Morgunblaðið - 14.10.2000, Blaðsíða 65
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUÍl 14. OKTÓBÉR 2000 65
UMRÆÐAN
Skólatorg efli samskipti
foreldra og skóla
FJOLMORG stór-
fyrirtæki verja um-
talsverðum fjármun-
um árlega til stuðnings
líknar- og menningar-
starfsemi af ýmsu tagi.
Að mínu mati hefur
sjónum of sjaldan ver-
ið beint að stuðningi
við grunnmenntun í
landinu. Vel má vera
að skýringarinnar sé
að leita í þeirri stað-
reynd að hún skal
kostuð af opinberu fé
og hafa sumir haft
horn í síðu stuðnings
einkaaðila á þessu
sviði. Skólatorgið sýn-
ir glöggt að slíkan stuðning er hægt
að veita svo öllum verði til góðs.
Gjöf einkaaðila
Á síðasta ári var ákveðið að upp-
lýsingatækni í íslenskum grunn-
skólum yrði helsta styrktarverkefni
ársins 2000 hjá Tæknivali. Enn-
fremur var ákveðið að meginfram-
lag Tæknivals yrði fólgið í einu
stóru verkefni sem um munaði fyrir
íslenska grunnskólann í stað þess
að dreifa fjármagni til margra
stuðningsverkefna á sviði upplýs-
ingatækni. Þetta verkefni er Skóla-
torgið sem Tæknival færði öllum ís-
lenskum grunnskólum að gjöf á
þessu hausti.
Skólatorgið er vefútgáfukerfí og
þjónustuvefur til að efla samskipti
og miðla upplýsingum í nútíma
skólasamfélagi. Skóla-
torgið hefur verið í
þróun hjá okkur í eitt
ár. Það er framlag
okkar til að auka veg
upplýsingatækninnar í
skólastarfi og bæta
samskipti heimila og
skóla. Selásskóli er
þróunarskóli Skóla-
torgsins og íslenska
menntanetið hjá Skýrr
hýsir vefkerfið. Þessir
þrír aðilar mynda
stjórn Skólatorgsins.
Þorbjörg St. Þor-
Ámi steinsdóttir er verk-
Sigfússon efnastjóri Tæknivals í
þróun Skólatorgsins
og Davíð Einarsson vefstjóri hefur
verið nánasti samstarfsmaður
hennar. Þá unnu Gunnar Salvars-
son, Páll Kjartansson og ýmsir aðr-
ir áhugamenn um skólamál hjá fyr-
irtækinu ötullega að verkefninu.
Samskiptakostir
Skólatorgsins
í augum margra er Netið fyrst og
fremst hafsjór upplýsinga í formi
milljóna vefsíðna sem geyma efni af
ýmsu tagi. Hluti af Skólatorginu,
svokallaður þjónustuvefur á
www.skolatorg.is, er slík upplýs-
ingaveita um fjölmargt sem lýtur að
menntun og skólastarfi og verður í
ritstjórn Menntasmiðju Kennara-
háskóla íslands. Á hinn hluta Skóla-
torgsins, vefútgáfukerfið, vil ég sér-
staklega benda. í þeim hluta er ekki
Nám
Öllum íslenskum
grunnskólum, segír
Árni Sigfússon, gefst
nú kostur á að nýta sér
þennan nýja miðil.
aðeins horft til þess að notendur
sæki margvíslegar upplýsingar um
skóla- og bekkjarstarfið, eða starf-
semi foreldrafélagsins. Þar eru
samskiptakostir Netsins nýttir en
þeim hefur hingað til verið gefinn
minni gaumur en upplýsingaþættin-
um.
Mun þáttur feðra í
skólastarfi aukast?
Árum saman hefur verið rætt um
nauðsyn þess að styrkja sambandið
milli heimila og skóla. Bæði kennar-
[
BEBECAR
Barnavagnar
Hlíðasmára 17
s. 564 6610
ar og foreldrar hafa verið óánægðir
með þau oft á tíðum fátæklegu sam-
skipti sem hafa verið á milli þessara
lykilaðila í lífi barna á grunnskóla-
aldri. Ég er sannfærður um að
kennarar og foreldrar fá með
Skólatorginu tæki upp í hendurnar
til að styrkja tengslin með velferð
nemendanna í huga.
