Morgunblaðið - 30.09.2000, Page 69
MORGUNBLADItí
LAUGAKUAGUK 30. SLFi'KMBtíK 2000
FÓLK í FRÉTTUM
Atli Örvarsson vinnur í Los Angeles við að semja kvikmyndatónlist
Þrjóskan er það eina
sem dugar til að ná
langt í Los Angeles þar
sem búa fleiri listamenn
en í nokkurri annarri
borg heims. Hildur
Loftsdóttir hitti Atla
Orvarsson kvikmynda-
tónskáld á ströndinni.
ÞAÐ er fullt af fólki héma
í Los Angeles sem lang-
ar ta að „meika“ það og
lifa í sviðsljósinu. Ég
held samt að til að end-
ast í kvikmynda- og tónlistarbrans-
anum hérna þurfi fólk að hafa mjög
mikla löngun til þess, annars myndi
það ekki leggja á sig það sem þarf,“
segir Atli Órvarsson 30 ára kvik-
myndatónskáld sem kom til Engla-
borgarinnar fyrir tveimur árum og
gengur nú mjög vel í hinni hörðu
samkeppni sem þai- ríkir.
Atli vinnur hjá sjónvarpsþáttatón-
skáldinu Mike Post, hefur samið
tónlist fyrir nokkrar myndir, m.a
Bad Dog, og unnið til ýmissa verð-
launa, og nú seinast í samkeppni
ungra tónskálda hjá Turners Classic
Movies TV.
„Hugmyndina á bakvið samkeppn-
ina var að gefa ungum tónskáldum
tækifæri á að semja tónlist við gaml-
ar myndir frá því tímabili þegar spil-
að var á píanó eða orgel á staðnum og
engin tónlist er því til við flestar
þessara mynda. Á vefsíðunni þeÚTa
voru myndskeið úr nokkrum mynd-
um og maður gat valið eitt þeirra til
að semja tónlist við og sent tilbaka á
MP3 vefsíðu, sem maður býr sér til.
Þannig mættust gamli og nýi tím-
inn,“ útskýrir Atli sem hlaut verð-
laun sem einn af þremur hlutskörp-
ustu af 200 keppendum.
„Það var mjög gaman að vinna. Ég
tek þátt í öllum samkeppnum til þess
að kynna mig, því hér skiptir 80%
máli hvem þú þekkir og 20% hvað þú
getur.“
Varð ekki aftur snúið
„Ég var 22ja ára þegar ég byrjaði í
Berklee College of Music í Boston,
og vissi bara að ég þurfti að komast
burt frá Islandi og læra meira. Var
búinn að fá gull- og platínu-plötur
með Sálinni, spila með Todmobile, í
Eurovision og gera eiginlega allt sem
mig langaði að gera. Eg skráði mig í
djasspíanóleik, en valdi síðan kvik-
myndatónlistarprógrammið sem er
gríðarlega fjölbreytt. Maður lærir
útsetningar, upptökur, vinnur með
tölvur og við tónsmíðar sem er mjög
hagkvæmt. Ég sá ekkert endilega
fram á að vinna við kvikmyndatón-
smíðar, en svo komst ég að því að
þetta var listform sem hentaði mér
mjög vel. Þegar ég hafði prófað það
einu sinni varð ekki aftur snúið.“
- Oggekk þér vel?
„Já, ég vann samkeppni um að
semja lag fyrir útskriftina í tilefni 50
ára afmælis skólans og fékk ein-
hverja heiðursorðu," segir Atli og
hlær við tilhugsunina.
Eftir Berklee fór Ath í meistara-
uám í kvikmyndatónlist í North Car-
olina School of the Arts sem er virtur
listaskóli.
„Þar kynntist ég David McHugh,
prófessornum mínum, sem hefur
haft gríðarlega áhrif á mig og mitt líf.
Hann byggði upp trúna hjá mér að
ég gæti gert hvað sem ég vildi, eins-
og það að koma mér áfram í Los
Angeles. Þangað til hafði mér eigin-
lega bara fundist það fjarlægur
draumur. En það eru engir þröskuld-
ar, maður býr þá bara til í hausnum."
Mike Post er gæðastimpill
Örlögin gripu svo í taumana þegar
Atli vann samkeppni um að fara í
starfskynningu hjá Mike Post.
