Skírnir - 01.08.1907, Page 62
254
Alexander Petöfi.
klæði mitt. Hræsnin er auðveld íþrótt og henni getur
hver lubbinn brugðið fyrir sig, en að tala hispurslaust og
breinskilnislega úr djúpi sálarinnar, það geta ekki og það
áræða ekki nema drenglynd hjörtu«.
Af Júlíu, ekkju Petöfi, er það að segja, að þegar liðið
var framt að þremur árum frá bvarfi hans og full vissa
þótti fengin um dauða hans, þá giftist hún öðrum manni,
háskólakennara einum í B u d a-P e s t; bæði hún og Sán-
dor eru fyrir margt löngu dáin. Standmynd Petöfi af
eiri gjör var afhjúpuð í B u d a-P e s t með miklum veg
og viðhöfn 15. okt. 1882 og stendur hún'á stóru auðu
svæði fyrir framan eina af kirkjum borgarinnar.
Eins og nærri má geta, er Petöfi í mestu afhaldi hjá
Magýörum sjálfum. í þeirra bókmentum reis liann fyrst-
ur mót liinni gömlu »klassisku« stefnu, sem ríkt hafði í
skáldskap þeirra að undanförnu. Hann var þar á móti
frumiegt og sannarlegt náttúruskáld og í stað þess skáld-
skapar, sem bundinn hafði verið við kaldar og þvingandi
reglur, kom hann þjóðljóðakveðskapnum (Volkslied) i
öndvegi og orti eftir engum öðrum reglum en þeim, sem
gáfan skapar sér sjálf. í samanburði við hið eldra var
h a n s skáldskapur eins og veltandi straumur í leysing á
vordegi. Hann sameinaði það, að vera »realisti« og hug-
sjónaríkur (idealisti) um leið. Alt hjá honum, jafnt lýs-
ingar á • lægsta hversdags lífi og hæsta hugsjónaflug var
svo ljóst og einfalt, náttúrlegt og alþýðlegt, að það átti
við alla og hreif alla. Sjálfur var hann svo sannur
Magýari sem fremst má verða, því í honum bjó á hæsta
stigi það, sem bezt er og einkennilegast í þjóðlyndi þeii'ra,
eldlegt fjör og guðmóður, leikandi gamansemi samtvinnuð
við alvöru og þunglyndi, göfugur þjóðmetnaður og óhemj-
andi frelsishugur; þetta alt fann þjóðin í skáldskap Petöfi
og þar þekti hún sig sjálfa. í ljóðum hans á hún trúa
spegilmynd sjálfrar sín.
Sýnishorn þau af ljóðagerð Petöfi, sem hér fara á eft-
ir, eru þýðingar eftir þýzkum þýðingum úr frummálinu,
en það munu vera um fimtíu þýzkir þýðarar, sem fengist