Morgunblaðið - 30.09.2000, Qupperneq 24
24 LAUGARDAGUR 30. SEPTEMBER 2000
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
URVERINU
Ársfundur NAMMCO í Noregi
Madeleine Albright heimsækir ísland í dag
Unmð að sam-
eiginlegum
hvalatalningum
Á 10. FUNDI Norður-Atlantshafs- tengsla og frekari vísindasamvinnu
sjávarspendýraráðsins
(NAMMCO), sem var haldinn í
Sandefjord í Noregi dagana 26. til
28. september, var m.a. ákveðið að
vísindanefnd NAMMCO ynni
áfram að undirbúningi og sam-
ræmingu á sameiginlegum hvala-
talningum aðildarþjóðanna. Þær
eiga að fara fram næsta sumar og
beinast aðallega að stofnstærðar-
mati á hrefnu og langreyði.
NAMMCO var stofnað árið 1992
af núverandi aðildaþjóðum.
Markmið NAMMCO er að stuðla
með samráði og samvinnu að
stjórnun, verndun og rannsóknum
á sjávarspendýrum í Norður-
Atlantshafi. •
Gistisamningur undirritaður
í tengslum við fundinn var ritað
undir gistisamning milli Noregs og
NAMMCO. Sjávarútvegsráðherra
Noregs, Otto Gregusen, ritaði und-
ir samninginn fyrir hönd Noregs
en formaður NAMMCO, Amalie
Jessen, fyrir hönd NAMMCO.
Samningurinn kveður m.a. á um
réttindi og skyldur NAMMCO,
sem alþjóðastofnunar með aðsetur
í Noregi.
Ray Gambell, sem nýlega lét af
störfum sem framkvæmdastjóri
Alþjóðahvalveiðiráðsins, var gesta-
fyrirlesari á fundinum. I ræðu
sinni fór hann yfir stjórnun hval-
veiða síðustu áratugi og vísindi og
stjórnmál í því sambandi.
Vísindanefnd NAMMCO kynnti
niðurstöður sínar varðandi
ástandsmat á m.a. Vestur-Græn-
landsstofni mjaldurs, sem er sam-
eiginlegur stofn Grænlands og
Kanada. Fram kom að miðað við
núverandi veiðiálag eru verulegar
líkur á hruni stofnsins innan 20
ára. Lýsti NAMMCO yfir veruleg-
um áhyggjum á ástandi stofnsins
en stjórnunarákvarðanir eru tekn-
ar á vegum sameiginlegrar stjóm-
unarnefndar Grænlands og Kan-
ada. NAMMCO hvatti til nánari
milli NAMMCO og sameiginlegu
stjórnunarnefndarinnar.
Einnig var fjallað um úttekt vís-
indanefndarinnar á Vestur-Græn-
landsstofni náhvals, langreyðar við
Færeyjar og hnísu í Norður-
Atlantshafi.
Vísindanefndin kynnti stöðu
rannsókna á samspili sjávar-
spendýra og fiskveiða í efnahags-
legu tilliti. Kom m.a. fram að afrán
sjávarspendýra nemur svipuðu
magni á sjávarfangi og fiskveiðar á
ýmsum svæðum í Norður Atlants-
hafi. Talsvert skortir þó á að unnt
sé að meta efnahagsleg áhrif þessa
afráns miðað við núverandi þekk-
ingu. NAMMCO lagði áherslu á
mikilvægi rannsókna á þessu sviði
og samþykkti í samræmi við tillög-
ur vísindanefndarinnar að hún ein-
beitti sér m.a. að efnahagslegum
áhrifum afráns hrefnu við Island. í
þessu sambandi lýsti NAMMCO
yfir mikilvægi rannsókna á hlut-
verki sjávarspendýra í vistkerfí
hafsins og lýsti yfir stuðningi við
rannsóknir Japans í vesturhluta
N orður-Kyrrahafs.
Vinnufundur á íslandi
á næsta ári
Ákveðið var að halda vinnufund
á Islandi næsta ár um veiðiaðferðir
á sjávarspendýrum og undirbúa
ráðstefnu um samþættingu þekk-
ingar veiðimanna og vísindamanna.
