Morgunblaðið - 30.09.2000, Side 52
-4>2 LAUGARDAGUR 30. SEPTEMBER 2000
I
I
t
»
t
I
\
»
ða tippaðu á Netmu, www.i*
aðeins 10 kr. röðm.
núertvöfaWurpottuil
\íid
MORGUNBLAÐIÐ
-4
UMRÆÐAN
Við viljum - við getum!
LÚÐRASVEITIN Thorshov
Skoles Musikkorps frá Noregi er
stödd hér á landi dagana 27. septem-
ber til 4. október.
Þetta er fyrsta lúðrasveitin sem
skipuð er eingöngu fötluðum hljóð-
færaleikurum og líklega sú stærsta í
heimi með um 70 meðlimi. Hún var
stofnuð 1972.
Það er engin ástæða til að ætla að
þroskaheft fólk hafi öðruvísi tónlist-
arhæfileika en annað fólk, en hefur
það möguleika til að iðka tónlist á
sama hátt og aðrir?
Yfirleitt er tónlistarmenntun
byggð á fullum skilningi á táknmáli
tónlistarinnar svo sem nótum.
Bókstafir, tölur og nótur eru fyrir
marga þroskahefta flókið og óhlut-
bundið táknmál og erfitt að sjá það
sem hluta af tónlistinni. Þegar
hljómsveitin var stofnuð vissu skóla-
stjórinn Arne Sand og tónlistar-
kennarar í Thorshov-skólanum að
þeir væru að hefja langvarandi þró-
unarstarf. Þeim var ekki kunnugt
um neitt fordæmi þess annars staðar
í heiminum. Þeir voru bjartsýnir og
staðráðnir í að einbeita sér að mögu-
leikunum, ekki erfiðleikunum.
Þeir völdu hljómsveitinni ein-
kunnarorðin „Við viljum - við get-
um“.
Auk tónlistarlegra markmiða
settu þeir sér einnig þau markmið
að:
- Skapa meðlimum hljómsveitar-
innar tækifæri til þroskandi tóm-
stundastarfs
- Skapa þeim tækifæri til þátttöku
í menningarviðburðum
- Veita þeim tónlistarmenntun í
samræmi við færni og möguleika
hvers einstaklings.
Eftir tuttugu og átta ára starf má
segja að árangur Lúðrasveitar
Thorshov-skóla (TMH) taki fram
þeim vonum og draumum sem þessi
framsækni hópur kennara hafði í
upphafi.
Lúðrasveitin er skipuð 70 þroska-
heftum hljóðfæraleikurum á aldrin-
um 10-40 ára. Þau leika á margs
konar málmblásturs- og slagverks-
hljóðfæri. Á hljómleikum leika þeir
ævinlega án stuðnings ófatlaðra
hljóðfæraleikara.
Hljóðfæraleikarar sveitarinnar
leika ekki eins vel og atvinnumenn,
en hljómlistarflutningur þeirra er
jafngóður og jafnvel betri en margra
annarra skólahljómsveita í Noregi
Tónleikar
Fullórðinsfræðsla fatl-
aðra, segja þau Sigrfður
K. Halldórsdóttir,
Elísabet Þ. Harðardótt-
ir og Arí Agnarsson, vill
hvetja fólk til að koma
og hlusta á þetta frá-
bæra tónlistarfólk.
þar sem mjög sterk hefð er fyrir
skólalúðrasveitum.
TSM hefur oft komið fram með
lúðrasveitum atvinnumanna. Við slík
tækifæri verða atvinnumenn að leika
með sveitinni á hennar forsendum,
þar sem atvinnumennimir verða að
læra merkjakerfi það sem sveitin
hefur þróað fyrir viðkomandi tón-
leika. Eða eins og stjórnandi þeirra
segir, við stundum aðlögun ófatlaðra
að fötluðum - eða öfuga blöndun.
Meðlimir lúðrasveitarinnar æfa
þijár til fimm klukkustundir viku-
lega og auk þess koma þeir fram á
15-20 tónleikum eða tónlistarvið-
burðum árlega.
Tónlistaræfingar og tónlistar-
flutningur eru í brennidepli hjá sér-
hverjum tónlistarmanni, en fyrir
marga meðlimi TSM eru félags-
tengslin í hópnum jafnmikilvæg.
