Skírnir

Árgangur

Skírnir - 01.04.1908, Blaðsíða 58

Skírnir - 01.04.1908, Blaðsíða 58
Leo Tolstoj. manna í daglegu lífl, er stæði einmitt í fullu samræmi við þessar æðri eðliskröfur mannsins. Fjallræðan hefir jafnan verið talin einn af fegurstu gimsteinum hins Nýja sáttmála, og samt hefir hún orðið mörgum að ásteytingarsteini, því svo áþreifanlega ríður hún í ýmsum atriðum í bág við jarðneskar venjur og al- þjóðlegt siðalögmál. Svo fór og Tolstoj fyrst í stað. Hann gat ekki með nokkuru móti felt sig við sumar af kenningum fjallræðunnar og reyndi lengi vel á allar lund- ir að vikja þeim við eftir sínu höfði eða leggja í þær einhverja dularmerkingu. En meðan hann gerði það, varð honum jafnan torskilin grundvallarstefnan í kenn- ingum Krists. En jafnskjótt og hann lagði beina merk- ingu í orð ræðunnar, fanst honum alt skýrast dásamlega. Þá þótti honum sem kenning Krists og líf samþýddist til fulls hvað við annað og rynni saman í eina órjúfandi og aðdáanlega heild. Hann þóttist sjá, að Kristur í þessari ræðu sinni setti glögt fram aðalkjarnann í kenningu sinni, þar sem hann fimm sinnum hvað eftir annað skírskotar til þess, er »sagt var við forfeðurna* og bætir svo jafnan við á eftir orðunum: »en eg segi yður«, og eykur síðan við, útskýrir eða blátt áfram mótmælir hinum fornu boðorðum. Þær fimm meginreglur, sem Kristur setur hér fram, eru þessar: I fyrsta lagi: »Þér hafið heyrt að sagt var við forfeðurna: þú skalt ekki morð fremja, en hver sem morð fremur, verður sek- ur fyrir dóminum; en eg segi yður, að hver sem reiðist bróður sínum, er sekur fyrir dóminum«. I hinum eldri biblíuþýðingum er hér inn í setninguna bætt orðunum:án orsaka, sem raska algerlega merk- ingunni og eru í sjálfu sér fjarstæða, því enginn maður reiðist án þess að hann þykist hafa ástæðu til þess, — enda standa þessi orð heldur eigi í hinum beztu grísku frumtextum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Skírnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.