Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.04.1908, Side 57

Skírnir - 01.04.1908, Side 57
Leo Tolstoj. 153 fann hann brot af sannleikanum, aistaðar þóttist hann rekja feril guðs og sjá vegsummerki hans, en g u ð sjálf- an fann hann ekki. Að tilvísun bændanna tók hann loks að leita fyrir sér í ritum hins Nýja sáttmála, — og þar fann hann guð að lokum. Þar fekk hann lausn á gátunni um tilgang lí'fsins. III. Allir menn eru í heiminn bornir með þeim eðlisgáf- um, er nefndar eru »skynsemi« og »samvizka«. Þær kenna oss ósjálfrátt að gera greinarmun góðs og ills; vér v e r ð u m ósjálfrátt að fallast á sumt og hafna öðru. I sérhverjum af oss sefur eða vakir æðra eðli, andlegt eðli, guðdómsneistinn. Að því skapi, sem vér stöndum í sam- ræmi við það eða víkjum frá því, að sama skapi erum vér oss meðvitandi góðs eða ills í framferði voru. Aðal- tilgangur jarðlífsins er því vissulega sá, að leitast við að þjóna, eigi hinu lægra, dýrslega eðli voru, heldur því valdi, sem hið æðra eðli vort sver sig i ættina við. Kristur tekur af skarið þar sem hann gerir eitt úr sér og hinu æðra eðli sínu; hann nefnir sjálfan sig og oss »börn föðursins« og býður oss að vera fullkomnum eins og faðir vor á himnum er fullkominn. Hér felst þá lausnin á gátunni um tilgang lífsins. Það er til æðra vald, sem kennir mér ósjálfrátt að greina. það sem gott er, og eg stend í sambandi við það vald: meðvitund mín og samvizka er frá því runnin. Tilgang- ur meðvitundarhfsins hlýtur því að vera sá, að gera vilja þessa valds, með öðrum orðum: að gera gott. Þetta var í aðalatriðunum niðurstaðan, sem Tolstoj komst að við rannsókn sína. En hann þóttist um leið finna í guðspjöllunum, eða sérstaklega í íjallræðunni (Matth. 5., 6. og 7. ka.p.), grundvallarreglur fyrir breytnl

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.