Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.08.1907, Side 48

Skírnir - 01.08.1907, Side 48
240 Hví hefir þú yfirgefið mig. svo hann fór að verja trúarbrögðin, eftir föngum, fyrir Jóni. Grímur gekk þegjandi á undan. Hann tók stundum spretti og gekk þá svo hart, að mikið dró í sundur; en stundum gekk hann löturhægt. Annað slagið var hann auðsjáanlega að hugsa um að gefa orð í samræðu þeirra Þórðar og Jóns; en þeirri hugsun virtist hann sleppa jafn- harðan aftur. Gagnfræðingurinn var hár maður, ljóshærður, grann- vaxinn, álútur og veiklulegur og hóstaði við er hann tal- aði lengi. Hann var magur og hvitur í andliti, greindar- legur og yfirbragðið góðmannlegt. Hann talaði hitalaust og þó af áhuga. »Hinn sögulegi grundvöllur kristindómsins er aðal- lega nýja testamentið og sérstaklega guðspjöllin«, sagði hann er þeir höfðu talað nokkra stund. »Og þau eru ósamkvæm innbyrðis; enginn veit hvenær þau eru skrifuð, og svo að segja engum kemur saman um hvernig á að skilja þau. Taktu guðspjöll þeirra Matteusar og Lúkasar og lestu ættartölu Krists. Guðspjöllin tala um Krist sem afkomanda Davíðs og að öllum likum eru ættartölurnar ritaðar til að sanna að svo hafi verið. Bæði guðspjöllin rekja ættina til Jóseps, og þó er hann ekki faðir Krists — eftir því, sem guðfræðin segir — beldur guð. Báðar ættartölurnar eiga náttúrlega að vera innblásnar af guði og þó ber þeim, í mörgu, alls ekki sainan. Hvernig á nú að koma öllu þessu heim? — Eg tek þetta til dæmis, af þvi að það stingur svo fljótt í augun; en það er hægt að finna nóg önnur dæmi um mótsagnir og ósamræmi í guðspjöllunum. — Um Krist og kenningar hans voru til ýmsar ritaðar frásagnir, strax á fyrstu öld og jafnvel á dögum postulanna. Þessar frásagnir gengu gegnum margar rithendur, þekkingarlítilla og hjátrúarfullra manna, því þá var prentlistin ekki fundin. Strax á dögum post- ulanna bryddi á mismunandi skilningi á Kristi og kenn- ingum hans, og sá mismunur óx er tímar liðu og olli mikilli baráttu milli trúflokkanna. Á þeim dögum var það almenn trú, að tilgangurinn helgaði meðalið og ósak-

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.