Morgunblaðið - 30.09.2000, Page 12
12 LAUGARDAGUR 30. SEPTEMBER 2000
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Auðlindanefnd skilaði í gær skýrslu sinni til Davíðs Oddssonar forsætisráðherra
Áfangi í leit að sátt
um fískveiðistjórnun
Morgunblaðið/Golli
Skýrsla Auðlindanefndar var afhent forsætisráðherra í gær. Frá vinstri
eru Ari Edwald, Jóhannes Nordal, foiinaður nefndarinnar, Davíð Odds-
son forsætisráðherra og Svanfríður Jónasdóttir.
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra
kveðst telja skýrslu auðlindanefnd-
ar, sem afhent var formlega í gær,
merkilegan og mikilvægan áfanga í
leit manna að sátt í samfélaginu um
fiskveiðistjórnunarkerfið íslenska.
Sagði hann að með því að setja auð-
lindanefndina á laggirnar hefði rík-
isstjórn Sjálfstæðisflokks og Fram-
sóknarflokks í raun gefið upp
boltann með að hún myndi sætta sig
við niðurstöður sem fælu í sér tillög-
ur um auðlindagjald í sjávarútvegi.
„Eg tel að nefndin hafi með niður-
stöðu sinni, þó að hún sé kannski
ekki öll á þann veg sem ég hefði kos-
ið ef ég hefði skrifað skýrsluna sjálf-
ur, fært fram frambærilegasta efni
sem við höfum fengið til að moða úr
til þess að ná sátt um sjávarútvegs-
mál. Og ef það mat er rétt þá er hér
um stóratburð að ræða í íslenskri
samtímasögu," sagði Davíð þegar
hann tók við skýrslunni úr höndum
Jóhannesar Nordal, formanns auð-
lindanefndar, í Ráðherrabústaðn-
um.
Davíð kvaðst skilja skýrsluna svo
að þar væri í raun lýst yfir stuðningi
við meginþætti sjávarútvegsstefn-
unnar, þ.e. aflamarksleiðina. Hins
vegar væri þar einnig lagt til að
sjávarútvegurinn greiddi auðlinda-
gjald, atvinnuréttindi manna í
greininni yrðu styrkt og frjálsræði
og svigrúm aukið.
Davíð sagði að skýrslan yrði nú
kynnt í ríkisstjórn og síðan mætti
gera ráð fyrir að nefnd sjávarút-
vegsráðherra um sjávarútvegsmál,
sem nú er að störfum, fengi hana til
umfjöllunar. Kvaðst hann vænta
þess að eitthvað myndi spyrjast til
verka þeirrar nefndar á vormánuð-
um.
Deilum um grundvallaratriði
þarf að linna
Davíð var spurður að því hvort
hann teldi líklegt að stjómarflokk-
arnir gætu sameinast um niður-
stöðu þessarar skýrslu, í ijósi þess
að hún væri talsvert úr takti við
stefnu þeirra í sjávarútvegsmálum.
Sagði hann það vissulega rétt að
stjórnarflokkarnir hefðu fram að
þessu ekki verið þeirrar skoðunar
að nauðsynlegt væri að leggja á auð-
lindagjald í sjávarútvegi.
„Hins vegar hefur verið mjög
deilt um þetta í þjóðfélaginu," sagði
Davíð. „Um leið og ríkisstjórnar-
flokkarnir tóku þá ákvörðun að eiga
burðugan þátt í því að nefnd af
þessu tagi yrði sett á laggimar stig-
um við ákveðið skref í átt til þess að
sætta okkur við að einhver slík leið
yrði farin,“ bætti hann við. Það hefði
ríkisstjórnin hins vegar auðvitað
gert í þeirri trú að þess yrði gætt að
ganga ekki fram af þessum mikil-
væga atvinnuvegi þjóðarinnar.
