Morgunblaðið - 30.09.2000, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ ' Œ i LAUGARDAGUR 30. SEPTEMBER 2000 35
Lyf tefur framrás
MS-sjúkdómsins
Associated Press.
EITT þeirra lyfja sem notuð eru til
að hafa hemil á heila- og mænusiggi
(MS) dregur einnig verulega úr hrað-
anum á framrás sjúkdómsins, að því
er vísindamenn gi’eina frá. Er þetta
niðurstaða alþjóðlegrar rannsóknar,
sem var hætt í miðju kafi vegna þess
hve afgerandi niðurstaðan var, og
getur þetta hjálpað þúsundum sjúkl-
inga sem nú fá enga meðferð fyrr en
þeir hafa orðið fyrir töluverðum
heila- eða taugaskemmdum.
„Þetta er mjög mikilvæg uppgötv-
un vegna þess að þetta sýnir svo ekki
verður um villst að ef meðferð er haf-
in snemma er hægt að hafa áhrif á ör-
lög sjúklingsins," sagði dr. Thomas
Leist, framkvæmdastjóri MS-rann-
sóknarmiðstöðvarinnar við Thomas
Jefferson-háskóla í Fíladelfíu í
Bandaríkjunum. Telur hann að með
þessum hætti verð imnt að hægja á
sjúkdómnum, eða jafnvel koma í veg
fyrir hann.
„Þetta opnar nýjar leiðir í meðferð
MS-sjúkdómsins,“ sagði Leist, sem
var ekki meðal þeirra sem unnu að
rannsókninni, en niðurstöðurnar
birtast í New England Joumal of
Medicine 27. september.
Hingað til hefur fólk er þjáist af
bólgu í taugum í augum, mænu eða
litla heila - sem eru einkenni er
benda til þess að MS sé að þróast -
ekki verið greint með sjúkdóminn, og
því síður fengið meðferð. Til að grein-
ast með sjúkdóminn þarf maður að fá
bólgur aftur annars staðar í mið-
taugakerfinu.
En vísindamenn við læknadeild
Ríkisháskólans í New York-ríki
(SUNY) í Buffalo í Bandaríkjunum,
og á um 50 öðrum stöðum í Banda-
ríkjunum og Kanada, komast að
þeh-ri niðurstöðu í þessari nýju rann-
sókn, að sé sjúklingum gefið lyfið int-
erferon beta-la innan nokkurra
Reuters
Betty Cuthbert frá Ástralíu ber kyndil-
inn inn á aðalleikvanginn í Sydney er
Ólympíuleikarnir voru settir 15. þessa
mánaðar. Cuthbert sem forðum vann til
fjölmargra verðlauna á hlaupabrautum
þjáist af heila- og mænusiggi og þykir
glæsilegur fulltrúi þeirra sem glíma við
þennan erfiða sjúkdóm.
vikna frá því að fyrstu bólgur grein-
ast minnki um 44% líkumar á því að
einkenna MS verði vart innan þriggja
ára.
Aðeins þriðjungur sjúklinga sem
sprautuðu sig með lyfinu vikulega
fengu MS innan þriggja ára, en helm-
ingur sjúklinganna í samanburðar-
hópnum sem sprautaði sig með mein-
lausu efni fékk sjúkdóminn á sama
túna.
Dr. Stephen Reingold, varaforseti
rannsóknadeildar bandarísku MS-
samtakanna, segh- að þessar
niðurstöður muni hvetja
lækna til að senda sjúklinga í
segulsneiðmyndun strax og
vart verði áðurnefndrar bólgu.
Komi í ijós við segul-
sneiðmyndunina heilavef-
skemmdir - sem benda til þess
að bólga hafi orðið - ætti það
að ýta undir að hafin yrði með-
ferð með interferon, að mati
Reingolds.
Auk þess að hafa gefið sjúkl-
ingum steralyf til að draga úr
bólgum hafa læknar boðið þrjú
lyf sem draga úr tíðni og
slæmsku sjúkdómskasta og
hægja á framrás sjúkdómsins.
Eitt þessara lyfja er interferon
beta-la, sem selt er undir
vöruheitinu Avonex. Er þar
um að ræða eftirlíkingu, sem
búin er til með erfðatækni, af
prótíni sem verður til í
mannslíkamanum, sagði aðal-
höfundur rannsóknarinnar, dr.
Lawrence Jacobs, prófessor í
taugasjúkdómafræði við SUNY í
Buffalo. Virkai- lyfið með því að
draga úr bólgu og þagga niður í
ofvirku ónæmiskerfi líkamans.
Auk þess að tefja fyrir byrjun
sjúkdómsins dró Avonex úr
Qölda nýrra eða bólgnandi vef-
skemmda, er komu í Ijós við segul-
sneiðmyndun, um meira en helming,
samanborið við sjúklinga í saman-
burðarhópnum. Þá dró lyfið úr heild-
arfjölda slíkra skemmda í taugakerf-
inu um 91% umfram
samanburðarhópinn.
TENGLAR
New England Journal of Medicine:
www.nejm.com
Bandarísku MS-samtökin:
www.nmss.org
Leggja til
viðvörun á
sýklalyf
Lyfj ablanda
á að fyrirbyggja
ristilkrabba
The New York Times Syndicate.
NÝ blanda af lyfjum kann að gera út
af við krabbamein í ristli áður en það
nær hættulegu stigi, samkvæmt því
sem niðurstöður tilrauna á dýrum
leiða í ljós. Algengt bólgueyðandi efni,
ásamt tilraunalyfí, kemur í veg fyrir
að separ í ristlinum verði illkynja og
lofar þetta góðu um að hægt verði að
koma í veg fyrir aðrar tegundir
krabbameins, að sögn vísindamanna.
