Skírnir - 01.04.1908, Side 91
Ritdóraar.
187
erlends ríkis, þá er það skylda vor aS láta ekki aSra setja þann
blett á minningu þeirra. ÞaS er hin minsta þökk, sem þjóSin getur
goldiS fyrir þaS að hún þarf nú ekki aS sníkja sér rétt, heldnr
gengur aS sínu. Jafnframt því sem vér styðjum kröfur vorar við
þjóðernisrétt vorn, eigum vér því jafnt sem áður að sanna þann
ríkisrótt, sem vér þykjumst eiga óskertan, og vér fögnum af alhug
hverjum þeim liðsmauni, sem eins og herra Lundborg gengur með
oss fram á vígvöllinn og berst í nafni sanuleiks og réttar.
G. F.
*
* *
LESBÓK handa börnum og unglingum. I. GUÐM. FINNBOGASON JÓ
HANNES SIGFÚSSON ÞÓRHALLUR BJARNARSON gáfu út að tilhlutun
landsstjórnarinnar. [Á kostnað Unga íslands« 1907].
Þetta er fyrsta bindi íslenzkrar lesbókar, sem á að verða '2/s
blutum stærri, ails 30 arkir. A henni er hin mesta þörf. Les-
bækur hefir vantað svo tilfinnanlega við islenzkukenslu í skólum
og heimahúsum, að oft hafa verið notaðar bækur, sem til þeirra
hluta eru með öllu óhæfar.
Efnið í þessu bitidi er fjölbreytt. Fyrirsagnir alls 96. Lang-
mest er af kvæðum, þjóðsögum, gátum, þnlum og skáldsagnaköfl•
um, og meginþorrinn er friimsaminn. Þyddir k.iflar eru samt
margir, 30—40. Sýnilega hefir ríkt vakað fyrir útgefendum að
vekja hl/jan hug til dýranna.
Þessi byrjun viiðist vera góð og af vandvirkni gerð. Alt er
auðskilið börnum, og líklegt til þess að veita þeim skemtun jafn-
framt náminu. Og yfir bókinni er þjóðlegur blær. En annars
auðveldara að átta sig á starfi útgefendanna við þetta bindi, þegar
bókin er öll komin út, svo að yfirlit fæst yfir alt valið.
Bókin er seld í stinnri kápu og aftan á henni eru auglýsingar
um blöð. An þess að oss komi til hugar að amast við þeim blöð-
um, sem auglýst eru, virðist oss ekki viðkunnanlegar slíkar aug-
lýsingar á skólabókum, sem gefnar eru út að tilhlutun landsstjórn-
arinnar. Og ekki minnumst. vér þess að hafa séð slíkar auglýsingar
fyr á neinum skólabókum, íslenzkum né útlenzkum.
*
* *
ÁRBÓK HINS ÍSLENZKA FORNLEIFAFÉLAGS 1905, 1906 og 1907
Rit þetta er að langmestu leyti verk hins óþreytandi elju og
fræðimanns Brynjúlfs Jónssonar. Aðalritgjörðirnar eru