Morgunblaðið - 30.09.2000, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ rr | LAUGARDAGUR 30. SEPTEMBER 2000 37
Í |
i! 1
ast fleiri strákar en stelpur?" er þá
næsta spurning og öllu erfiðari.
Fjölmargir vísindamenn og fræði-
menn hafa velt þeirri spurningu
fyrir sér. Segja má, að enn sé svar
við þeirri spurningu ófundið.
Margar tilgátur hafa þó verið
settar fram og prófaðar en ekki
staðfestar.
Því hefur til dæmis verið haldið
fram að karlkyns sæðisfrumur séu
fljótari en kvenkyns frumurnar og
séu því líklegri til að ná fyrst
markmiði sínu, egginu. A móti
kemur þá að kvenkyns sæðisfrum-
ur lifa lengur, þær hafa því lengri
tíma til að finna eggið og frjóvga
það. Nokkrar rannsóknir hafa bent
til þess að fleiri egg séu frjóvguð
með frumum sem innihalda kven-
kynslitninga en karlkynslitninga.
Hins vegar séu fósturlát á fyrsta
þriðjungi meðgöngu algengari hjá
kvenkyns en karlkyns fóstrum.
Um þetta eru þó einnig skiptar
skoðanir.
Rannsakað hefur verið ítarlega
hvort ákveðnar konur séu líklegri
til að fæða drengi en stúlkur í end-
urteknum meðgöngum. Þó að sú
saga sé lífseig virðist hún ekki eiga
sér stoð í raunveruleikanum. Þá
hefur ekki fundist fylgni við félags-
legar eða fjárhagslegar kringum-
stæður foreldra né við aldur móð-
ur. Svo virðist einnig sem nokkrar
en óverulegar sveiflur milli ára séu
á kynjahlutfallinu. Þessar sveiflur
eru þó varla marktækar.
Eins og fram hefur komið eru
strákar algengari en stelpur. í
þjóðfélaginu er strákum hins vegar
hættara við slysum og áföllum á
unga aldri. Konur eru jafnframt
langlífari en karlar. Því er það í
mörgum þjóðfélögum svo, þó að
nýfæddir strákar séu fleiri en
stelpurnar, að konur eru jafnmarg-
ar og karlarnir eða jafnvel fleiri.
Xsgeir Haraldsson, práfessor í
læknisfræði við HÍ.
Draumar Islendinga
Draumstafir Kristjáns Frímanns
FRÁ ÞVÍ Draumstafir hófu göngu
sína í Morgunblaðinu fyrir rúmum
tveimur árum hafa um og yfir 300
draumar birst til ráðningar. Af
þessum fjölda hefur bróðurpartur-
inn fjallað um dreymendur sjálfa og
einkalíf en inn á milli hafa alltaf
annað slagið skotist draumar um
tíðafar, náttúruhamfarir, stjómmál
og annað sem félagslegt getur talist
og snertir marga. Ráðningamar
hafa verið í anda draumanna en um
gildið má deila nema óyggjandi
sannanh- fylgi ráðningunni og út-
komu draumsins. Einn slíkur
draumur birtist í pistlinum 11.
marz síðastliðinn um sumarið sem
leið.
Draumar „Hess“
Bréfið er dagsett 31. janúar 2000.
1. Mig dreymdi að bróðir minn
kemur með pabba minn, sem er lát-
inn fyrir nokkmm áram, í heim-
sókn kl. 3 um nótt. Höfðum við
hjónin verið andvaka, að mér
fannst, og fannst pabba mínum það
bara allt í lagi. Mér skildist að hann
ætlaði að gista eitthvað hjá mér en
ekki bróðir minn, hann átti heima
rétt hjá. Ég fór að drífa aðkaffi og
meðlæti, sé ég þá að nokkrar grá-
hvítar mýs eru að hlaupa þama á
gólfinu hjá oklcur, verð ég mikið
hissa á þessu en bróðir minn segist
eiga þær en ég segist ekki mega
láta þær svona lausar því ég sé með
kettling hér sem geti étið þær (ég á
engan kettling) en um leið stekkur
Mynd/Kristján Kristjánsson
Draumurinn mótar nýja tíð.
kettlingurinn út um eldhúsglugg-
ann, af hræðslu við mýsnar fannst
mér. Hann var ekki útivanur svo ég
fer út í útidyr að kalla á hann, hann
kemur ekki en við dyragættina
stendur minkur grafkyrr en ætlar
að komast inn sem ég verð smeyk
við og loka. Ég fer aftur út í gættina
og kalla á kisu, kemur hún þá í loft-
köstum en minkurinn var fast við tii
að komast inn en kemst ekki (mink-
urinn var mjög fallegur, skinnið svo
fallegt), lok.