Fundinn sátu fulltrúar aðildar-
þjóða NAMMCO sem eru auk ís-
lands, Noregur, Grænland og Fær-
eyjar. Þá voru fulltrúar Japans,
Rússlands, Danmerkur og Kanada
á fundinum auk fulltrúa alþjóða-
stofnana og samtaka. í sendinefnd
íslands voru Kristín Haraldsdóttir,
sjávarútvegsráðuneytinu, formað-
ur sendinefndarinnar, Eiður
Guðnason, sendiherra, Kolbeinn
Árnason, sjávarútvegsráðuneytinu,
Gísli Víkingsson, Hafrannsókna-
stofnuninni, Kristján Loftsson og
Konráð Eggertsson.
Hagræði fynr
fískkaupendur
Sameining- Reiknistofu fiskmarkaða
hf. og íslandsmarkaðar hf.
TVÖ stærstu fyrirtækin í tölvu-
þjónustu fyrir íslenska fiskmarkaði,
Reiknistofa fiskmarkaða hf. og ís-
landsmarkaður hf. hafa sameinast í
eitt fyrirtæki og nafn fyrirtækisins
verður Islandsmarkaður hf. Bæði
félögin hafa annast rekstur tölvu-
kerfa fyrir fiskmarkaði landsins
sem eru 20 talsins með 30 starfs-
stöðvar. Fiskmarkaðirnir skrá dag-
lega upplýsingar um framboð á
ferskum fiski inn í sölukerfi ís-
landsmarkaðar sem selur fiskinn i
fjarskiptauppboðum með þátttöku
150-200 fiskkaupenda.
Upplýsingar um framboð
og sölu fisks á einum stað
„Sameining þessara félaga hefur
margþætt hagræði í för með sér
fyrir fiskkaupendur. Fyrir samein-
ingu þurftu fiskkaupendur að
kaupa bankaábyrgðir fyrir sitthvort
sölukerfið og voru í mörgum tilfell-
um með fullnýtta ábyrgð á öðru
sölukerfinu en vannýtta á hinu.
Sameiningin upprætir þetta vanda-
mál og gerir auk þess að verkum að
nú eru allar upplýsingar um fram-
boð og sölu á fiski aðgengilegar á
einum og sama staðnum. Aætlað er
að búið verði að koma öllum fisk-
mörkuðum á eitt uppboðs- og sölu-
kerfi í lok nóvembermánaðar."
Bætir þjónustuna
við fískmarkaði
„Reiknistofa fiskmarkaða tekur
yfir allar eignir og skuldir íslands-
markaðar við sameininguna. Hún
eykur hagkvæmni í rekstri fyrir-
tækjanna, auðveldar frekari upp-
byggingu tölvukerfanna, eykur
möguleikann á að flytja út íslenska
þekkingu á þessu sviði og bætir
þjónustuna við fiskmarkaði, fisk-
kaupendur og -seljendur. Á vegum
þessara fyrirtækja hefur verið
hannað háþróað tölvukerfi sem hef-
ur m.a. verið selt til notkunar á
fiskmarkaði í Bandaríkjunum og
Þýskalandi,“ segir í frétt fyrirtækj-
anna um sameininguna.
Stjórnarformaður íslandsmark-
aðar er Sigurbjörn Svavarsson en
Ingvar Örn Guðjónsson sem verið
hefur framkvæmdastjóri Reikni-
stofu fiskmarkaða, verður fram-
kvæmdastjóri hins sameinaða fé-
lags.
„Kvenhaukur“ af
tékkneskum uppruna
MADELEINE K. Albright, utan-
ríkisráðherra Bandaríkjanna, kem-
ur í opinbera heimsókn til íslands í
dag, til viðræðna við íslenzka ráða-
menn. Engin kona í bandarískri
stjómmálasögu hefur gegnt æðra
pólitísku embætti en Albright. Bill
Clinton forseti skipaði hana utanrík-
isráðherra ríkisstjórnar sinnar í des-
ember 1996 og tók hún við því í jan-
úar 1997, við upphaf seinna
kjörtímabils Clintons. Hún er 64. ut-
anrfkisráðherrann í sögu Bandaríkj-
anna.
Albright fæddist í Prag árið 1937
undir nafninu Marie Jana Korbel-
ova. Faðir hennar, Josef Korbel, var
í utanríkisþjónustu Tékkóslóvakíu.
Fjölskyldan fluttist til Lundúna árið
1939, er Hitler hafði innlimað Tékk-
land í ríki sitt. Hún sneri aftur til
Prag eftir stríðið, en hafði þar
skamma viðdvöl. Árið 1948, er
kommúnistar höfðu tekið við völdum
í Tékkóslóvakíu, fluttist Korbel-fjöl-
skyldan til Denver í Bandaríkjunum.
