Skírnir - 01.08.1907, Blaðsíða 39
J afnaðarstef nan.
231
istóreignamanna. Eina hugsanleg úrlausn þessa máls er,
.að framleiðslutækin verði þjóðareign. Keppum að því!
Frá Þýzkalandi færðust siðan verkmannafélög á
grundvelli Marx- kenningarinnar til annarra landa. Barátt-
an er ekki alstaðar með sama sniði. I henni koma fram
■ólíkar lyndiseinkunnir þjóðanna. Frakkar eru ákafamenn.
Englendingar stiltari og ihaldssamari o. s. frv. Verk-
mannaflokkurinn þar á Bretlandi hefir á þingi verið milli
flokka, hefir verið tungan á metunum, svo að þeim flokk-
inum, er verkamenn hafa veitt lið, hefir oftar veitt betur-
Flokkarnir báðir hafa því litið verkamenn hýru auga
•og viljað sem mest fyrir þá gera, svo að vinátta héldist.
Nú við síðustu ráðuneytisskifti varð meira að segja einn
verkamaður ráðgjafl (John Burns).
Fyrsti þáttur verkmannahreyflngarinnar var stofnun
Internationale og Lassalles-félagsins; annar þáttur sam-
þyktin á Erfurtarþinginu. En þriðji þátturinn hefst með
tilraunum þeim, er gerðar voru til að koma á ný á sam-
vinnu milli verkmannafélaganna yfirleitt um öll lönd.
Það hafði borið við áður, að vinnuveitendur höfðu náð í
.útlenda verkamenn, þegar þeirra eigin verkamenn gerðu
verkfall. Til þess að sporna við þessu þótti óhjákvæmi-
legt, að koma sambandi á milli verkamanna um öll lönd.
Fyrsta heimsþing jafnaðarmanna var haldið í París
1889, meðan stóð á heimssýningunni. Þai' styrktist sam-
vinnuhugurinn mjög. Nú eru árlega haldin alþjóðaþing
jafnaðarmanna. Sambandið landa í milli verður æ styrk-
vara, og verkamenn um lönd öll standa nú saman eins og
mikill og breiður veggur, ægilegur og ekki líklegur til að
falla í fljótu bragði.
Markmiðið, sem kept er að, er þetta:
1) öll framleiðslutæki skulu gerð að þjóðareign.
2) Atvinnuvegir allir skulu reknir fyrir reikning
þjóðfélagsins eða verkmanna þeirra, er eiga þátt í fram-
leiðslunni.
3) Einstaklingum skal b a n n a ð að reka atvinnu
fyrir eigin reikning.