Morgunblaðið - 14.10.2000, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 14. OKTÓBER 2000 43
Nýtt offitugen
uppgötvað
[erúsaleni. AP.
Reuters
Offituvandinn, sem líkt hefur verid við faraldur á Vesturlöndum, er nú
tekinn að Iáta á sér kræla í Kína. Líkur á að unnt verði að þróa skilvirk
lyf gegn þessum vanda þykja fara ört vaxandi.
ÁSTRALSKIR vísindamenn hafa
greint nýtt gen sem stjómar matar-
lyst og segja sérfræðingar að þessi
uppgötvun kunni að leiða til þróunar
fyrsta lyfsins, sem byggt er á geni,
við offitu og sykursýki. Greg Collier,
prófessor í örverufræði við Deakin-
háskóla í Melbourne, uppgötvaði
genið þegar hann var að rannsaka
sykursýki í ísraelskum eyðimerkur-
rottum. Genið eykur matarlyst hjá
rottunum og er rottuafbrigði þess
nákvæmlega eins og afbrigðið í
mönnum.
Genið, sem Collier nefnir
„Beacon“ (Vitann), er þriðja genið
sem uppgötvast er tengist offitu. Hin
nefnast Leptín og NPy.
Sir George Alberti, forseti AI-
þjóðasykursýkisamtakanna, sagði að
lyf byggt á Beacon gæti orðið fáan-
legt fyrr en lyf sem byggja á hinum
genunum vegna þess að genin í rott-
um og fólki eru nákvæmlega eins.
Þýði þetta að rannsóknir vegna þró-
unar lyfsins taki skemmri tíma en
venjulega því niðurstöður rannsókna
á rottum eigi frekar við fólk.
„Þetta er ákaflega spennandi þró-
un. Þetta gæti verið mjög mikilvægt
skref hvað varðar offitu og syk-
ursýki," sagði Sir George.
Fitnuðu í nýju umhverfí
Collier og samstarfsfólk hans
fluttu sandrottur úr Negev-eyði-
mörkinni í ísrael í rannsóknarstofur
í Melboume til rannsókna á syk-
ursýki. I eyðimörkinni lifa rottumar
á kaktusum og vom mjóslegnar og
heilbrigðar. En í nýju umhverfi þar
sem nóg var af mat fóru sumar
þeirra að borða mikið, urðu feitar og
fengu sykursýki. Aðrar borðuðu
mátulega og voru áfram grannar.
Þetta varð til þess að vísinda-
mennirnir fóra að leita að arfbundn-
um mun. Þeir tóku heilana úr rottun-
um, rannsökuðu hvert einasta gen til
að komast að því hvort einhver væra
virkari í feitu rottunum og þá kom
Beacon-genið í ljós. Gen stjóma
myndun prótína sem frumur nota til
að starfa, gera við sig eða verja sig og
til að skipta sér. í feitu rottunum var
Beacon-genið ofvirkt og framleiddi
of mikið af lysthvetjandi prótíni.
Þegar tekist hafði að ráða lykil
gensins leituðu vísindamennimir að
samvarandi geni í gagnabanka á
Netinu og fundu gen úr maðki sem
hafði 81% samsvörun, að sögn dr.
Paul Zimmet, prófessors í sykursýki
við Monash-háskóla í Astralíu, en
hann tók þátt í rannsókninni.
Um 800 milljóna ára þróun skilja
að maðkinn og ísraelsku sandrott-
una, sagði Zimmet, og bætti við að
gen sem varðveitist að 81% í 800
milljónir ára hljóti að gegna veiga-
miklu hlutverki. Collier leitaði síðan í
upplýsingabönkum að mannagenum
er kynnu að samsvara rottugeninu
og kom samstætt gen í ljós í manna-
kjamsýra.
Beacon-genið framleiðir prótín
sem örvar matarlyst. NPy virkar á
sama hátt en Leptín heftir matar-
lyst. í sumum offitutilfellum bregst
líkaminn ekki við Leptíni.
Fitnuðu um 10% á viku
Collier framleiddi síðan prótínið
úr Beacon-geni úr mönnum og
sprautaði því í heila grönnu rottn-
anna sem höfðu eðlilega virkt gen.
Þær fitnuðu um 5% líkamsþyngdar
sinnar á einni viku. Þegar prótínum
úr bæði Beacon-geni og Npy-geni úr
mönnum var sprautað í rotturnar átu
þær enn meira og fitnuðu um 10%
þyngdar sinnar á viku.