Það vakti athygli og umtal, er það
virtust henni nýjar fréttir, þegar
henni var bent á, í febrúar 1997, að
báðir foreldrar hennar hefðu verið
af gyðingaættum. Þrennt af öfum
hennar og ömmum hefði látið lífið í
helförinni.
Pólitískt hugarfar mótað
af lærdómum sögunnar
„Hugarfar mitt er mótað af
Múnchen[fundinum]; flestra af
minni kynslóð er mótað af Víetnam,"
eru fleyg orð sem Albright lét falla á
fyrsta embættisári sínu. Með þeim
átti hún við, að lærdómar sögunnar
sem hún hefur tileinkað sér eru að
minna leyti um hættuna á því að
landið sem hún er í forsvari fyrir
dragist niður í kviksyndi, heldur að
meira leyti um hættuna af því að
halda að sér höndum í alþjóðamál-
um. Leiðtogar stórvelda Evrópu
lögðu á Múnchen-fundinum svokall-
aða árið 1938, í nafni þess að koma í
veg fyrir stríð, blessun sína yfir
innlimun Súdetahéraða Bæheims í
Hitlers-Þýzkaland, og þar með í
raun endalok sjálfstæðrar Tékkó-
slóvakíu.
Mið- og Austur-Evrópu hefur
reyndar lengi átt hug Albright. í
Reuters
Madeleine Albright
doktorsritgerð sinni í stjórnmála-
fræði, sem hún skrifaði við Columb-
ia-háskóla í New York árið 1976,
fjallaði hún um hlutverk fjölmiðla í
róstunum í Tékkóslóvakíu árið 1968.
Meistarprófsritgerð hennar árið
1968 fjallaði um sovézku utanríkis-
þjónustuna og meðal annarra bóka
sem hún hefur skrifað fjallar ein um
hlutverk fjölmiðla í róstunum í Pól-
landi upp úr 1980.
Albright talar, auk ensku, tékk-
nesku og frönsku og getur lesið
pólsku og rússnesku.
Áður en hún var skipuð utanríkis-
ráðherra var hún sendiherra Banda-
ríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum,
hún var forseti Center for National
Policy, rannsóknastofnun um opin-
bera stefnumótun í Washington, og
var meðal kennara í diplómataskóla
Georgetown-háskóla.
Eftir að Albright tók við embætti
sögðu fréttaskýrendur hana vera
harða í hom að taka, en sveigjan-
lega. Sjálf hefur hún kosið að lýsa
sér hvorki sem „hauki“ né „dúfu“,
heldur sem „uglu“. Þó hefur hún, að
sögn Lundúnablaðsins Daily Tele-
graph, gjaman látið sér lynda að
vera lýst sem „hauki“, þar sem
stjómmálamenn af því sauðahúsi
þættu ákveðnir og væra svo að segja
„í tízku“.
Hefur ekki útilokað for-
setaframboð í Tékklandi
Samkvæmt bandarísku stjórnar-
skránni eru bandarískir ríkisborgar-
ar, sem fæðzt hafa erlendis, útilok-
aðir írá því að mega bjóða sig fram
til forseta. Hins vegar var nokkuð
þrýst á Albright að gefa kost á sér í
forsetakosningum í Tékklandi.
Vaclav Havel, sem verður að hætta
sem forseti Tékklands árið 2002,
stakk fyrst upp á því árið 1998 að
hún gæfi kost á sér til að verða eftir-
maður sinn, og fram á þetta ár hafa
sögusagnir sprottið upp við og við
um að hún væri ekki fráhverf þess-
um möguleika, þótt talsmaður henn-
ar bæri það jafnan til baka. Að sögn
bandaríska tímaritsins Time mun
hún sjálf þó hafa tjáð Havel að hún
myndi ekki endanlega gera upp hug
sinn í þessu máli fyrr en eftir að
skipunartímabil hennar í ríkisstjórn
Clintons er runnið út, þ.e. í byrjun
næsta árs.
Albright hefur, að sögn CNN,
leynt og ljóst notfært sér stöðu sína
sem utanríkisráðherra til að koma
konum í há embætti og styðja við
bakið á kynsystram sem náð hafa
langt. Og hún hefur svarið að gera
allt sem í hennar valdi stendur til að
stuðla að þvi að kona verið kosin for-
seti Bandarikjanna.