Hátt í annar hver Bandaríkjamað-
ur mun fá góðkynja sepa í ristilinn
einhvern tíma á ævinni og um tíu af
hundraði þeirra verða illkynja. Sam-
kvæmt niðurstöðum rannsóknar, sem
birtar eru í tímaritinu Nature Medi-
cine, getur blanda af bólgueyðandi,
steralausa lyfinu (NSAID) sulindac
og tilraunalyfi, sem kallað er
EKI-569, komið í veg fyrir þessa ill-
kynja breytingu í tilraunamúsum.
Dr. Philip Frost stjómaði rann-
sókninni og hún var kostuð af lyfja-
fyrirtækinu Wyeth Ayerst. Sagði
Frost að af óþekktum ástæðum komi
NSAID í veg fyrir að sepamir verði
illkynja en vegna harkalegra auka-
verkana, s.s. blæðinga og sviða, sé
ekki hægt að nota slík lyf í þessum til-
gangi nema að takmörkuðu leyti.
„Með því að blanda NSAID með efhi
sem virkar með öðrum hætti er unnt
að gefa minni skammt og sleppa við
aukaverkanimar," segir Frost.
Árangurinn hefur verið mikill.
Helmingur músanna fékk alls enga
sepa, jafnvel þótt þær hafi verið sér-
staklega ræktaðar þannig að þær hafi
tilhneigingu til slíkra myndana. Hinn
helmingurinn myndaði sepa en þeir
uxuekki.
Dr. Raymond N. DuBois, stjóm-
andi krabbameinsrannsókna við
Vanderbilt-háskóla í Bandaríkjunum,
kvaðst ákaflega hrifinn af rannókn
Frosts. Sagði hann niðurstöðumar
„mjög uppörvandi" og kunni þessi að-
ferð í framtíðinni að virka á margar
aðrar gerðir krabbameins í þeim vef
líkamans þar sem t.d. ristil-, brjóst-,
lungna- og blöðrahálskirtilskrabba-
mein myndast.
TENGjUVR
Timaritið Nature Medicine:
www.nature.com/nm/
Washington. AP.
ÞESS kann að vera skammt að
bíða að viðvörun verði sett á
sýklalyf í Bandaríkjunum, þess
efnis að með ofnotkun dofni virkni
þeirra. Sýklar verða sífellt ónæm-
ari fyrir lyfjum. Margar algengar
sýkingar er ekki lengur hægt að
meðhöndla með vel þekktum lyfj-
um eins og pensilini, og sumar er
ekki einu sinni hægt að ráða við
með öflugasta lyfinu, vancomycin.
Því oftar sem sýklalyf er notað,
því fleiri tækifæri hafa sýklarnir
til að þróa með sér leiðir til að
komast hjá þeim. Smitsjúkdóma-
fræðingar hafa löngum varað við
því að sýklalyf séu ofnotuð - of oft
sé vísað á þau vegna vírusa á borð
við kvef sem lyfin ráði ekki við. Þá
séu þau oft ekki rétt notuð þannig
að sýklar sem verða eftir standi
betur að vígi gegn meðferð síðar.
Bandaríska Matvæla- og lyfja-
eftirlitið (FDA) vill spoma við
þessari þróun, og hefur lagt til að
aðvaranir verði settar á svo að
segja öll sýklalyf.
TjENGLAR................
Bandaríska Matvæla- og lyfjaeft-
irlitið: www.fda.gov
Associated Press
Sumir vilja eingöngu nota eigin framleiðslu: Sápan búin til á heimilinu.
Sýklavænar
sápur
New Orleans. Reuters Health.
UM ÞAÐ bil helmingurinn af öll-
um sápum á markaðnum í Banda-
ríkjunum innihalda bakteríudrep-
andi efni á borð við tríklósan, sem
kunna að eiga þátt í að auka út-
breiðslu sýkla sem lyf vinna ekki
á. Kom þetta fram á ársþingi
Smitsjúkdómasamtaka Bandaríkj-
anna í New Orleans nýverið.
Dr. Eli N. Perencevich, við Beth
Israel Deaconess læknamiðstöðina
í Boston í Bandaríkjunum, segir
útbreiðslu bakteríudrepandi efna í
sápum vera áhyggjuefni. Hættan
sé sú, að lítið magn efna eins og
tríklósans, sem er í venjulegri
sápu til heimilisnota, leiði til þess
að sýklar myndi ónæmi fyrir því.
Eftir að hafa kannað 295
tegundir af fljótandi sápu, og 733
sápustykki, komust Perencevich
og samstarfsmenn hans að því, að
75% af fljótandi sápum, og nærri
30% af sápum í stykkjum, inni-
héldu efni á borð við tríklósan eða
tríklókarban. Rannsóknir hafa
sýnt, að það sem mestu skiptir til
þess að fjarlægja sýkla af höndum
er þvotturinn sjálfur, og engar vís-
indalegar vísbendingar eru um að
efni eins og tríklósan í sápu til
heimilisnota komi í veg fyrir sýk-
ingar.
TENGLAR
Um sápugerö I heimahúsum:
http://users.silverlink.net/—
timer/soapinfo.html
Upplýsingabanki um sápur og
hreinsiefni:www.sdahq.org/
ELLILIFEYRISÞEGAR -
Mœtum öll á Austurvöllinn 2. október nk. kl. 15.00.
AHA-hópurinn