Næsta skref, segir Collier, er að
prófa virkni hundraða efna á prótínið
til þess að gá hvort eitthvert efnanna
geti stöðvað virkni prótínsins. Era
vonir bundnar við að lyf geti komið
að gagni ef genið framleiðir of mikið
af prótíninu. Tilraunalyf yrðu síðan
prófuð á rottum áður en þau yrðu
gefin mönnum.
„Það getur vel verið að þetta sé
bara blaðra en þetta lítur mjög vel út
samanborið við leptin og NPy vegna
þess að dýrin era nákvæm eftirmynd
af offitu og sykursýki í fólki,“ sagði
Zimmet. Beacon-genið er að finna í
litningi 19. Greint verður frá upp-
götvuninni í tímaritinu Diabetes í
þessum mánuði.
Alþjdðleg
astmarannsdkn
Könnun
meðal
10 ára
barna
ÞESSA dagana er verið að
dreifa könnun á astma og of-
næmissjúkdómum til 10 ára
barna í öllum grunnskólum
Reykjavíkur, Kópavogs og
Garðabæjar. Könnunin er liður
í alþjóðlegri rannsókn á vegum
ISAAC, alþjóðlegrar rannsókn-
arstofnunar á astma og ofnæm-
issjúkdómum meðal barna.
Tíðni astma meðal islenskra
barna er enn ekki fullrannsök-
uð og af þeim sökum er ekki vit-
að hve stórt hlutfall þeirra þjá-
ist af þessum öndunarfæra-
sjúkdómi.
Erlendar rannsóknir hafa á
hinn bóginn leitt í ljós að tíðni
astma meðal bama hefur aukist
hröðum skrefum og allt að því
tvöfaldast í sumum löndum sl.
15 ár.
Aðild íslands að verkefninu
er talin afar mikilvæg. Ný
rannsókn meðal fullorðinna á
aldrinum 20 til 44 ára sýnir að
astmi er mun óalgengari hér á
landi en hjá sambærilegum ald-
urshópum erlendis.
Að verkefninu hér á landi
standa þeir Michael Clausen og
Sigurður Kristjánsson, sér-
fræðingar í ofnæmissjúkdóm-
um barna og unglinga, segir í
fréttatilkynningu.
Nýtt náttúrulyf, Modigen, komið á markað hér á landi
Sagt létta á depurð
og vægu þunglyndi
Varað við víxlverkunum við önnur lyf
Jóhannesaijurt í Grasgarðinum í Laugardal.
NÝTT náttúralyf, Modig-
en, kom á markað hér á
landi í vikunni. Lyfið er
unnið úr svonefndri jó-
hannesarjurt (Hypericum
perforatum) sem á enskri
tungu nefnist St. John’s
wort. Lyfið er sagt vinna
gegn vægu þunglyndi, dep-
urð og framtaksleysi og
rannsóknir hafa gefið til
kynna að aukaverkanir
þess séu mun minni en þær
sem fylgja notkun hefð-
bundinna geðlyfja. Á hinn
bóginn er varað við víxl-
verkunum við lyf sem
fylgja notkun Modigens.
Jóhannesarjurt vex víða
villt og hana er m.a. að finna í
Grasagarðinum í Laugardal. Um er
að ræða gamalþekkta lækningajurt.
Hún var m.a. notúð til að reka út illa
anda á miðöldum og menn höfðu
mikla trú á lækningamætti hennar.
Þá eiginleika átti hún að hafa öðlast
er blóð úr Jóhannesi skírara draup
yfir jurtina eftir að hann hafði verið
tekinn af lífi.
Fleiri náttúralyf en Modigen inni-
halda jóhannesarjurt.
Rannsóknir
Umtalsverðar rannsóknir hafa
farið fram á eiginleikum jurtarinnar
og Modigens sem unnið er úr henni.
„Ekkert náttúralyf í heimi hér hefur
verið rannsakað jafn vel og Modig-
en,“ segja þau Bjame Hellemann
sálfræðingur og Michelle Schjorr-
ing, sem starfar hjá danska fyrir-
tækinu Jemopharm, er framleiðir
lyfið. Þau benda ennfremur á að lyf-
ið hafi verið notað í Evrópu í ein
tuttugu ár og sérstaklega hafi Þjóð-
verjar tekið því fagnandi. Þar í landi
er notkun Modigens sjö sinnum
meiri en notkun Prozacs, þess vin-
sæla geðjöfnunarlyfs.
