Morgunblaðið - 30.09.2000, Side 32
32 LAUGARDAGUR 30. SEPTEMBER 2000
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Tvfleikur á selló
og píanó í Salnum
Morgunblaðið/Ásdís
Sigurður Halldórsson sellóleikari og Daníel Þorsteinsson píanóleikari.
Fyrirlestrar og
námskeið í LHI
DANÍEL Þorsteinsson píanóleikari
og Sigurður Halldórsson sellóleikari
flytja allar sónötur Beethovens
fyrir píanó og selló í Tíbrárröðinni í
Salnum í Kópavogi í dag, laugardag,
kl. 15.
Sónöturnar eru fimm talsins:
Opus 5, nr. 1 í F-dúr og nr. 2 í g-
moll. Opus 69, í A-dúr. Opus 102, nr. 1
í C-dúr og nr. 2 í D-dúr.
Tónleikamir í Salnum eru þeir
sjöttu og síðustu í tónleikaferð þeirra
Daníels og Sigurðar, sem hófst með
tónleikum í Skriðuklaustri í Fljótsdal
og í Neskaupstað. Þar fluttu þeir á
tvennum tónleikum efnisskrána í
heild sinni, héldu þá til Færeyja þar
sem þeir léku allar sónöturnar fimm
á einum tónleikum í Norðurlanda-
húsinu í Þórshöfn. Síðar fluttu þeir
hluta efnisskrárinnar á tónleikum í
Sívalatuminum í Kaupmannahöfn og
að lokum í Stykkishólmskirkju.
Samstarf þeirra Sigurðar Hall-
dórssonar og Daníels Þorsteinssonar
hófst á Myrkum músíkdögum 1983.
Næstu 5 árin störfuðu þeir saman í
spunahljómsveitinni Vormönnum ís-
lands, sem síðar hét Loftfélag Is-
lands, og lærðu þannig að þekkja
„músíkalítet“ hvors annars frá fleiri
hliðum en hefðbundin kammer-tónl-
istariðkun býður uppá. I janúar 1988
héldu þeir sína fyrstu hefðbundnu
dúett tónleika. Þeir hafa síðan leikið
víða um land, en einnig bæði austan
hafs og vestan, annaðhvort tveir sam-
an eða með Caput-hópnum, sem þeir
hafa báðir staifað með frá upphafí.
TðNLIST
Langhollskirkja
KÓRTÓNLEIKAR í
„SÉRKLASSA“
Kammerkórinn Camerata frá
Kaupmannahöfn flutti norræn kór-
verk og frumflutti Stabat Mater,
samið af fimm norrænum tónskáld-
um. Einleikari Niels Ullner og
stjórnandi Michael Bojesen.
Fimmtudagurinn 28. september,
2000.
OFT hefur mátt lesa úr texta ým-
issa tónlistarmanna, í viðtölum og
greinum, að þeim finnist lítið gert fyr-
ir nútímatónlist og að henni sé haldið
til hlés, þegar á móti sé ávallt verið að
syngja og spila gamla tónlist. Nú
bregður svo við, að hingað til lands er
kominn danskur kór, er flutti í Lang-
holtskirkju sl. fimmtudag eingöngu
norræna kórtónlist og frumflutti m.a.
tónverk, er fimm norræn tónskáld
höfðu sérstaklega samið fyrir Cam-
Þeir hafa staðið fyrir tveimur tónlist-
arhátíðum, tileinkuðum annars vegar
Hindemith og Fauré árið 1995 og
hins vegar Schubert og Brahms árið
1997. Árið 1995 kom út geisladiskur
þar sem þeir leika íslensk og erlend
tónverk frá 20. öld. Á þessu ári hlutu
þeir báðú starfslaun listamanna,
hvor í sínu bæjarfélagi, Daníel á Ak-
ureyri og Sigurður í Reykjavík.
Tíbrártónleikar Salarins
Tíbrártónleikar vetrarins eru alls
fjönitíu talsins, að meðaltali fernir í
hverjum mánuði frá september fram
erata, en svo nefnist kórinn. Kórinn á
að baki langt starf í tónleikahaldi og á
hans vegum hefur verið gefinn út
fjöldinn allur af hljómdiskum og er
kórinn einmitt hér á landi við upp-
tökur á norrænni kórtónlist í
Skálholtskirkju.
Flutt voru kórverkin „Laude II
cantico di frate sole“, eftir Ame Mell-
nas (1933), afkastamikið sænskt tón-
skáld, íjórir stuttir þættir úr verki
sem nefnist „8 Mini motets", eftir
danska tónskáldið Ib Norholm (1931),
verk í „ættjarðarlagastíl", „Mellem
Morbærtræets grene“, eftir danska
tónskáldið Svend Nielsen (1937),
fyrstu mótettuna af fimm mótettum
við texta eftir Jesaja, eftir danska
tónskáldið Bent Lorentzen (1935) og
undarlega en áhrifamikla umritun á
verki eftir Purcell, „Hear my Prayer,
o Lord“, gerða af sænska tónskáldinu
Sven-David Sandström (1942). Það
sem einkennir í raun hinn norræna
kórstíl er að nokkru leyti fijálslega
mótuð tóntegundabundin en óm-
streituofin hljómskipan, sem ýmist er
í maí. Um er að ræða 13 söngtónleika,
11 samleikstónleika, 9 tvíleiks-
tónleika og 7 píanótónleika. Vegna
tilmæla frá mörgum áskrifendum á
síðasta ári hefur sú nýbreytni verið
tekin upp, að nú er hægt að raða sam-
an sex Tíbrártónleikum að eigin vali
og fylgja þá þeir sjöundu í kaupbæti.