„Þá hafði ég einhvem byrjunarreit
í Los Angeles og ég ákvað að flytja
hingað. Það hefur líka komið á dag-
inn að 80-90 % af þeim verkefnum
sem ég hef fengið, hafa komið í gegn-
„Maður þarf að líta á sig sem kvikmyndagerðarmann númer eitt og tónskáld númer tvö,“ segir Atli.
Það eru engir
þröskuldar
m*» rttnoMAN
mmtmm
MICMáli ruuu
mm
mxwtmsm
ttjjgýrm ívafAKf*
Bt'tsy MElfcS
twm*
JW.ttlHrMM.EK
IKNNS WU9W&
*vc*wr útt*MJL
MUMtK
tttMtmt KNKCN
bMMAUUA
B A O ©
as»
Veggspjald stuttmyndarinnar Bad Dog sem Atli samdi tónlistina við.
um Mike. Nú tveimur árum síðar
losnaði staða hjá honum og ég er aft-
ur byrjaður að vinna fyrir hann sem
er mjög mikilvægt skref fyrir mig.
Það skiptir mjög miklu máli að vinna
með þekktum nöfnum, og hann er
nokkurs konar gæðastimpill fryir
mig.“
Mike Post er með stærstu nöfnum
í sjónvarpstónlist í Hollywood, og
eru margir þættir sýndir á íslandi
sem hann hefm- samið tónlistina við,
einsog NYPD Blues, LA Law og Hill
Street Blues.
„Hann verður með fimm eða sex
sjónvarpsþætti í vetur, og gerir því
bara beinagrindina að tónlistinni og
við aðstoðarfólkið vinnum út frá því.
Ég verð í útsetningum og upp-
tökustjóm svona fyrsta árið og
kannski sem ég einhverja
bakgrunnstónlist, eins og ef atriði
gerist á veitingastað, eða eitthvað
slíkt. En vonast svo til að verða far-
inn að semja eftir eitt til tvö ár.“
í annarri vídd
- Hefur þá draumurinn ræst?
„Ég stefni að því að semja kvik-
myndatónlist, en mjög mörg virt
kvikmyndatónskáld hófu ferilinn í
sjónvarpi, og það er alveg frábært
tækifæri til að komast inn í brans-
ann. Og líka fín þjálfun því pressan
er svo mikil. Að semja tónlist er ekk-
ert öðruvísi en hvað annað. Eftir því
sem maður gerir meira af því, því
betri verður maður og getur unnið
hraðar.“
- Hver er aðalmunurinn á því að
semja fyrir sjónvarp eða kvikmynd?
„I rauninni gilda sömu megin-
reglur, jafnvel í auglýsingum. Maður
bætir við myndina sálfræðilegri dýpt
og undirstrikar það sem er að gerast
í myndinni en í annarri vídd. Sann-
leikurinn er sá að 90% af fólki tekur
ekki eftir tónlist í sjónvarpi og kvik-
myndum og á ekkert endilega að
gera það, því hún er hluti af kvik-
myndinni. Maður þarf að líta á sig
sem kvikmyndagerðarmann fyrst en
tónskáld númer tvö. Alveg eins og
með búningahönnun eða lýsingu. Allt
þarf að falla nákvæmlega að mynd-
inni. Einhverra hluta vegna er þetta
það sem mér finnstsvo skemmtilegt.
Ekkert gefur mér jafn mikið og að
taka atriði úr mynd og bæta við hana
tilfinningu sem er kannski til staðar
en auka við hana með því að semja
viðeigandi tónlist."
- Sum tónskáld vilja nú láta heyra
ísér...
„ Tónlist gegnir mismunandi hlut-
verkum í mismunandi myndum. Þeir
sem eru færastir í þessu geta sam-
einað hvort tveggja. Ná að uppfylla
allar þarfir myndarinnar, og láta
tónlistina sitja eftir í áhorfendunum,
án þess að draga til sín of mikla at-
hygli en þó stendur hún fyllilega fyr-
ir sínu upp á eigin spýtur. Það fannst
mér heppnast mjög vel í Schindler’s
List.“
Tónlistin hefúr
hlutverk í Bad Dog
- Hvemig kvikmyndir myndir þú
helst vilja semja tónlist við?