„En auðvitað er óþolandi að til
lengri tíma ríki mikil ósátt um mik-
ilvægasta atvinnuveg þjóðarinnar
sem ristir þjóðina ekki bara í tvennt
heldur á alla kanta. Það getur ekki
gengið og þess vegna vildu menn
taka þátt í þessu og þess vegna
hljótum við að fylgja þessu eftir.“
Tók Davíð svo til orða að þó að
hann hefði ekki talið þörf á veiði-
leyfagjaldi væri hann tilbúinn til að
beygja sig undir það ok til þess að
ná öðrum markmiðum til þess að um
þennan atvinnuveg ríkti sátt. Óþol-
andi væri að miklar deilur stæðu um
grundvallaratriði greinarinnar.
Davíð lét þess jafnframt getið að
menn myndu kannski ekki fylgja
hverjum bókstaf skýrslunnar enda
hefði enginn skuldbundið sig til
þess, hvorki stjórn né stjóma-
randstaða. „En það væri til lítils að
setja svona vinnu af stað ef menn
ætluðu ekki að taka mark á henni.
Og ég fyrir mitt leyti tel að hér sé
komin tilraun til þess að skapa sátt
um þessi mál og ég held að við ætt-
um ekki að vannýta það tækifæri
sem hér hefur gefist."
Mikil samstaða í nefndinni
Jóhannes Nordal, sem gegndi
formennsku í auðlindanefnd, vildi
ekki taka undir að það hefði komið
honum á óvart að sátt skyldi hafa
náðst í nefndinni. „Ég held við höf-
um öll farið af stað með það í huga
að reyna að ná saman með þetta
mál,“ sagði hann. Mikil vinna væri
hins vegar eftir enn þá, enn biði það
verkefni að móta raunverulegar, út-
færðar tillögur um sjávarútvegs-
stefnuna og auðlindamálin almennt.
Bæði Styrmir Gunnarsson rit-
stjóri og Svanfríður Jónasdóttir,
þingmaður Samfylkingar, sem sæti
áttu í auðlindanefnd, lýstu ánægju
sinni með niðurstöðuna á fundinum
í gær. Sagðist Styrmir hafa trú á því
að hún myndi verða til þess að sátt
næðist um sjávarútvegsmálin.
Svanfríður sagði aðspurð um það,
hvað hún teldi skipta mestu í efni
skýrslunnar, að menn hlytu fyrst og
fremst að horfa til þess mikilvæga
áfanga, sem lægi fyrir í tillögum
nefndarinnar, að lagt er til að sett
verði í stjórnarskrá ákvæði um
þjóðarrétt, að sameiginlegar auð-
lindir þjóðarinnar verði þjóðareign
og að þessa þjóðareign megi hvorki
selja eða láta varanlega af hendi.
„Jafnframt kemur það fram að
einstaklingar og lögaðilar geta
tryggt sér aðgang að þjóðareigninni
gegn gjaldi og að sá aðgangur sé
annaðhvort tímabundinn eða honum
megi breyta með hæfilegum fyrir-
vara,“ sagði hún.
Kvaðst Svanfríður bjartsýn, eftir
þau orð sem forsætisráðherra hefði
látið falla um skýrsluna, á að þessar
tillögur ættu eftir að ná fram að
ganga.
Tóku ekki afstöðu til
upphæðar veiðileyfagjalds
Ari Edwald, framkvæmdastjóri
Samtaka atvinnulífsins, sem einnig
átti sæti í nefndinni, sagði aðspurð-
ur að sú afstaða hans, að ekki væri
nein þörf á veiðileyfagjaldi í sjávar-
útvegi, hefði legið fyi-ir. Hins vegar
ætti hann, eins og Guðjón Hjörleifs-
son, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum,
aðild að þessari niðurstöðu nefndar-
innar en hún væri innlegg í leit
manna að sátt um þessi mál. Báðir
gera þeir Ari og Guðjón fyrirvara
við hugmyndina um innheimtu á
gjaldi vegna nýtingar fiskistofna og
segjast aðeins geta stutt veiðigja-
ldsleið en ekki hina svokölluðu fyrn-
ingarleið.
