Skírnir - 01.08.1907, Blaðsíða 83
Ritdómar.
275
góðan vin, sem kinni að meta kosti þjóðarinnar og umbera bresti
hennar. Hve hrifinn höf. er af Islandi, sjest á því, sem honum
dettur í hug, þegar hann er heim kominn og situr við skrifborð
sitt í Torgau: »Þá vaknar hjá mjer,« segir hann, »öflug endur-
minning um hinn fegursta tíma æfi minnar; hæsta stig hennar er
ferð mín til hinnar fjarlægu eijar, sem gnæfir með hvítan jökul-
hjálm við sólroðin skí, lauguð af brimöldum úthafsins.« Ef nokk-
uð má að bókinni finna, þá er það helst það, að ást höf. á landi
og þjóð gerir hann stundum of bjartsínan.
Einstaka villur koma firir, enu þær eru furðu fáar. T. a.
m. er það ekki rjett, sem höf. segir (I, 136. bls.), að kveunhúfan
íslenska með skúfnum eigi Sigurði málara Guðmundssini tilveru
sína að þakka. Nafnið Alsei (a einni af Yestmannaeijum) getur
ekki þítt »seilinsel« (I 37*) heldur er að líkindum Alfsei hið
rótta nafn eijarinnar (Þorv. Thoroddsen, Lísing íslands, Kb. 1907,
121. bls.). Að vísu er hún nefnd 'i>Alsey{( í Isl. Fornbrjefasafni
III 190. bls., eun það er ekki að marka, því að handritið, sem
preutað er eftir, er ekki eldra enn frá birjun 17. aldar. Dr. Val-
tyr Guðmundsson var ekki foringi andstæðinga í mótspirnu þeirra
móti símalagniugunni 1905 (I 292. bls.). Ekki mun það heldur
rjett, sem segir (I 162. bls.), að Náttúrugripasafninu hafi veriö
minni rækt sfnd, síðan Benedikt Gröndal gekk úr stjórn þess.
Ónákvæmt er það og, að lögrétta og dómar hafi á þjóðveldistím-
anum haft sæti á lögbergi (I 305. bls.), enda er sá misgáningur
leiðrjettur síðar á sömu bls. Þorgrímur læknir (Þórðarson) er
nefndur Þórður (II 148. bls.). íslensk mannanöfn og örnefni eru
víðast hvar rétt prentuð, og sömuleiðis önnur íslensk orð, og eigum
vjer því ekki að venjast í útlendum bókum. Þó hef jeg rekist á
nokkrar prentvillur, og eru þessar hinar helstu: I 149 27 les
Echinococcus, sullur; 263 24 1. heitir; 268 13 1. shil; 279 2 1. þrœla■
straumur; II 6 81 1. Óþerrishola; 74 30 1. falljöhull; 137 21 1. að
sœkja að; 158 2 og 174 80 1. Suður-; 16426 1. þvottáreyjar.
Bókin er ágætlega úr garði gerð að öllum frágangi og prídd
fögrum myndum; eru sumar þeirra teknar eftir eldri ritum, eink-
nm D. Bruun’s, enn sumar nýjar. B. M. Ö,