Skírnir - 01.04.1908, Blaðsíða 41
Peningaverðið á íslandi.
137
verði. Þess er getið hér að framan, hver áhrif silfur-
verðið hafði hér á landi 1875. Þegar því nær allar þjóðir
í Norðurálfu og Vesturheimi voru farnar að nota gullpen-
inga, stöðvaðist gullið í verði nokkurn tíma, og gekk ým-
ist upp eða niður, svo ekki var hægt að segja stundum,
í hvora áttina gullverðið hneigðist. Fyrir 1900 fundust
gullnámarnir í Transvaal, þar sem nú er Johannesburg;
gullið, sem þar heflr verið graflð úr jörðu, hefir numið
1000 miljónum króna um árið. Það þótti mesta furða, að
öll sú framleiðsla skyldi ekki fella gullið sýnilega í verði
og margar getur voru að því leiddar, hvernig því væri
farið. Sumir sögðu, eins og satt var, að austurlandaþjóðir
notuðu meira gull en áður, og það héldi verðinu uppi^
aðrir sögðu, að þau fjarska kynstur væru smíðuð úr gulli,
og að það héldi verðinu uppi; menn gengju með gulli
búnar tennur í munninum, og það gull færi í kirkjugarð-
ana, þegar menn dæju, o. s. frv. En svo fundust gull-
námarnir í Klondyke líka, og eftir aldamótin síðustu, eink-
um síðustu árin, er gullið farið að lækka stórum í verði.
Vegna þess, hve framleiðslan heflr verið gífurlega mikil,
og hve hún e r stórvaxin, eru engar likur til að gullið
hækki aftur í verði. Þvert á móti er líklegast, að fyrir
framan okkur sé tímabil, er gullið fellur í verði ár frá
ári, og flmm ára bil el'tir fimm ára bil.
Með töflunni yflr verðlagsskrárnar hér að framan var
sýnt, að meðalverð allra meðalverða var stigið frá 30 aur.
1850 upp í 50 aura 1900, og upp í 60 aura. 1907. Þar var
ennfremur bent á, að meðalverð allra helztu og mikil-
vægustu landaura heiði stigið úr 40 aurum 1850 upp í 67
aura 1900, og upp í 77 aura 1907. Sé nú þetta borið
saman við þá hækkun á verðlagi, sem sýnd er hér að
framan (IV), þá má fá þessar töluraðir, sem allar sýna
verðiallið á peningum, eða gullinu, þessi ár. Verðið 1850
er ávalt gjört að 100 kr.