Morgunblaðið - 14.10.2000, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 14.10.2000, Blaðsíða 34
34 LAUGARDAGUR 14. OKTÓBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Morgunblaðið/Golli Guðríður Þóra Gísladóttir í hlutvcrki stúlkunnar. Skuggabaldrar og skrugguvaldar eru börn seni Óhræsið hefur náð valdi á. Óhræsinu komið fyrir kattarnef I dag verður frumsýnd í íslensku óperunni ný ópera fyrir börn og unglinga, Stúlkan í vitanum, eftir Þorkel Sigurbjörnsson við texta eftir Böðvar Guðmundsson. ÓPERAN er samin og sviðsett í tilefni af 50 ára afmæli Tónmenntaskóla Reykjavíkur og er uppfærslan samstarfsverkefni Islensku óp- erunnar, Tónmenntaskólans, Fræðslumið- stöðvar Reykjavíkur og Reykjavíkur - menn- ingarborgar Evrópu árið 2000. Skuggabaldrar og skrugguvaldar Meginefni verksins er sótt í sögu Jónasar Hallgrímssonar, Stúlkan í tuminum, en sögu- sviðið hefur verið fært til nútímans með markvissum hætti. í óperunni er söguhetjan ung stúlka sem byr hjá vinnuþjökuðum for- eldrum sínum í afskekktu vitavarðai-húsi og er oft ein heima. í einsemd sinni ráfar hún inn í gamla vitatuminn, en lendir þá í klóm Óhræs- isins, sem lagt hefur undir sig vitann ásamt hyski sínu, skuggaböldrum og skmgguvöld- um. Óhræsið reyndir jaft með fagurgala sem hótunum að telja stúlkuna á að slást í hópinn, en hún lætur ekki segjast. Með hjálp pilts, sem er einn af þrælum Óhræsisins, tekst henni að yfirbuga Óhræsið, koma því fyrir kattamef og frelsa skuggabaldrana og skrugguvaldana, sem í raun era krakkar á hennar aldri. Stjórnandi hljómsveitarinnar er tónskáldið Þorkell Sigurbjörnsson en hljómsveitina skipa nemendur og kennarar Tónmenntaskóla Reykjavíkur. Leikstjóri sýningarinnar er Hlín Agnarsdóttir. Leikmynd og búninga gerir Stígur Steinþórsson og lýsingu hannar Jóhann Bjami Pálmason. Með hlutverk stúlkunnar fara til skiptis Dóra Steinunn Ármannsdóttir og Guðríður Þóra Gíslasdóttir, og hlutverk piltsins ívar Helgason og Jökull Steinþórsson. Bergþór Pálsson er í hlutverki Óhræsisins. Börn úr Tónmenntaskóla Reykjavíkur syngja, leika og dansa hlutverk skuggabaldra og skragguvalda, alls 30 talsins en 15 taka þátt í sýningunni í senn. Aö sögn leikstjórans er þetta „hryllings- ópera fyrir böm“ sem verður bönnuð innan 9 ára. „Sennilega fyrsta bamaóperan sem er bönnuð bömum, “ segir óperastjórinn Bjami Daníelsson. Ástæðuna fyrir banninu segja þau vera að efnið sé ætlað stálpaðri börnum og því ástæðulaust að hvetja foreldra til að koma með lítil börn sín. „Óhræsið er eins konar glæpaforingi sem hefur safnað um sig hópi bama og unglinga sem hann lætur ræna fyrir sig og heldur þeim uppi í sukki og svalli allar nætur,“ segir Hlín leikstjóri. „Mér hefur fund- ist þetta fjalla um það öðram þræði hversu nauðsynlegt er að börn fái að vera börn eins lengi og þau þurfa á að halda; verða ekki full- orðin of snemma. Þetta er reyndar ekki hugs- að sem liður í foi-vamabaráttu gegn áfengi, eiturlyfjum og glæpum en meginþemað er eins og í öllum góðum ævintýram, baráttan milli góðs og ills. Þetta er engu að síður viðvör- un til allra ungmenna um að láta ekki ánetjast eða glepjast af fagurgala og skyndilausnum." Lengi í undirbúningi Stefán Edelstein, skólastjóri Tónmennta- skólans, segir þetta verkefni hafa verið í und- irbúningi nokkuð lengi. „Það era fimm ár síð- an hugmyndin að því fæddist að halda upp á 50 ára afmæli skólans með uppfærslu nýrrar barnaóperu. Ég leitaði eftir því við Þorkel og Böðvar að semja verkið og þeir tóku því vel. Böðvar hafði reyndar áður samið óperatexta fyrir okkur, Kalla og sælgætisgerðina eftir sögu Roalds Dahls, og Hjálmar H. Ragnars- son samdi tónlistina. Það var hins vegar alfar- ið hugmynd þeirra Þorkels og Böðvars að leita fanga í sögu Jónasar Hallgrímssonar og vinna úr henni á þennan skemmtilega hátt, “ segir Stefán. Hann segir samstarfið við íslensku óperuna hafa verið sérlega ánægjulegt og vel heppnað í alla staði. Undir þetta tekur Bjanri Daníelsson og bætir því við að Fræðslumiðstöð Reykja- víkur taki þátt í verkefninu með þeim hætti að bjóða öllum 11 ára (5. bekkjar) nemendum í Reykjavík á sýningar á óperanni. „Það verða 5 sýningar fyrir 11 ára bömin en óperan verður einnig sýnd á almennum sýningum á sunnu- dögum fram í nóvember. Við stefnum svo að því að verða með sérstaka hátíðarsýningu á degi íslenskrar tungu, 16. nóvember, sem er fæðingardagur Jónasar Hallgrímssonar. I allt era því fyrirhugaðar 11 sýningar á óperanni." Ekki fer á milli mála hvað Óhræsið stendur fyrir. Að afneita deginum og játast nóttinni er krafa Óhræsisins.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.