Skírnir - 01.08.1907, Page 91
Erlend tíðindi.
283
Ekki er Bretum betur boriu sagan af viðskiftum þeirra við
samþegna þeirra á Indlandi, Hindúa og aðrai þarlendar þjóðir,
fullar 300 miljónir samtals. Þar, á Indlandi, hefir brytt á
talsverðum óeirðum í sumar, og hafa þá ymsir kunnugir orðið til
.að gera grein fyrir, hvernig á því Btendur.
Þeir hafa gerG þar margt til framfara, Bretar, sem kallað:
lagt járnbrautir, ritsíma og talsíma um landið þvert og endilangt,
svo geysistórt sem það er, nærri 30 sinnum stærra en England,
húsað höfuðbæi forkunnarvel, gert þar háreistar hallir, stofnað
skóla, stóra og smáa, banka, sjúkrahús, grafið skipakvíar o. s. frv.
En það er alt gert til að græða sjálfir, hagnýta sér sjálfum hinar
miklu landsnytjar sem mest og bezt og raka saman fé, sem þeim
hefir og hepnast mætavel, hafa með sér aurasafn sitt heim til
Englands og lifa þar í vellystingum praktuglega, en láta landið
sjálft, Indland, einskis góðs af njóta, láta þarlendan I/ð búa við
hina mestu örbirgð og ánauð, ofþyngja honum með gegndarlausum
sköttum og álögum, fullum 500 miljónum kr. um árið, segja ný-
justu skýrslur.
Um 40 miljónir landsbúa segja þeir, sem grynst taka í árinni,
að svelti heilu eða hálfu hungri árið um kring, — fá aldrei saðn-
itig sína og eiga aldrei málungi matar. Tveir þriðjungar landsbúa
fá í góðum árum aldrei nema eina máltíð á dag og hún er hnefa-
Eorn af hrísgrjónum eða hirsi með salti. Kjöt vita þeir varla hvað
-er. Mjólk bragða þeir aldrei né kaffi eða te eða vín. Allur við-
búnaður er eftir þvi', svo sem fatnaður, híbýli m. fl. Hreysin
þeirra þættu engri skepnu boðleg hór í álfu. Þó vinna þeir árið
«m kring liðlangan sólarganginn, — fyrir nokkrum sinnum munn-
fylli sína af hrísgrjónuro og salt við. Þetta er í góðu árunum. I
hcirðurn árum fá þeir ekki það. Þá hrynja þeir niður unnvörpum.
Síðustu tíu árin hafa 10 miljónir þarlendra manna dáið úr hungri
■og 5 miljónir úr drepsóttum, aðallega svarta-dauða. Þó flyzt þar
korn úr landi jafnvel í slæmum árum. Féleysið meinar þeini að
líaupa það. Indlandsráðgjafinn, sem nú er, John Morley, sagðist í
þingræðu í vor um fjárlögin ekki skilja neitt í því, að Norður-
álfumenn tækju þá sótt, svarta-dauða, sjaldan sem aldrei, en þar-
lendan lýð feldi hún sem hráviði. Aðrir vita það og skilja, að því
veldur harðréttið. Horaðir líkamir og blóðlausir hafa minni við-
námsþiótt en feitir ög vel haldnir.
En aldrei er svo mikill manndauði á Indlandi af hallæri og
drepsótt, að jarl Bretakonungs þar fái ekki sínar ákveðnu 300,000 kr.