Morgunblaðið - 14.10.2000, Síða 44
VIKU
LM
MORGUNBLAÐIÐ
'44
LAUGARDAGUR 14. OKTÓBER 2000
A
Visindavefur Háskóla Islands
Er hægt að búa til geislasverð?
VISINDI
Undanfarna viku hafa bæst á Vísinda-
vefinn svör við spurningum um plast,
lím, lykt, litabreytingar á steinum, tómarúm, bletta-
tígra á íslandi, líkamsrefsingar, sakavottorð, húsleit-
ir lögreglu, lengsta orð í heimi, uppruna körfu-
bolta, uppruna smokksins,
Bermúdaþríhyrninginn, fyrstu genin, skilgrein-
^ ingu á heimspeki, slembival, ummál jarðarinnar og sögu Ól-
ympíuleikanna.
Ekkert lát er á umferðinni á vefsetri Vísindavefsins og berast þessa
dagana um 20 spurningar á dag. Innsendar spurningar eru orðnar
rúmlega 3400 og birt svör á vefsetrinu eru að nálgast þúsundið. í
sumum þeirra er mörgum spurningum svarað í einu. Vísindavefurinn
er einmitt þessa dagana að þreifa sig áfram með skipuiegt samstarf
við grunnskóla ogframhaldsskóla. Byrjun þess starfs iofar góðu.
Netfang Vísindavefjarins er ritstjorn@visindavefur.hi.is og síma-
númerið 525-4765.
www.opinnhaskoli2000.hi.is
Er hægt að búa til
geislasverð?
Svar:
Það eru að minnsta kosti tveir
alvarlegir gallar á hugmyndinni
um „geislasverð" eins og hún
birtist okkur í vísindaskáldskap
og kvikmyndum, sem lýsandi
massalaust skurðarblað með
takmarkaðri lengd.
í fyrsta lagi þarf óhreinindi í
loftinu til að gera ljósgeisla sýni-
legan. Við skynjum geislann
vegna ljóseinda sem dreifast af
rykkornum út úr geislanum.
Sverð sem einungis er sýnilegt í
svarta þoku eða reykjarkófi veitir
handhafanum ekki það vald og
virðingu sem til stóð.
í öðru lagi hefur ljósgeisli ekki
endanlega lengd nema hann lendi
á ógegnsærri mótstöðu. Hér væri
orðið og hugtakið geislabyssa því
nærtækara.
Skæran ljósstaf af endanlegri
lengd getum við hinsvegar keypt í
næstu raftækjaverslun. Þá biðjum
við um flúrljósaperu. Hún hefur
alla eiginleika geislasverðs nema
massaleysið og skurðarhæfnina
og endingartíminn er stuttur ef
henni er beitt til höggs. Skamm-
lífari en minna brothætta ljósstafi
má stundum fá hjá götusölum á
útihátíðum. Þetta eru vökvafyllt
plaströr sem lýsa dauflega meðan
efnahvörf í vökvanum standa yfir
(e. chemiluminesence).
Á hinn bóginn er efnisskurður
með leysigeisla mikill iðnaður í dag
og algeng aðferð við uppskurði á
sjúkrahúsum. í flestum tilfellum er
þetta gert með ósýnilegum innrauð-
um leysigeislum með öldulengd á
bilinu 1-10 míkrómetrar. Undan-
tekningar eru aðgerðir á augnbotn-
um þar sem geislinn þarf að komast
inn úr ytri lögum augans án þess að
hafa áhrif á þau. Þar er notaður
leysir með öldulengd á sýnilega
sviðinu.
Við skurð með leysi er breiðum
geisla safnað í brennipunkt. Á
þröngu svæði í kringum
brennipunktinn er aflþéttleikinn
nægur til að hita skotmarkið svo að
það gufar upp. Annarsstaðar á
geislaleiðinni nægir aflþéttleikinn
ekki til skurðar heldur velgir aðeins
lítillega. Leysigeislanum er því beitt
til skurðar líkt og hnífsblaði sem að-
eins bítur á stuttum kafla við odd-
inn.
Ari Ólafsson
dósent í eðlisfræði við HI
Er húðin stærsta líffæri
mannslíkamans?
Svar:
Skilgreining á líffæri er: „hlutur
sem er samsettur úr tveim eða fleiri
mismunandi tegundum vefja, hefur
ákveðið hlutverk og þekkist á útliti
eða lögun sinni.“
Húðin er gerð úr mismunandi
vefjum og hefur ákveðið hlutverk og
þekkist vel á útliti sínu. Hún er
talin stærsta líffæri líkamans, að
minnsta kosti hvað varðar yfir-
borð og þyngd eða massa. I full-
orðnum manni er yfirborð húðar-
innar um 2 fermetrar og hún
vegur um það bil 5 kílógrömm.