í framhaldi af opnun Skólatorgs-
ins í Selásskóla í síðasta mánuði
ræddu tveir skólamenn við mig um
mögulegar breytingar sem tölvu-
vætt Skólatorg skapaði. Ég hafði
minnst á það í ávarpsorðum mínum
við afhendingu Skólatorgsins að
þátttaka mín í þessu verkefni, sem
forsvarsmaður Tæknivals, væri að
vissu leyti eigingjörn. Ég sá tæki-
færi til að hafa samband af vinnu-
stað, í gegnum Netið, beint við
skóla barnanna minna, geta fylgst
með verkefnum þeirra, komið skila-
boðum beint til kennara og verið
þannig virkari þátttakandi í skóla-
starfinu. Hugleiðingar þessara
tveggja mætu manna gengu út á að
nú væri líklegt að feður fengju al-
mennari áhuga á daglegum verk-
efnum barna sinna í skólastarfinu,
þegar þeir gætu nýtt tölvuna tií
þess, í vinnu eða heima. Vonandi
reynast þær vangaveltur réttar. ^
Þátttaka okkar feðra í skólastarfi er
almennt takmarkaðri en mæðra.
Það sést á þátttöku í náms-
kynningum eða öðrum foreldrasam-
komum í skólanum. Hér er tækifæri
til að bæta um betur. Málstaðurinn
er verðugur.
50 grurmskólar þegar
komnir af stað
Skólatorgið er barn síns tíma,
barn upplýsingatækninnar. Öllum
íslenskum grunnskólum gefst nú
kostur á að nýta sér þennan nýja
miðil til að efla upplýsingatækni í **
skólastarfi og skapa traustara sam-
band við foreldra um velferð bama.
Nú hafa yfir 50 grunnskólar hafið
vinnu við.Skólatorgið. Það er mun
skjótari árangur en vænst var í
upphafi. Þessar góðu viðtökur við
Skólatorginu sýna að skólamenn
kunna að meta þetta mikilvæga
tæki og leggja áherslu á að foreldr-
ar nái með því auknu samstarfí við
skóla barna sinna. Tæknival væntir
þess að Skólatorgið marki heilla-
dijúgt spor í íslenska skólasögu.
Höfundur er framkvæmdastjóri
Tæknivals og fyrrverandi formaður
Fræðsluráðs Reykjavíkur.
Eru vandamál á toppnum?
Ofnæmi, flasa, exem, psoriasis, feitur eða þurr hársvörður?
mammsmimsi
JurtaQull
Hárvörur leysa vandann
OG ÞÚ BLÓMSTRAR.
UTSOLUSTAÐIR: HEILSUVORUVERSLANIR OG APOTEK UM ALLT LAND.
Fyrir 100 árum komust ekki eins mörg börn á legg og nú. Þar áttu barnasjúkdómar stóran hlut
að máli. Þótt þeir séu ekki allir lífshættulegir, geta þeir orðið mjög alvariegir. Því er vissara að
bólusetja börnin. Bólusetning eykur lífslíkur þeirra - það er aiveg Ijóst.
Lyf skipta sköpum!
77/ loka októbermánaðar verður nýjasta viðbót
Breiðvarpsins, 6 norrænar stöðvar, íopinni
dagskrá hjá þeim sem tengdir eru breiðbandinu.
Samtök verslunarinnar, sími: 588 8910
Fræðsluhópur lyfjafyrirtækja
i|»
Allar þessar stoðvar eru þekktarfyrir vandað
afþreyingar-, iþrótta- og menningairefni og
erufrábær kosturfyrir alla þá sem viljafylgjast
með frændum vorum á Norðurlöndunum.
lllf
Austurbakki hf. • Delta hf. • Farmasía ehf. • Glaxo Weilcome ehf. • Gróco ehf. • ísfarm ehf • Lyfjaverslun fslands hf.
Medico ehf. • NM Pharma ehf. • Omega Farma ehf. • Pharmaco hf. • Thorarensen Lyf ehf.
MK
' Tenging við breiðbandið er tenging við txkifxri!