Skírnir

Árgangur

Skírnir - 01.04.1908, Blaðsíða 17

Skírnir - 01.04.1908, Blaðsíða 17
Marjas 113 Hann sagði mér frá huldufólki. Það ætti heima í hólum og klettum, og væri stundum sýnilegt, en oftast ó- sýnilegt. Eg spurði, hvort það væri til enn. Mikil lifandi ósköp — já, eg held nú það! Það var fult af þeim í Lönguþiljum, klettabeltinu rétt fyrir ofan bæinn hjá okkur. Hvort eg vissi ekki, að klettabeltið bæri nafn af því, að það væri í raun og veru ekki annað en bæjarþil huldu- fólksins, þó að okkur sýndist það vera klettar. Nei, eg vissi það ekki. Hafði hann séð huldufólkið sjálfur? Nei, amma hans hafði séð það. Eg sá, að það tók af öll tví- mæli. 0g hann sagði mér frá verum dáinna manna, sem hétu vofur. Þær væru ekki góðar. Þær kæmust til manna að lokuðum dyrum, inn um heila veggi. Þær mættu mönn- um stundum í bæjargöngum í myrkrinu og görguðu fram- an í þá óvörum, eða tækju utan um þá. Þær gætu lagst ofan á menn. Og þær gætu tekið þá í háa loft. Og þær gætu gert alt við menn i myrkrinu. Ýskrandi, sælukendur ótta-hrollur fór um herðarnar á mér og ofan eftir bakinu við allan þennan dularfulla fróðleik. Grímur var óviðjafnanlegur. Hann vissi alt. Svo mikið vissi Jónas ekki. Hann var sveitarbam og hafði alist upp hjá fósturforeldrum mínum. Eg vissi, að hann var lítt hneigður til bóka, og fóstra mínum hafði veitt örðugt að kenna honum að skrifa. Hann var 10 árum eldri en eg. Einu sinni hafði eg miklar áhyggjur út af afmælinu mínu — þegar eg væri orðinn stór — að eg mundi aldrei geta vitað, hvenær það væri. Eg mundi neyðast til að leita til konunnar minnar um það. Og það fanst mér ó- virðing. Eg færði þetta einu sinni í tal við Jónas, hvort hann sæi nokkurn veg þess að vita þetta. Hann setti reynd- ar fyrst á sig spekingssvip. En þegar eg fór að ganga á hann um þetta, þá fann eg, að hann sá ekki neinn veg. Jú, ef farið var eftir vikum og vikudögum. Enginn vandi að vita um fyrstu viku sumars og telja þaðan. — En hvernig átti þá að finna sumardaginn fyrsta? — Það heyrði mað- 8
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Skírnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.