Þetta er að meðaltali um 15% af
líkamsþunganum.
Þykkt húðarinnar er frá um
hálfum millimetra á augnlokunum
upp í 4 millimetra á hælþófanum.
Á flestum svæðum er hún þó um
1-2 millimetrar á þykkt. Líffærið
húð skiptist í tvo þætti, þunnt
hornlag (epidermis) sem er yst og
þykkari leðurhúð (dermis) sem
liggur undir hornlaginu. Þar und-
ir er svo fitulag sem ekki tilheyr-
ir húðinni.
Hornlagið er að mestu gert úr
þekjuvefsfrumum sem mynda efni
sem nefnist keratin. Keratínið er
teygjanlegir próteinþræðir sem
verja undirliggjandi hluta húðar-
innar gagnvart ýmsum efnum, ör-
verum og ekki síst vatni. Yst í
hornlaginu eru frumurnar dauðar,
flatar og samanpakkaðar og
mynda þannig mjög þétta og góða
vörn. Dýpra í hornlaginu eru
frumurnar sprelllifandi og skipta
sér stöðugt til að endurnýja ysta
dauða lagið sem flagnar stöðugt
af. Talið er að æviskeið slíkrar
húðfrumu frá því að hún skiptir
sér þar til hún flagnar af sé um
20-50 dagar. I hornlaginu eru
einnig frumur sem framleiða
brúna litarefnið melanin þegar
sólin skín á húðina. Hlutverk lit-
arefnisins er að verja kjarna
(erfðaefni) húðfrumanna gagnvart
útfjólubláu geislum sólarinnar.
Leðurhúðin er aðallega gerð úr
Konur fengu hvorki að taka þátt
í hinum fomu Ólympíuleikum né
horfa á atburðina, fyrir utan
eina konu sem gegndi nokkurs
konar prestsembætti.
bandvef. Þar eru einnig tauga-
endar, æðar, smágerðir vöðvar,
svita- og fítukirtlar og hársekkir.
Húðin er mjög teygjanleg eins
og best sést á ófrískum konum og
fólki með mikla undirhúðarfitu.
Hlutverk líffærisins húðar eru
margvísleg og er þar helst að
nefna vöm gagnvart ýmsum utan-
aðkomandi áreitum. Þar hjálpa
fitukirtlar til með því að framleiða
fituefni sem halda húðinni fitugri
og mjúkri þannig að hún hrindi frá
sér vatni. I fituefninu eru einnig
bakteríudrepandi efni. Varnarþátt-
ur húðarinnar kemur best í ljós
þegar húðina vantar, þó ekki sé
nema á litlu svæði (sár). Þá er mik-
il hætta á að bakteríur komist í
gegn og valdi sýkingu.
I húðinni er mikið af taugaend-
um þannig að hún er okkar aðal-
skynjunarlíffæri eða skynfæri. Ef
þessa skynjun vantaði værum við
meðal annars ófær um að hreyfa
okkur. Húðin er einnig hitastjórn-
unarlíffæri. Ef okkur er of heitt
beinum við heitu blóðinu út í æða-
kerfi leðurhúðarinnar og aukum
framleiðslu svitakirtla þannig að
húðin verði vel rök. Svitinn gufar
síðan upp af hinu geysimikla yfir-
borði sem líffærið hefur og við það
kólnar húðin og kælir blóðið. Að
lokum má nefna að í húðinni er
framleitt efni sem með aðstoð sól-
arljóss er breytt í D-vítamín.
Af framansögðu má sjá að líf-
færið húðin er gert úr nokkrum
tegundum vefja, gegnir mikilvæg-
um sérhæfðum hlutverkum og er
auðþekkjanlegt á útlitinu.
Stefán B. Sigurðsson
prófessor í lífeðiisfræði við HI
Hvenær voru fyrstu
Ólympíuleikarnir haldnir
og hvers vegna? í hvaða
íþróttum var keppt?
Svar:
Ólympíuleikarnir eru grískir að
uppruna og voru meðai fjögurra
stórra íþróttakappleikja sam
haldnir voru reglubundið í Grikk-
landi til fprna. Elsti skráði sigur-
vegari á Ólympíuleikum er kokk-
urinn Kóróbeus frá Elís, sem vann
kapphlaup árið 776 fyrir Krist. Al-
mennt er talið að þá hafi leikarnir
verið hið minnsta 500 ára.
1887 hefur baróninn Pierre de
Coubertin, þá 24 ára gamall, bar-
áttu sína fyrir endurvakningu Ól-
ympíuleikanna. Á alþjóðaráðstefnu
1894 var ákveðið að hrinda hug-
mynd hans í framkvæmd og Al-
þjóða Ólympíuráðið var stofnað.
Fyrstu Olympíuleikar nútímans
voru síðan haldnir í Aþenu 1896
með þátttöku 300 keppenda frá 13
þjóðlöndum.