Ef valdir eru samtals 10 tónleikar
fylgja tvennir Tíbrártónleikar í við-
bót, án endurgjalds. Miðaverð á Tíbr-
ártónleika er 1.500 kr.
Miðasalan er opin alla virka daga
frá kl. 13-18 og tónleikakvöld til kl.
20.
unnin stefrænt eða með tónferlislega
kyrrstæðum blæbrigðum. Verkin eft-
ir Mellnás, Norholm og Sandström
byggðu að mestu á stefrænu ferli en í
mótettunni eftir Lorentzen, var unnið
með kyrrstæða og endurtekna tón-
skipan, þar sem sérstaklega var lögð
áhersla á blæbrigði hljóðanna. „Ætt-
jarðarlagið" eftir Svend Nielsen var í
raun sönglag, sem var útsett með
ýmsum hætti og fært á milli radda á
mjög smekklegan máta. Athyglis-
verðustu verkin voru stuttu mótett-
umar eftir Norholm, mótettan eftir
Lorentzen og einnig umritun Sand-
ströms, sem var sérlega glæsilega
flutt af Camerata-kómum, undir frá-
bærri stjóm Michaels Bojesen.
Lokaverkið á efnisskránni var
„Stabat Mater 2000“, samvinnuverk-
efni eftir sömu fimm tónskáldin og
áður vom á efnisskránni, en með
sellóeinleik, sem framfærður var af
afburðagóðum sellista, Niels Ullner.
Sömu einkenni komu fram í flestum
köflunum, sem einkenndu fyrri verk-
in, nema í 3. þættinum, sem er eftir
MELISSA Pearl Friedling flytur
fyrirlestur í LHI í Laugamesi
mánudaginn 2. október kl. 15 í stofu
024. Friedling er lektor í kvik-
myndagerð við Syracuse-háskóla
þar sem hún kennir alla þætti 16 mm
kvikmyndagerðar auk námskeiða í
samtímakvikmyndafræðum, kvik-
myndasögu og menningu. Nú er hún
gestafyrirlestari á vegum Fulbright
í kvikmyndahandritagerð við deild
hljóð-og myndvinnslu við Kaþólska
háskólann í Porto í Portúgal. Bók
hennar: Konur í bata („Recovering
women: Feminisms, representation,
and Addictions“) kom út hjá West-
view Press á árinu 2000. Kvikmynd-
ir eftir hana hafa verið sýndar á fjöl-
mörgum kvikmyndahátíðum
víðsvegar um Bandaríkin. Það verk-
efni sem hún starfar að núna er
„experimental", ævisöguleg mynd
um Mercedes de Acosta. Hún ávann
sér Ph.D.-gráðu í samskiptafræðum
frá Háskólanum í Iowa árið 1997. í
fyrirlestrinum fjallar Friedling um
eigin verk og sýnir tilraunamynd-
bönd af eigin verkum og annarra.
Linda Björg Árnadóttir textíl- og
fatahönnuður flytur íyrirlestur um
eigin hönnun á prentuðum textíl í
LHÍ Skipholti 1, stofu 113, kl. 12.45
miðvikudaginn 4. október. Linda út-
skrifaðist frá textíldeild MHÍ 1995
og stundaði síðar nám við Studio
Bercot í París. Hún hefur meðal
annars starfað sem textflhönnuður
fyrir tískuhús Martime Sitbon í
París.
Námskeið
M6. Flókagerð. Ýmsir möguleikar
tækninnar kynntir. Þátttakendur
koma með hugmyndir sem þeir hafa
áhuga á að útfæra og fá leiðsögn
miðað við það. Þannig er tekist á við
fjölbreytt vinnubrögð sem nýtast
öllum.
Kennari Anna Þóra Karlsdóttir
myndlistarmaður. Kennt verður í
Listaháskóla íslands, stofu 112,
Skipholti 1. Inngangur B. Kennslu-
tími fimmtudagur 12. október kl. 18-
Flamenco-
hátíð á
Spáni
DANSARAR frá Spænska ballettin-
um sjást hér æfa spor sín fyrir
leikrit spænska leikstjórans Aida
Gomez. Verkið er hluti níundu
flamenco-hátíðarinnar sem haldin
er annað hvert ár í borginni Sevilla
á Spáni.
