Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.08.1907, Side 81

Skírnir - 01.08.1907, Side 81
Ritdómar. 273 um Ijóöum. Það mátti því búast við að að því kæmi, að slík bók yrði gefin út á íslenzku. En ekki gildir það einu, hver velur. Mag. Guðm. Finnbogason var manna færastur til aS leysa það verk af hendi. Yalið ber það ljóslega með sér, að það er ekki gert af handahófi. Víðast mun þaö haft fyrir augum, að erindi þau, sem unglingarnir læra, verði þeim umhugsunarefni á þroskaaldri og leiði síðar athygli þeirra að ýmsum gácum lífsins. Með þaö fyrir augum er það með ráði gert, að setja ymsar harla ólíkar lífsskoð- anir, sem koma fram í stökum skáldanna, hverja við hliðina á ann- ari. Um það má lengi þrátta, hversu mikið gagn só að þessu, en í mínum augum gerir það bókina mun eigulegri, heldur en ef þar stæði eintómt léttmeti. Og sá sem kann öll þau erindi sem í bók þessari standa, eða meiri hluta þeirra, hefir margt í huga á ein- verustuudum sínum. En sumstaðar finst mér þó safnandinn seilast helzti langt út í forneskju, t d. þar sem hann tekur torskilin erindi úr Hávamálum, Darraðarljóðum eða öðrum fornkvæðum, eða erindi, þótt yngri séu, sem ekki geta talist unglinga meðfæri (t. d. sumt eftir B. Th.) Eg er því hræddur um, að mörgum finnist all- mörg erindi í bókinni full-strembin. Þó hefir þessi bók orðið fyrir ómaklegum og óréttmætum dómum í sumum blöðum, sem sjálfsagt er að mótmæla — en líka verið oflofuð. Meðalhófið er vandratað. Hún e r engin Ijóðasýnisbók og engin »bókmenta viðbót« heldur. Myndasaín (album) er ekki bók, þótt það líkist bók í laginu. Þessi bók er ekki annað en myndabók mismunandi lífsskoðana, fornra og n/rra, í Ijóðum, — a 1 1 r a íslenzkra.. Kostir hennar eru í því fólgnir hvernig »myndirnar« eru valdar og hvernig þeim er raðað. Ytri frágangur er ágætur og bókin seld í fallegu baudi. Fram- an á bindinu er gullin mynd af íslenzku langspili og er nafn bók- arinnar dregið á strengina. Hún er snotur tækifærdsgjöf haada unglingum. Q. M. * * * HERRMANN, PAUL: Island in vergangenheit und gegenwart. Reise- erinnerungen. I—II. Leipzig. Engelmann. 1907. Sumarið 1904 fengu Islendingar góðan gest, er vísindamaður- inn dr. Paul Herrmann, prófessor, frá Torgau á Þískalandi, kom hingað. Hann var áður kunnur firir ágæt rit um þíska og nor- ræna goðafræði og um Saxa hinn danska, og kom nú hingað til 18

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.