Sagði Ari hins vegar að þessi fyr-
irvari væri ekki í andstöðu við nið-
urstöðu nefndarinnar heldur væri
það skoðun þeirra að meginhluti
gjaldtökunnar ætti að taka mið af
svokölluðu kostnaðargjaldi.
Ari lét þess enn fremur getið að
þegar upp er staðið væri það aðalat-
riðið hvort niðurstaða nefndarinnar
yrði grundvöllur að þeirri sátt með
þjóðinni sem menn vonuðust eftir.
Jóhannes Nordal var spurður um
það á fundinum í gær hvort nefnd-
armenn hefðu rætt um það hvert
veiðigjaldið ætti að verða ef ákveðið
verður að taka upp auðlindagjald.
Hann sagði að það hefði vissulega
komið til umræðu en niðurstaðan
hefði orðið sú að taka ekki afstöðu
til þess, önnur nefnd myndi sjá um
að koma með beinar tillögur í þeim
efnum.
Landssamband íslenskra útvegsmanna tilbúið í viðræður um greiðslu hóflegs auðlindagjalds
STJÓRN Landssambands íslenskra
útvegsmanna er reiðubúin til við-
ræðna við stjómvöld um greiðslu hóf-
legs auðlindagjalds enda megi það
verða til að ná víðtækri sátt um
stjómun fiskveiða. Hins vegar em
sett fram ýmis skilyrði fjTÍr slíku
gjaldi.
Friðrik Amgrímsson, fram-
kvæmdastjóri LÍU, ogstjómarmenn-
irair Brynjólfur Bjamason og Ehik-
ur Tómasson kynntu afstöðu LÍÚ til
skýrslu Auðlindanefndar á biaða-
mannafundi í gær. í máli Friðriks
kom fram að stjóm LÍÚ væri sam-
mála mörgu í skýrslunni en líka væri
ýmislegt sem hún væri ósammála.
I skýrslunni kemur fram að útgerð-
in greiðir um 750 milljónir króna á ári
í ýmis opinber gjöld eins og þróunar-
sjóðsgjald og veiðileýfisgjald. í því
sambandi nefnir Friðrik að þróunar-
sjóðsgjaldið sé tímabundið en svo
virðist sem hægt verði að fella það
niður 2003 þar sem þá verði búið að
greiða það sem því er ætlað að greiða
sem er nýja hafrannsóknaskipið Ami
Friðriksson. „Við horfum á þetta sem
yfirgöngutímabil og síðan tekur ann-
að við,“ segir Friðrik.
Hvort LÍU verði þá tilbúið að
greiða hóflegt auðlindagjald segir
Eiríkur svo vera „ef menn telja að það
geti orðið til sáttar." Hann segir að
þegar menn fari í viðræður setji allir
skilyrði. í því sambandi nefnir hann
að reksturinn hafi ekki gengið eins vel
vegna þess að stjórvöld hafi sett alls
konar skilyrði á útveginn. „Það er
spuming hvort þau skilyrði geti fallið
niður að einhveiju leyti.“
Jafnræðið mikilvægt
Brynjólfur segir að í skýrslunni sé
margt jákvætt varðandi umræðuna
sem verið hefur í þjóðfélaginu í mörg
ár. Hann segir að nefndin leggi mikla
áherslu á að það sé fijálst framsal á
kvóta en það hafi líka verið umdeilt og
Aðlögnnartími
er lykilatriði
Morgunblaðið/Asdís Asgeirsdóttir
Friðrik Arngrímsson, framkvæmdasijóri LIÚ, og stjórnarmennimir Eiríkur Tómasson og Brynjólfur Bjarna-
son kynntu afstöðu LÍU til skýrslu Auðlindanefndar.
svo sé um ýmis önnur atriði. „í öðru
lagi er mikilvægt að í skýrslunni er
fjallað um það að það eigi líka að
leggja á auðlindagjald á aðrar at-
vinnugreinar eða aðra starfsemi."