2. Systir mín kemur til mín með
ungri stúlku til að gista eina nótt
fannst mér, var allt sjálfsagt en allt
hjá mér var eitthvað bilað, kalt eða
rafmagnslaust. En ég bjó um þær í
stóra herbergi og þegar ég kem til
að sofa í þessu sama herbergi er
maðurinn systur minnar í rúmi þar
líka, háttaður en situr uppi í rúm-
inu. Hann var ber að ofan og fannst
mér það eitthvað ómögulegt því það
var svo kalt inni, ég spyr hann
hvort honum sé ekki kalt, hann
brosir bara og segir mér að koma,
hann ætli að hlýja mér á höndunum
með sínum. Ég undra mig á hvað
honum var heitt, mér var mjög kalt,
lok.
Ráðning
Þegar þessir tveir draumar era
skoðaðir virðast þeir við fyrstu sýn
snúast um úlfúð milli ættingja þvi
táknin era mörg í þá vegu; heim-
sókn um nótt, látinn faðir, kettling-
ur og minkur en þegar betur er
gætt og horft milli línanna á táknin
óræðu snýst innihaldið við og ný
mynd birtist. Ef mér skjátlast ekki
þá era þessir draumar fyrir þein-i
ótíð sem verið hefur meira eða
minna frá áramótum, eða þeim tíma
þegar þig dreymir draumana. í
fyrri draumnum eru táknin um það;
heimsókn um nótt - verstu veðrin
hafa skollið á að næturþeli, látinn
faðii' - vetur, grá/hvítu mýsnar -
hörð tíð, minkurinn — villt náttúra
og kettlingurinn lýsir tíðarfarinu.
Seinni draumurinn er svo ár-
étting á þeim fyrri en þar bætist við
nákvæmari lýsing á þeim umhleyp-
ingum sem verið hafa og verða (allt
bilað, kalt og rafmagnslaust, þér
kalt, honum heitt). Þegar helstu at-
riði draumanna eru dregin saman
(gistinætumar) kemur í ijós að
þessi ótíð muni halda sínu striki út
aprílmánuð með hörku og miklum
sveiflum í hitastigi uns vorið tekur á
sig rögg og breiðir úr fögra sumri.
Draumarnir rætast
Yngstu menn jafnt sem þeir elstu
muna að sumarið 2000, fyrsta sum-
ar nýrrar aldar reyndist einstak-
lega gjöfult, sólríkt og gróskumikið
þótt norðangarri legði það í einelti
út allan aprílmánuð. En fleiri af
draumunum 300 hafa væntalega
ræst mönnum í samræmi við ráðn-
ingu og þætti mér vænt um að
heyra eitthvað um það. En það eru
ekki eingöngu næturdraumamir
sem rætast íslendingum til hags og
bóta. Draumurinn um hina nýju
gullöld landsins á 21. öldinni sem
lesa má um í spádómum pýramíd-
ans mikla (Pýramídinn mikli, Boð-
skapur Pýramídans mikla og Hin
mikla arfleið íslands eftir Adam
Rutherford) virðist nú þegar hafin
og að rætast í hetjunum ungu á Ól-
ympíuleikunum í Sydney. Til ham-
ingju íslenska þjóð.
•Þeir lesendur sem vi|ja fá drauma sína
birta og ráðna sendi þá með fuilu nafni,
fæðingardegi og ári ásamt heimilisfangi og
dulnefni til birtingar til:
Draumstafir
Morgunblaðið
Kringlunni 1
103 Reykjavík
eða á heimasíðu Draumalandsins
http://www.dreamland.is
i am erí skum
hcilsiulýnum
Sealy, stærsti dýimframleiðandi i
heimi er leiðtoginn í dýnuiðnað-
inum í dag, enda sefur fleira fólk
á Sealy rúmdýnu en nokkurri
annari dýnugerð. Þessi staðreynd
auðvíeldar þeim valið sem gera
kröfur um gæði.
Posturelbch íjaðrakerfíð er aðeins
fáanlegt í Sealy dýnum og nýtist
fólk í mismunandi
vþ yngdarflokku m.
Kerfið var hannað i samvinnu við
færustu heinasérfræðinga í
Bandaríkjunum og gefur því réttan
bakstuðning ftá sjónarmiði lækna.
Það er þvi ekki að ás|$|pfealausu að
Sealy eru mest Seldu-dýUjar í heimi.
Vertu velkomin/n í verslun okkar
og fáðu faglega ráðgjöf um dýnu
sem hentar þér.
Verð firá \ kr.
Opid i fiftíi k7.
10:00 - lfí.00
Mntiviuni I • IOH Rt;\ k ja\ ik
Stnit; 53,’i 3500 • l a\: 533 3510 • n u tv.ntarro.is
ViÖ styöjum við bakið é þér!
Jtiníá stálgrhul Itwin
Opiö virka tlfigft
ki. 00:00 - 10:00