Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.08.1907, Side 40

Skírnir - 01.08.1907, Side 40
232 Jafnaðarstefnan. 4) Allar nauðsynjavörur, sem framleiddiar eru meA sameiginlegri vinnu, skulu vera þjóðareign. A leiðinni að þessu markmiði eru allir jafnaðarmenn á vorum dögum. En í daglegum stjórnmálaafskifum hafa þeir hentugleikastefnuna. Þeir þiggja litið heldur en ekki neitt, — fara fót fyrir fót heldur en að standa í stað. Þeir reyna að nota þingræðið til að bæta þjóðfélagskjör verkmanna með lögum — og verkmannafélög til að bæta efnaliaginn, en þau hafa risið upp í hverri atvinnugrein og keppa að því að fá hærra kaup, styttri vinnutima og rnargt fleira. Á 11 a stunda vinnu, á 11 a stunda tóm frá vinnu,. á 11 a stunda hvíld telja jafnaðarmenn hina einu réttu, skifting sólarhringsins. Þessi orð hafa þeii rist á sinn rauða fána og veifa honum hátt fyrsta dag maímánaðar ár hvert í öllum löndum. Þann dag safna þeir liði og fara í skrúðgöngu um stræti stórborganna »með básúnuhljóro og bumbuslætti«. Þá getur að líta herjans fylking skipa sér undir merki jafnaðarmanna, unga og gamla, konur og karla. Þótt eigi sé farið til stærri borgar en Kaupmanna- hafnar, þá er það mikilfengleg og fróðleg sjón, að sjá þá miklu mergð, sem þrammar eftir strætum borgarinnar þann dag. Þar getur að líta tvent og þrent ólíkt og fleira þó: aldraða vinnujálka bogna i baki eftir sífelt strit langa. æfi með kúgun og kvöl skínandi út úr sljóu augnaráði og hrukkóttum andlitum. Þrekvaxna menn í blóma ald- urs síns, með stælta vöðva, fulla af vígamóð og með þrjózkubrag í liverju viðviki. Þá má og sjá kyrkingsleg- ar konur, gráar í gegn, magrar og kiknaðar af líkamlegrí og andlegri þrælkun og vosbúð, og hins vegar rjóðar blóma- rósir, spriklandi af æskufjöri og kjarki. Mörg hundruð- fánar með eggjunarorðum, kjarnyrðum og mótmælum gegn kúguninni blakta yfir þessum óvíga her. Sama gremjan út af þröngum kjörum og kúgun, sama löngun- in til að brjóta af sér kúgunina og komast inn á sólar- land frjálsræðis og velmegunar fylla brjóst alls þessa sægs- leynt eða ljóst, tengja allar þessar mörgu þúsundir sam-

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.