Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.04.1908, Side 21

Skírnir - 01.04.1908, Side 21
Marjas. 117 — Þér er bezt að láta hann hafa afskaplega stóra fætur, sagði Grímur. — En það er svo fallegt og karlmannlegt, sagði eg. Grímur hló. — Nei, það þykir ijótt. Honum er stríð i því, sagði hann. Eg fann, að honum var eitthvað óvenjulega mikið í nöp við Jónas. Eg veit ekki, hvort það var hugsanaflutning- ur eða hvað því olli, að mér datt Manga í hug. Og í sama bili hugkvæmdist mér nýtt atriði í rímurnar. — Eg vil hafa í þeim skessu, sagði eg. Það þótti Grími eðlilegt og vel til fundið. Hann var- aðist ekki, að neitt byggi undir. Nú þorði eg ekki að fara lengra með Grími. Eg skoppaði heim aftur og kom varla við jörðina. Rímurnar reyndust örðugar viðfangs. Efninu var vandalitið að koma saman. Fornaldarsögur Norðurlanda voru fjársjóður, sem auðsótt var í. Hitt var þrautin þyngri, að koma efninu í ljóð. Oft varð skáldfákurinn fastur eins- og klár, sem hleypt hefir verið niður í kviksyndis-keldu. Þá leitaði eg til Gríms. Einkum þegar hann var að flétta reipi á kvöldin, og Jónas og Manga voru í fjósinu, og gátu með engu móti heyrt til min. En verkið sóttist seint. Og marjasinn kom líka og fylti hugann. Eg hafði einhvern tíma í fyrndinni lært hund og löngu- vitleysu. Og mikið gaman hafði mér þótt að þeim. En sjaldan hafði það viljað til, að nokkur fullorðinn maður fengist til að þrevta þær þrautir við mig. Og börn voru engin á heimilinu nema eg. Nú vildi mér til það happ eða óhapp — eg veit ekki, hvort eg á heldur að kalla það — að drengur var nótt hjá okkur, og hafði ekki ann- að sér til dægrastyttingar en að kenna mér marjas. Þá hafði eg lokið eitthvað tíu erindum af rímum, og hafði þegar komið að Úlfi óþvegnum, sem átti að vera Jónas, og skessunni Skinnbrók. Eg þarf naumast að taka það fram, að með henni átti eg við vinkonu mína Möngu. En þess hafði eg vandlega dulið Grírn. Og öðrum var ekki

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.