Skírnir - 01.04.1908, Síða 35
Peningaverðið á Islandi.
131
til þess sanna verðs, að þær eru að öllu villandi. Verzl-
unin við Island var þá rekin svo, að oft var meira boðið
í innlendu vöruna, en á nokkurn hátt gat fengist fyrir
hana á útlendum markaði, þótt hvorki væri reiknað flutn-
ingskaup né annar kostnaður, sem á hana átti að fnUa.
Verðlagsskrárnar á þeim árum eru þess vegna ekki reikn-
aðar eftir peningaverði í rauninni, heldur eftir nafnverði,
eins og verðlagsskrárnar fyrir 1820. Munurinn sá einn,
að fyrir 1820 var farið eftir nafnverði á bréfpeningum,
en 1870—80 er reiknað eftir nafnverði á einhverju, sem
ekki er til, því að peningar fengust ekki í verzlunum á
þeim dögum, nema fyrir hesta og sauði, sem Englending-
ar voru þá að byrja að kaupa. Allur skaðinn við að
kaupa innlendu vöruna og allur annar kostnaður við verzl-
unina var lagður á aðfiuttu vöruna eingöngu. Það sem
á haua var lagt urðu ef til vill 40—50% af verði hennar
í stórkaupum. Við þetta varð söluverð á aðfiuttri vöru
10—20% hærra en það þurfti að vera, og verð útfiuttu
vörunnar 10—15% hærra en átti að vera. Þetta verzl-
unarástaud var kallað »svikamyllnan«. Allir verzlunarmenn
fengu vörur í búðinni, sem þeir voru í, með alt öðru
verði en aðrir kaupendur, og allir, sem höfðu peninga-
laun, reyndu að komast hjá búðarverðlaginu með því að
panta. sem mest af nauðsynjum sínum frá útlöndum. Um
það leyti byrjuðu innlendu verzlunarfélögin af þessum
ástæðum víðast hvar. Við þetta verð hækkar verðlagið í
verðlagsskránni 1875 á ull, kjöti, tólg, fiski, lýsi, öllum
matvörum og sauðfénaði; sömuleiðis á fiðri, eða hér um
bil öllum þeim vörutegundum, sem teknar eru hér að
framan, líklegast um 10—15%. Svo er annað atriði var-
hugavert. 1873 lögleiddu öll Norðurlönd gullpeninga í
stað silfurpeninga. Um það leyti, sem lögin voru samin
í nefndinni, fengust 15 pund af silfri fyrir 1 pund af gulli;,
en 1875 fengust 18 pund af silfri fyrir 1 pund af gulli.
1875 hafa íslendingar ekkert til að borga útlendar skuldir
með nema silfur, en silfrið er fallið um 20%; því staf-
ar líka, að vörur, sem eru keyptar fyrir silfur, verða að'
*9