Með öðmm orðum fjalli nefndin um
vatnsorku, vindorku, rafsegulsvið,
jarðhita og svo framvegis á jafnréttis-
gmndvelli og því fagni LÍÚ. „Það var
það sem við óskuðum eftir að kæmi út
úr þessari nefnd enda heitir hún
auðlindanefnd." Hann segir líka já-
kvætt að tekið sé á því að eyða óviss-
unni sem útgerðin hefur setið í, sam-
anber lög til skamms tíma. „Okkur
finnst nefndin fjalla um það hér að
það þurfi að festa þetta í sessi, að
þetta sé til langs tíma. Meira að segja
kemur fram að ef á að breyta ein-
hverju í sambandi við gjald þurfi að
minnsta kosti fimm ár í aðlögun áður
en af því kemur. Þetta er lykilatriði.“
Óvissunni sé samt ekki lokið því
skýrslan fari í nefnd og ekki sé vitað
hvemig lögin verði. Hins vegar sé út-
gerðin í alþjóðlegri samkeppni og geri
samninga fram í tímann. „Með allt
þetta í huga segjum við að við séum
reiðubúnir að hefja viðræður við
stjómvöld um hóflegt auðlindagjald."
Skilgreindur kostnaður
Friðrik segir mikilvægt að auð-
lindagjald standi undir skilgi-eindum
kostnaði við eftirlit og rannsóknir á
auðlindinni. „Við teljum að svo sé
vegna þess að við teljum að það sé
miklu heilbrigðara og vænlegra fyrir
þjóðina að sá arður sem kann að
myndast í fyrirtækjunum verði þar
og vaxi þá og dafni frekar en að vera
sogaður út úr þeim til ríkisins.“
í máli þeirra kemur fram að verði
gjald greitt sé mikilvægt að það fari
til að standa undir kostnaði á gmnn-
rannsóknum, eins og t.d. kostnaði
vegna Hafrannsóknastofnunar, sem
nemur um milljarði á ári, og kostnaði
vegna veiðieftirlits hjá Fiskistofu,
sem er um 250 milijónir, en ekki að
hluti þess fari í sjóð sem síðan verði
endurúthlutað úr, eins og nefndin
leggi til. Gjaldið verði ekki notað tii að
mismuna innan gi'einarinnar, t.d. á
milli báta og togara, eða milli byggða-
laga með byggðakvóta.
Brynjólfur áréttar að LÍÚ hugsi til
framtíðar í málinu. „Ekki má gleyma
því að sjávarútvegurinn greiðir 30% í
tekjuskatt, eitthvað á annan milljarð
á þessu eða næsta ári og síðan 750
milijónir aukalega og svo framvegis.
Okkur finnst að í þessu máli eigi að
sjá hvað hægt er að gera í þessu en
við leggjum áherslu á kostnaðinn."
Hann segir ennfremur að ef fiskveiði-
stjómunarkeiflð sýni þann ábata og
hagræðingu sem tH hafi verið stofnað
hljóti fyrirtæki í sjávarútvegi að
hagnast meira. „Við aukinn hagnað
greiðir sjávarútvegurinn meiri
skatta."
í skýrslunni segir að svigním fyrii’-
tækja til að standa undir fjáifesting-
um, arðgreiðslum til hluthafa og
auknum álögum hafi verið lítið 1997
og 1998. „Það er ekki þessi ofurhagn-
aður eða þessi skattstofn sem svo
margii- vilja vera láta,“ segir Friðrik
og bætir við að ekki veiti af meiri fjár-
munum inn í fyrirtækin. „Þetta er
grundvallarafstaða hvort betra sé að
peningamir séu hjá einstaklingunum
°g fyrirtækjunum eða þeir fari til rík-
isins og þar emm við með augliósa af-
stöðu.“
Friðrik segir að verði farið að skil-
yrðum LIÚ náist sátt um málið og
Eiríkur leggur áherslu á að eins og
staðan í sjávarutveginum sé nú sé
engin leið að borga há auðlindagjöld.