Ólympíuleikarnir voru þekktast-
ir þeirra kappleikja sem fram fóru
í Grikklandi til forna. Þeir voru
haldnir á fjögurra ára fresti og
skipuðu svo veigamikinn sess í
Grikklandi að tímatal var miðað
við þá og 1 Ólympíad leið á milli
leika.
í hinum fornu Ólympíuleikum
var framan af, að því er virðist,
aðeins keppt í einni grein, kapp-
Bakverkinn burt
Forvarnir á vinnustaðn-
um eru lykilatriði!
NÝLEG könnun
í löndum
Evrópusam-
bandsins sýnir
að tæplega
fjórðungur
starfsmanna er
fjarverandi ár-
lega vegna at-
vinnutengdrar
vanheilsu og að
alls tapast um 600 milljónir
vinnudaga á ári þess vegna. Al-
gengustu vinnutengdu óþægindin
eru bakverkir, streita og vöðva-
verkir í hand- og fótleggjum. Al-
gengt er að starfsmenn vinni við
slæmar vinnuaðstæður sem fela í
sér óheppilegt álag, t.d. síendur-
teknar vinnuhreyfingar, mikinn
vinnuhraða, óþægilegar vinnu-
stellingar, einhæfa vinnu með
stuttum vinnuferlum og að hand-
leika þungar byrðar. Island var
ekki aðili að framangreindri
könnun en ekki er nein ástæða til
að ætla að ástandið hérlendis sé
betra en í grannlöndunum.
Mönnum er orðið ljóst að vel-
gengni fyrirtækja og samfélagsleg
velmegun í framtíðinni mun byggjast
á því að fyrirtæki hafi heilbrigt,
áhugasamt og vel þjálfað starfsfólk.
En hvernig er forvamarstarfi fyrir-
tækja háttað hérlendis, hvað er í
vændum og að hverju er að hyggja?
Innra vinnuverndar-
starf fyrirtækja
Samkvæmt lögum um aðbúnað,
hollustuhætti og öryggi (nr. 46/1980)
ber atvinnurekanda skylda til að
tryggja öruggt og heilsusamlegt
vinnuumhverfi starfsmanna sinna.
Þó atvinnurekandinn beri ábyrgð á
vinnuumhverfinu er gert ráð fyrir
því að náið samstarf sé milli stjóm-
enda og starfsmanna um að skapa
góðar vinnuaðstæður.
Á næstunni er að vænta breytinga
á framangreindum lögum sem fela
m.a. í sér skýrari ákvæði en áður um
að markvisst skuli unnið að forvöm-
um. Ný lagaákvæði munu gera at-
vinnurekanda skylt að gera skriflegt
mat á áhættuþáttum í vinnuum-
hverfinu og áætlun um forvarnir í
samráði við fulltrúa starfsmanna.
Breytingar þessar byggjast á
rammatilskipun Evrópusambands-
ins nr. 89/391 um lögleiðingu ráðstaf-
ana er stuðla að bættu öryggi og
heilsu starfsmanna á vinnustöðum.
Markvissar forvarnir
innan fyrirtækja
Fyrirkomulag innra vinnuvernd-
arstarfs hlýtur að sjálfsögðu að ráð-
ast nokkuð af stærð vinnustaðarins.
Eftirfarandi gildir þó alltaf:
• Vinnuvemdarstarfið þarf að
fléttast inn í daglegt starf fyrirtækis-
ins.
• Sýnilegur stuðningur stjóm-
enda við vinnuverndarstarfið er mik-
ilvægur.
• Hlutaðeigandi starfsmenn
þurfa alltaf að taka virkan þátt í um-
bótastarfinu.
• Vinna þarf á markvissan hátt til
að starfið skili árangri.
Kortleggja þarf vinnuumhverfið
til að greina helstu áhættuþætti sem
kunna að vera til staðar en vanda-
Við erum að gera vinnuumhverfismat. Hvað leggur þú til?
málin geta verið afar ólík eftir því um
hvers konar vinnustað er að ræða -
af líkamlegum, andlegum eða félags-
legum toga. Þegar búið er að greina
og meta áhætturnar er næsta skref
að gera áætlun um úrbætur og til-
greina bæði hvenær úrbótum skuli
lokið og ábyrgðannann verksins.
Eftir að úrbótum er Iokið er nauð-
synlegt að fylgjast með hvemig til
hefur tekist. Því reynslan hefur sýnt
að oft þarf að gera minni háttar lag-
færingar eftir á til að tryggja full-
nægjandi árangur náist.
Á vinnustöðum þar sem starfa 10
eða fleiri er það formlegt hlutverk
öryggistrúnaðarmanna og -varða að
vinna að því að skapa gott vinnuum-
hverfi á vinnustaðnum. I sumum til-
vikum getur reynst nauðsynlegt að