Á fundi í siðustu viku á vegum
samtakanna „The White House
Project", sem hafa helgað sig því
markmiði að koma konu í valda-
mesta embætti heims á næstu tíu ár-
um, fór Albright yfir embættistíð
sína sem utanríkisráðherra. Sagðist
hún hafa komizt að því, að til að
gegna hlutverki málsvara Banda-
ríkjanna með skilvirkum hætti er-
lendis breytti það engu að hún væri
kona. Þeir erlendu ráðamenn, sem
hún hefði þurft að skipta við, virtu
hana sem fulltrúa Bandaríkjanna og
kyn hennar skipti þar engu máli. „I
hreinskilni sagt finnast mér banda-
rískir karlmenn erfiðari við að eiga
en erlendir ráðamenn," sagði hún.
Spáði hún því að baráttan fyrir því
að konur fái rétt sinn til jafnréttis á
öllum sviðum viðurkenndan yrði eitt
af mótandi öflum 21. aldarinnar í
heiminum.
Abdurrahman Wahid
Segist krefjast
nýrra málaferla
Jakarta. AP.
ABDURRAHMAN Wahid, forseti
Indónesíu, krafðist þess í gær að
málaferli gegn Suharto, fyrrum ein-
ræðisherra landsins, yrðu hafin að
nýju og heiðarlegur dómari að þessu
sinni látinn fara með málið, en dóm-
stóll úrskurðaði á fimmtudag að
spillingarákæra á hendur Suharto
skyldi vísað á bug vegna varanlegs
heilsubrests.
Wahid, sem er þessa dagana í op-
inberri heimsókn í Brasilíu, sagði
fjölmiðlum að hann væri óánægður
með þann úrskurð dómara að heilsu-
far Suharto væri of bágborið til að
hann gæti setið réttarhöld. „Ég hef
beðið starfandi forseta hæstaréttar
að leita að heiðarlegum og ákveðnum
dómara sem ekki er hægt að kaupa,“
hafði Antara-fréttastofan eftir
Wahid. „Hænsnaþjófar sæta fanga-
vist. Suharto var ekki settur í fang-
elsi heldur var honum leyft að dvelja
heima hjá sér.“
Réttarhöldin hafa verið talin með-
al mikilvægari þátta í þeirri stefnu
Wahids að uppræta spillingu og fjár-
drátt með lýðræðislegum umbótum í
landinu. Ríkissaksóknari hefur þeg-
Lalu
Mariyun
Abdurrahman
Wahid
ar sagst munu áfrýja úrskurði dóm-
aranna.
Lalu Mariyun, yfirmaður nefndar
fimm dómara sem fjölluðu um málið,
hafnaði því í gær alfarið að nokkuð
væri óviðurkvæmileg við málsmeð-
ferð. „Ég mótmæli þeim orðum
Wahids forseta sem gefa í skyn að
dómararnir sem fjölluðu um mál
Suhartos séu falir,“ sagði Mariyun.
Sá úrskurður dómaranna að öllum
ákæram á hendur Suharto skyldi
vísað á bug leiddi til óeirða á götum
Jakarta, höfuðborgar Indónesíu, á
fimmtudag. Vitað er til þess að einn
hafi látið lífið og tugir slösuðust.
Ford snýr
sér til
Michelin
Detroit. AP.
BANDARÍSKA bílafyrirtækið
Ford skýrði frá því í vikunni að
hjólbarðafyrirtækið Michelin
myndi sjá því fyrir megninu af
hjólbörðum sem notaðir yrðu í vin-
sælustu gerðina af Explorer-bflum.
Hingað til hafa aðeins verið not-
aðir hjólbarðar frá fyrirtækinu
Bridgestone/Firestone í Explorer-
bílana. Áður hafði dekkjafyrirtæk-
ið kallað inn 6,5 milljónir Fire-
stone-hjólbarða vegna gruns um
að þeir væra gallaðir. Grunur leik-
ur á að gallaðir hjólbarðar frá fyr-
irtækinu hafi valdið umferðarslys-
um sem hafi kostað alls 101 mann
lífið.
Ennfremur var skýrt frá því að í
dómskjölum kæmi fram að á ár-
unum 1990-95 hefðu bílaeigendur
oftar kvartað yfir gölluðum hjól-
börðum frá Firestone-verksmiðju í
Norður-Karólínu en öðrum
verksmiðjum fyrirtækisins. Þetta
er ekki í samræmi við fullyrðingar
fyrirtækisins um að gallarnir stafi
aðallega af brotalömum í gæðaeft-
irliti í verksmiðju fyrirtækisins í
Illinois.