Lorentzen, er lék sér að sérlega fal-
legu steíjaeí'ni, í einstaklega áhrifa-
miklu samspili sellós og kórs, jafnvel í
áttundum, hvað þá öðru saklausu í
samhljóman. Þetta nýja verk, er
gjörólíkt fyrra verki Lorentzens, sem
er samið 1982 (yfirfarið 1988), og var
ásamt 5. kaflanum eftir Norholm
áhrifamesta verk tónleikanna.
Þetta voru einstaklega glæsilegir
tónleikar, þvi ekki aðeins gat að heyra
frábæra kórtónlist, er spannaði mjög
vítt svið norrænnar tónhugsunar,
heldur er Camerata-kórinn frá Kaup-
mannahöfn glæsilegur fulltrúi þeirra
söngmenntar, sem ávallt hefur ein-
kennt danskt tónlistarlíf. Stjórnandi
kórsins, Michael Bojesen, er frábær
fagmaður og sótti til söngfólksins öll
litbrigði í tónmótun, allt frá því fín-
gerðasta til þrumandi átaka í hljómi
svo unun var á að hlýða... en hvar
voru hinir vandlátu, þeir sem telja sig
boðbera nýrrar tónlistar en mættu
ekki á þessa tónleika? Já, hvar voru
hinirvandlátu?
Jón Ásgeirsson
22 og helgin 14. og 15. október kl.
10-16, alls 20 stundir. Þátttökugjald
er 14.000 krónur, efni innifalið.
M23 Myndbandavinnsla í tölvum.
Markmið námskeiðsins er að nem-
endur verði færir um að vinna
myndbönd á eigin spýtur í flestum
algengum klippi- og effektaforritum.
Farið verður yfir grundvallaratriðin
í samþættingu myndbands- og tölvu-
tækni í hópkennslu, en síðar er mið-
að við að þátttakendur vinni að eigin
hugmyndum og hafi í lok námskeiðs-
ins fullunnið verk í höndunum. Leið-
beinandi er Steinþór Bfrgisson.
Kennt verður í húsakynnum MIX
ehf. á Laugavegi 178, en þar verður
veittur aðgangur að atvinnubúnaði
og upptökusal.
Kennt verður á kvöldin og um
helgar eftir samkomulagi, alls 100
kennslustundir. Þátttökugjald er
120.000 krónur.
L2 Endurmenntun leikara.
Textameðferð. Á námskeiðinu verð-
ur farið í undirstöðuatriði framsagn-
ar og textameðferðar.
Þátttakendum verður kennd önd-
un, slökun og raddbeiting, jafnframt
því sem þeir fá innsýn í ólíkar að-
ferðir við túlkun texta. Aðalmark-
miðið er að glæða tilfinningu þátt-
takenda fyrir listrænum texta og
styrkja röddina og hljómbotn henn-
ar. Verður í því skyni einkum stuðst
við Ijóð Jónasar Hallgrímssonar og
Jóhanns Sigurjónssonar.
Kennari er Inga Bjarnason, leik-
stjóri og kennari. Kennt verður í
Leikhstardeild LHÍ, Sölvhólsgötu
13. Kennslutími mánudaga og
fimmtudaga frá 9.-19. október kl.
17.30-19.30 og laugardaginn 21.
október kl. 10-12, alls 12 stundir.
Hámarksfjöldi nemenda 12. Þátt-
tökugjald er 8.000 krónur.
Laugardagur
Bíóborgin
Kl. 15.40 Cosi Ridevano, The
Straight Story
Kl. 15.50 The Loss of Sexual
Innocence
Kl. 17.50 The Straight Story
KI. 17.55 Cosi Ridevano, The
Loss of Sexual Innocence
Kl. 20 The Straight Story,
The Loss of Sexual Innoeence
Kl. 22 Cosi Ridevano
Kl. 22.05 The Loss of Sexual
Innocence
Kl. 22.10 The Straight Story
Háskólabíó
Kl. 14 Mysteries of the Org-
anism, Sweet Movie
Kl. 22 The Filth and the
Fury
Kl. 24 The Filth and the
Fury
Regnboginn
Kl. 13.30 Princess Mononke
Kl. 16 Felicia’s Journey
Kl. 18 Crouching Tiger,
Hidden Dragon
Kl. 22 Crouching Tiger,
Hidden Dragon
Kl. 24 Princess Mononke
Sýningu lýkur
SÝNINGU Kristínar Guðjónsdóttur
á skúlptúrum í Baksalnum í Galleríi
Fold við Rauðarárstíg lýkur á morg-
un, sunnudag.
Kristín er búsett í Bandaríkjunum
og þar hefur hún tekið þátt í tugum
samsýninga og haldið tvær einka-
sýningar. Þetta er þriðja einkasýn-
ing hennar hér á landi. Kristín hefur
hlotið fjölda viðurkenninga og verð-
launa fyrir verk sín.
Verk Kristínar má sjá á vefslóð-
unum: art.net/stina og myndlist.is.
Opið á virkum dögum kl. 10-18, á
laugardögum kl. 10-17 og á sunnu-
dögum kl. 14-17.
Hvar voru hinir vandlátu?