtt — Nýtt
Gallabuxur síðar og kvart
Skyrtur, vesti — stórar stærðir
Ríta
TÍSKU VFRSLUN
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
s. 5S7 1730 s. 554 7030.
Opið mán.—fös. frá kl. 10—18,
lau. 10-15.
Snertilamparnir
komnir aftur
Verð 2.490 kr.
Sendum í póstkröfu
kays
Verslun Kays listans
Austurhrauni 3, Gbæ/Hfj.
v. Reykjanes/Breiðholtsbraut
ABM
B.MAGWUSSOW HF.
S. 555 2866
15%
afsláttur af öllum
drögtum
hj&QýGafhhiUi
Engjateigi 5, sími 581 2141.
Opið virka daga frá kl. 10.00—18.00, laugardaga frá kl. 10.00—15.00.
20% aukacsfsláttur
af útsöluvörum
Opið laugardaga frá kl. 10-16
NÝJAR VÖRUR
• Leðurjakkar
(rauðir & svartir)
• Leðurkápur
(þrjár síddir)
• Regnkápur
• Ullarkápur
• Qlpur
• Stuttkápur
• Alpahúfur (2 stærðir)
• Hattar
\ö<^Hl/ISIÐ
Mörkinni 6, sími 588 5518
Tvær síddir