Skírnir

Volume

Skírnir - 01.08.1907, Page 20

Skírnir - 01.08.1907, Page 20
212 Jafnaðarstefnan. legt: konur, börn og f jármunir, a ð barnauppeldi verði ríkismál o. fl. Plató vill láta í hvívetna meta ríkið, þjóð- félagsheildina, meira en einstaklinginn. Henni beri hon- um að lúta í hvívetna. Frá sjónarhóli vorra tima, virð- ist Plató yfirleitt gera nokkuð lítið úr manngildi einstakl- inganna. Hann gerir þá í raun og veru að skynlausum verkfærum í hendi ríkisins og telur ríkið vera »lokaða heild, er hafi tilgang sinn fólginn í sér sjálfu«. Nokkuð sviplíkt ástandinu á Grikklandi um daga Platós var ástandið á Bretlandi á 16. öld, á ríkisstjórnar- árum Hinriks 8. Ohemju-auðsafn á aðra hönd, en ömur- leg örbirgð á hina, svo að til stórvandræða horfði, því að gremjan meðal alþýðu var svo rík orðin, að við mátti búast, að þá og þegar slægi öllu í bál og brand. En þá reis upp maður, ekki úr hóp öreiganna, heldur einhver mesti höfðingi landsins, kanzlari sjálfs konungsins, T ó m a s Morus, — og geristtalsmaður öreiganna. Tómas Morus var orðlagður stjórnvitringur um alla Norðurálfu, svo að nærri má geta, að dómar hans og nýmæli þau, er hann flutti, þættu tíðindum sæta. Tómas Morus telur eigi á tvennu leika um það, að vandræðin og misskiftingin á mannanna kjörum eigi rót sína að rekja til þjóðfélagsskipunarinnar, og að mestur vargur í véum sé einkaeignin. Rit hans um þau efni er alt í samræðum, eins og Gylfaginning. Spurull ferðalangur hittir á förnum vegi vitringinn Raphael og fær fræðslu hjá honum. Raphael tætir í sundur félagsskipun samtíð- ar sinnar og fræðir svo ferðalang á, hvernig ríkisskipun- in eigi að vera að réttu lagi. Hann hugsar sér ey eina á suðurhnetti jarðar, þar sem fyrirmyndarríki er á stofn sett. Eyin heitir Útopía (það er grískt orð, sem þýðir »hvergi«) og ber rit höf. nafn af eynni. Þar eru 54 borg- ir og hafast 6000 fjölskyldur við í hverri borg. E i n k a- eign er þar óþekt hugtak. Aðalboðorðin eru svo þessi: Framleiðsla öll á að fara fram í íélagi; afneyzla öll sé og sameiginleg. Fram- leiddum afurðum skal safna í stóreflis-ríkisforðabúr. Hver

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.