Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.04.1908, Side 65

Skírnir - 01.04.1908, Side 65
Leo Tolstoj, 161 :Sólon, Sókrates, Konfúeíus, Marcus Aurelíús og Spínóza lögðu stund á, og allir þeir menn aðrir, er bezt hafa þótt siðaðir. Hann rannsakaði afleiðingarnar af góðum verk- um og illum, leitaðist við að sýna fram á, hvað skynsamt Tæri eða réttmætt í mannlegum stofnunum og trúarsetn- ingum, hversu menn ættu að lifa til þess að tryggja hverjum einstakling sem bezta líðan og sem mestan þroska, hverju menn ættu eða ættu ekki að trúa og hvernig menn ættu að bæla niður ástríður sínar og kosta kapps um að ihöndla hið sanna hnossið. Tolstoj er að líkindum allra rithöfunda vandvirkastur, þíeirra er nú eru uppi. Hann er aldrei ánægður með rit sín heldur en líf sitt. Hann margritar bækur sínar, alt að 15 eða 16 sinnum sumar, áður honum líkar, breytir, styttir og strikar út í sífellu, fágar og sléttar þar til engar misfellur sjást, enda er ritháttur hans svo ljós og skýr, að undrum sætir. Rithönd hans er aftur á móti svo ólæsi- leg, að enginn kemst fram úr henni nema kona hans og börn, og verða þau því að afrita handritið jafnóðum og hann leiðréttir, og er það ekkert smáræðisverk. Þegar svo loks prófarkirnar koma úr prentsmiðjunni, byrjar hann aftur á nýjan leik. Alt ber þetta vott um hina framúr- skarandi iðni, vandvirkni og nákvæmni hans, enda heflr hann sjálfur látið sér um munn fara, að ritsnild væri ekki í öðru innifalin en framúrskarandi vandvirkni og þolin- mæði, þótt fáir munu skilyrðislaust á það fallast fremur en margt annað í kenningum hans. Þegar Tolstoj tók djarflega og einarðlega að hreyfa hinum nýju kenningum sínum, bjuggust allir við að hann mundi sæta ofsóknum af stjórnarinnar hendi. En hún -taldi skynsamlegra að hreyfa ekki við honum sjálfum, heldur hefti að eins útbreiðslu á nokkrum ritum hans, feldi langa kafla úr öðrum, og sendi helztu vini hans og fylgifiska í útlegð. Kirkjumálastjórnin gekst fyrir því að gefin voru út rit, sem andmæltu skoðunum hans, sigaði njósnarmönnum á hann og vini hans og bannsöng hann ll

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.