Modigen getur að sögn einnig
komið að notum í glímu við svefn-
leysi eða svefntraflanir og Michelle
Schjorring bætir við að það hafi ekki
ólíka verkun og melatónín, sem al-
gengt er orðið að menn noti á lengri
flugleiðum til að yfirvinna þreytu og
stilla af „líkamsklukkuna" eftir ferð
yfir mörg tímabelti.
„Við leggjum áherslu á að Modig-
en er ekki lyf sem unnið
getur á alvarlegu þung-
lyndi,“ segir Michelle
Schjorring. „Itarlegar
rannsóknir hafa hins
vegar sýnt fram á að lyf-
ið getur gagnast þeim
sem þjakaðir era af
vægu þunglyndi, fram-
taksleysi og depurð.“
Bjarne Hellemann, sem
rannsakað hefur virkni
lyfsins, tekur í sama
streng. Til séu dæmi um
að lyfið hafi hjálpað fólki
sem þjáist af alvarlegu
þunglyndi en slíkum
sjúklingum beri á hinn
bóginn að beina til sér-
fræðinga. Hins vegar gefi rannsókn-
ir til kynna að lyfið geri gagn í um
70% þeirra tilfella þar sem það þyk-
ir henta. Sú virkni sé sambærileg á
við þá sem þekkist þegar um hefð-
bundin lyf er að ræða.
Bjarne Hellemann segir að
Modigen virki líkt og Prozac og
sambærileg lyf að því marki að 2-3
vikur þurfi að jafnaði að liða áður en
sjúklingurinn verður var við breyt-
ingu á líðan sinni. Þekkt séu dæmi
um að menn hafi þurft að bíða leng-
ur áður en lyfið tók að virka. Hins
vegar sé Ijóst að þeir sjúklingar sem
ekki finna fyrir bata þurfi að leita
annarra úrræða. „Við leggjum ríka
áherslu á að menn ráðfæri sig við
lækni sinn,“ segir Bjarne Helle-
mann.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Michelle Schjorring og Bjarne Hellemann.
Þau Bjarne Hellemann og Mich-
elle Schjorring taka fram að slíkt
samráð sé nauðsynlegt en jafnframt
beri sjúklingum að greina læknum
sínum frá því noti þeir náttúralyf.
Einnig sé mikilvægt að læknar leiti
eftir upplýsingum um náttúralyfja-
notkun sjúklinga sinna áður en þeir
ávísa lyfjum.
Víxlverkanir
I tilfelli lyfja sem innihalda jó-
hannesarjurt er slíkt samráð talið
nauðsynlegt noti menn tiltekin önn-
ur lyf á sama tíma. Á heimasíðu
Lyfjanefndar ríkisins er að finna
upplýsingar um jóhannesarjurt og
svonefndar víxlverkanir við önnur
lyf. Þar er átt við að notkun náttúra-
lyfja sem innihalda efni úr jurt þess-
ari geti haft áhrif á önnur þau lyf
sem viðkomandi notar og þar með
þá meðferð sem hann hefur gengist
undir.
Á heimasíðunni segir m.a.: „Af
þessum sökum ætti ekki að taka
náttúrameðal sem inniheldur jó-
hannesarjurt samtímis meðferð með
warfaríni, ciklospóríni, digoxíni og
indínavír eða öðram próteasaheml-
um sem notaðir era við HlV-sýk-
ingu. Ennfremur ætti að gæta var-
úðar hjá sjúklingum sem taka
teófýllín, þunglyndislyf eða getnað-
arvarnatöflur."
Michelle Schjorring segir slíkar
vixlverkanir þekktar hvað Modigen
varðar enda sé viðvaranir í þá vera
að finna á umbúðum utan um lyfið.
Hún kveðst hins vegar ekki kannast
við að sífellt fleiri víxlverkanir við
lyf hafi komið fram hvað Modigen
varðar en á heimasíðu Lyfjanefndar
segir að með vaxandi notkun nátt-
úralyfja sem innihalda jóhannesar-
jurt hafi verið að koma í ljós fleiri og
fleiri vixlverkanir við þessi lyf. „Lyf-
ið er það mikið notað og hefur verið
notað svo lengi að við ættum að vita
það nú hefði lyfið víxlverkanir við
mjög algeng lyf,“ segir Bjarne
Hellemann. Þau bæta við að slíkar
hliðarverkanir við önnur lyf séu
einnig þekktar hvað hefðbundin
þunglyndislyf varðar.
TENGLAR
Heimasíóa Lyfjanefndar ríkisins:
www.lyfjanefnd.is/
Upplýsingar um Prozac og sam-
heitalyf: www.netdoktor.is/Iyf