Skírnir - 01.08.1907, Blaðsíða 96
.288
Erlend tíðindi.
Apríl 15. Hefst brezk n/lenduríkjaráðstefna í Lundúnura.
Lokið 14. maí.
Maí 14. Hefst ráðstefna rússneskra byltingamanna í Lundún-
um. Spænsku konungshjónunum fæðist sonur, frumgetinn (prinz
af Astúríu).
13. Stórþingið norska gerir bygðamál (landsmál) að skyldu-
námsgrein stúdentsefna.
22. Þingrof i Lissabon. Franco yfirráðgjafi gerist alræðismaður.
24. Þing sett á Finnlandi.
28. Jóhann Albrecht, hertogi í Mecklenborg, kjörinn lands-
stjóri í Brúnsvík.
Júní 10. Oraníulyðlenda í S.-Afríku fær stjórnarskrá. Byrj-
ar bifreiðarkappakstur frá Peking til Pétursborgar. Borghése prinz,
ítalskur, varð hlutskarpastur; kom til Parísar 10. ágúst.
14. Stórþingið norska lögleiðir kosningarrétt kvenna
15. Friðarþing hefst í Haag.
J ú 1 í 8. Andast Sophus Bugge, mikill norrænufræðingur, í
Kristjaníu, 74 ára.
14. Loftfarið Patrie sýnir list sína á þjóðhátíð Frakka í París,
hið fyrsta, er lætur vel að stjórn.
19. Keisarinn í Kóreu látinn veltast úr völdum,
32. Gufuskipin Columbía og San Pedro rekast á við Kalí-
forníustrendur. Columbía sökk og 69 manns druknuðu.
Á g ú s t 3. Rockefeller steinolíukongur dæmdur í Chicago f
29j/4 milj. dollara útlát fyrir fjársvik.
Vilhjálmur og Nikulás lteisarar eiga með sér stefnulag úti
fyrir Swinemiinde.
4. Frönsk herskip skjóta á Casa Blanca í Marokkó.
10. Hefst alþjóðafundur í- Cambridge á Englandi um tungu-
málið esperanto (dr. Zamenhofs).
29. Brotnar brú á St. Lawrence-elfi og tynast 70verkamenn.
S e p t. 4. Andast Edvard Grieg, norskt tónskáld heimsfrægt
63 ára.
11. Skemtiskip Rússakeisara, Standart, ber upp á sker við
Finnlands strendur. Keisari og fólk hans bjargast.
27. Gufuskipið LÚ8Ítanía, enskt, lykur ferð austur um Atlanz-
haf, frá New York til Queenstown á írlandi, á 5 sólarhringum 4
mín. og 19 sek. B. J.