Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.04.1908, Side 36

Skírnir - 01.04.1908, Side 36
132 Peningaverðið á íslandi. vera alt að 20°/0 dýrari en á móti gulli. Meðalverð allra meðalverða 1875 varð 56 aurar; að réttu lagi hefði þið líklegast átt að vera 20% lægra, eða hér um bil 45 aur., eða einhvers-taðar milli 40—50 aur., ef til vill miklu nær 40 aurum. Þessi ár, sem tekin eru, þarf samt að geta um. 1830 hefir velmegun landsmanna verið að aukast um 10 ár, og fólkinu heflr fjölgað jafnt en fremur lítið um langan tíma. 1850 er fjáreign landsmanna í mestum blóma á 19. öld- inni, að undanskildum árunum 1891—95; mislingasóttin 1846 hafði höggvið skarð í fólksfjöldann, en frá 1830—50 hafði fjöigun verið stöðug, að því fráskildu. En fjölgunin var sein á sér um þær mundir, þegar meðalæfin var 34 ár. 1900 heflr fólkinu fjölgað ákaflega mikið; hér eru komnir upp kaupstaðir, þar sem engir voru áður; meðal- æfin er orðin 56 ár, útflutningur á lifandi fé er bannaður, og við það heflr sauðfé lækkað í verði og allar afurðir af því. Innanlandsmarkaðurinn er orðinn miklu betri en nokkuru sinni áður, og það heldur uppi kjötverðinu og fjárverðinu. 1904—07 eru innlendar vömr að hækka í verði, sumar ákaflega, t. d. smjör, sem nýlega er orðið útflutningsvara, og kjöt, sem kaupstaðir og sjávarsveitir leggja sterkar fölur á, og þá er byrjað víðast um land að selja innlendar vörur fyrir peninga, svo um munar. Fólk- inu heflr fjölgað töluvert síðustu árin; útflutningar eru litlir; útlendir menn setjast hér að, og mannsæfin er komin yflr 60 ár. Ef taflan hér að framan er höfð til þess að sýna, hvað peningar hafa fallið í verði, þá er það fljótséðast af meðal- verði á alin þessi ár, sem þar eru tekin. Eftir meðalalin verðlagsskránna að dæma eru: 25 kr. 1830=30 kr. 1850, verðlækk. peninga verður þá 20% 25 — 1830=50 — 1900, — — — 100% 25 — 1830=60 — 1907, — — — 140% En sé tekið meðaltal af vörunum 1—13 eða af þeim vörum, sem mest eru seldar og keyptar í landinu, þá verða:

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.