„Þessar mannlegu myndir sem eru
að verða vinsælli, einsog American
Beautyeða Shawshank Redemption.
Annars er ég hálfgert kameljón. Mér
finnst mjög gaman að gera allar teg-
undir af tónlist. Um daginn gerði ég
tónlist við hasarteiknimyndaþátt og
það var alveg rosalega skemmtileg.
Þetta er eiginlega einsog leikur eða
íþrótt, þar sem þarf að leysa þraut-
ina. Seinasta myndin sem ég vann
við var einmitt stuttmyndin Bad
Dog. Leikstjórinn Peter Freedman
var búinn að leita lengi að tónskáldi,
hlustaði á marga diska frá fullt af
tónskáldum, en hafði ekki fundið
hinn hreina tón. Það var sameigin-
legur vinur okkar sem benti honum á
mig. Hann var að leita að suður-
amerískri tónlist, jafnvel ítalskri, og
það vildi þannig til að ég hafði unnið
sjónvarpsþætti í fyrra með þannig
tónlist, sem var einmitt á mínum
diski.“
-Hvererhann?
„Hann hefur aðallega unnið sem
handitshöfundur í sjónvarpsþáttum
og þetta er hans fyrsta mynd. Þetta
er svona lítil sæt gamanmynd með
neyðarlegum húmor. Þetta var mjög
skemmtileg vinna, bæði að semja
tónlist í þessum stíl og svo fékk ég
tækifæri til að spila á harmonikku
sem mér finnst gaman að spreyta
mig á. Peter er mikill aðdáandi Enn-
io Morricone og Nino Rota og við
höfðum þá félaga til hliðsjónar. Best
var að Peter vildi að tónlistin léki
stórt hlutverk í myndinni og ég fékk
tækifæri til að gera nokkum veginn
það sem ég í rauninni vildi sem er
frekar óvenjulegt."
-Muntu vinna meira meðhonum?
,Álveg örugglega, þegar hann fer
að gera sínar næstu myndir. Þessi
mynd hefur gengið mjög vel víða og
vann m.a. Grand Jury Price í Hou-
ston Film Festival. Þetta er áreiðan-
lega ekki seinasta myndin sem hann
gerir.“
Að vinna sig upp
- Varstu að spila með Jessicu
Simpson?
„ Já, ég hef gert svolítið af því,
svona af og til. Það hefur verið fínt en
ég ætla að einbeita mér núna að
kvikmyndatónlistinni. Það var samt
æðislegt að fá þetta tækifæri. Þegar
ég var 15 ára var draumurinn hjá
mér að verða hljómborðsleikari hjá
frægum popp- og rokkstjörnum úti í
heimi. Og þegar þetta kemur upp af
tilviljun, fannst mér gaman að fá að3®"
uppfylla þann gamla draum. Það er
t.d. dálítið geggjuð upplifun að spila
á 60 þúsund manna leikvangi."
- En hvað tekur viðnúna?
„Fyrir utan vinnuna hjá Mike er
ég að leita að mínum eigin verkefn-
um, aðallega smærri óháðum mynd-
um til að fá sem mesta þjálfun. Hug-
myndin er að vinna sig upp, það er
eina leiðin. Maður fær 4 vikur til að
gera heila mynd sem gera um 45-60
mínútur af tónlist sem þarf að senya.
Þetta er allt spuming um hugarfar
og þjálfun. Þegar stóru kvikmynda-
verin eni að gera kvikmynd með
kostnaðaráætlun upp á hálf fjárlög
Islands, þá þarf maður að vera búinn
að sanna sig margoft til að fá það ”1"
verkefni. Ég vann við útsetningar
fyrir teiknimyndina Titan AE og
einnig Blue Streak með Martin
Lawrence, og þá er svo ofsaleg tíma-
pressa að það er heill hópur að vinna
við tónlistina. Þá myndast ákveðin
fæðukeðja og bara þeir efstu sem
komast á kreditlistann," segir Atli og
hlær. Það þarf greinilega að hafa
húmor fyrir bardaganum úti í Holly-
wood og það hefur hann.
simi 587 6080
Dúndrandi dansleikur
með hljómsveitinni
Sín.
Húsið opnað kl. 22.00. _