SKEIFUNN111 ■ SlMI 520 8000 • BlLDSHÖFÐA 16 ■ SlMI 5771300 • DALSHRAUN113 • SlMI 555 1019^^
/Forn-cA/c^ é
Slci
Iðnbúð 1,210 Garðabæ Collection
sfmi 565 8060
Thorshov Skoles Musikkorps er
líklega stærsta hljómsveit fatlaðra í
heiminum og aðstandendur hennar
segja: „Við erum einnig ef til vill
besta sveitin af þessu tagi. Við erum
alltaf að reyna að verða betri, en við
keppum ekki við aðrar sveitir. Við
berum okkur einungis saman við
okkur sjálf. Fyrir tónlistarfólkið er
það mikilvægt að finna að það leikur
betur og betur, og að fá viðurkenn-
ingu fyrir allar litlar framfarir í tón-
listarflutningi sinum. „Við viljum -
við getum“ eru einkunnarorð okkar.
Það er mjög mikilvægt fyrir hvern
einstakan hljóðfæraleikara að sýna
áheyrendum að hann eða hún vilji og
geti án stuðnings."
Lúðrasveitin hefur haldið hljóm-
leika víða, bæði í heimalandi sínu og
utan þess, og er vel þekkt í Evrópu.
Meðal annars hefur sveitin leikið í
hljómleikahöllinni í Vínarborg fyrir
10.000 manns, í Finlandia-salnum í
Helsinki og hljómleikahöll Óslóar-
borgar.
Hér á landi er TSM á vegum Full-
orðinsfræðslu fatlaðra og hljóm-
sveitarinnar Plútó.
Hjá Fullorðinsfræðslu fatlaðra
hefur verið tónlistarkennsla í boði
síðastliðin ellefu ár, bæði fjölbreytt
hópkennsla og einstaklingskennsla á
hljóðfæri. Upp úr þessarri kennslu
þróaðist danshljómsveitin Plútó sem
starfað hefur í fjögur ór og æfir einu
sinni í viku. Hún er skipuð slag-
verksleikurum, gítarleikara, hljóm-
borðsleikara og söngvurum, alls 11
manns undir handleiðslu þriggja
kennara skólans. Kennaramir
stjóma sveitinni og spila með eftir
þörfum hveiju sinni.
Plútó hefur víða komið fram hér á
landi. Hún hefur leikið á listahátíð
fatlaðra í ráðhúsinu, komið fram í
sjónvarpi og troðið upp á árshátíðum
svo fátt eitt sé nefnt. Á síðasta ári
tók hljómsveitin Plútó þátt í menn-
ingarviku Árósa í Danmörku við
góðan orðstír.
Markmið hljómsveitarinnar er að
geta sungið og spilað fjölbreytt lög
sem reyna æ meira á tækni og túlk-
un. Einnig lúta markmiðin að sviðs-
framkomu og sjálfstrausti.
Hljómsveitin Plútó æfir á svipað-
an hátt og hver önnur hljómsveit.
Framfarir í tónlistarflutningi henn-
ar hafa verið stórstígar ár frá ári.
Mikilvægasti þátturinn í framfömm
hljómsveitarmeðlima liggur í vax-
andi sjálfstrausti. Hvert tækifæri til
þess að leika opinberlega er mikil-
vægt fyrir hópinn. En tækifæri til að
hlusta á aðrar hljómsveitir er ekki
síður mikilvægt. Einkum var það
stór hluti af ævintýralegri ferð til
Danmerkur að hlusta á aðrar hljóm-
sveitir, bæði fatlaðra og ófatlaðra.
Lúðrasveitin Thorshov Skoles
Musikkorps mun ásamt skólahljóm-
sveitinni Plútó halda tónleika 30.
september og 1. október í Ráðhúsi
Reykjavíkur kl. 15-17. Fyrst flytur
lúðrasveitin Thorshov Skoles Musik-
korps fjölbreytta dagskrá en síðan
leikur hljómsveitin Plútó fyrir dansi.
Fullorðinsfræðsla fatlaðra vill
hvetja fólk til að koma og hlusta á
þetta frábæra tónlistarfólk sem hef-
ur einkunnarorðin Við viljum - við
getum! og minnir á að aðgangur að
tónleikum í ráðhúsinu er ókeypis.
Höfundar eru tónlistarkennarar við
Fuliorðinsfræðslu fatlaðra.
Bókhaldskerfi
KERFISÞRÓUN HF.
FÁKAFENI 11, s. 568 8055
http://www.kerfisthroun.is/
m
■■ '
í :
c
m