Skírnir - 01.04.1908, Síða 94
190
Erlend tíðindi.
féll í kjördæmi sínu, Manchester, er leita skyldi þar endurkjörs
sakir hins nýja embættis, en vann frægan sigur í öðru kjördæmi,
Dundee í Skotlandi. John Morley, Indlandsráðgjafi, var herraður
og fluttmt því upþ í efri málsstofu, en hólt embættinu. Sá var
maður mjög lyðvaldssinnaður á yngri árum og ómetnaðargjarn.
Hann er hnigiun að aldri og gekst fyrir næðinu í lávarðadeildinni.
Mörg nýnueli og merk hefir hið nýja raðuneyti með höndum.
Þeirra á meðal er eitt um ellistyrk handa ölluni gamalmennum í
landinu, þeim er eigi hafi þegið af sveit. Það-mál hefir verið lengi
á döfinni, en stjóru og þing hikað sór alt til þessa, með því að
það yrði afarþung byiði á ríkissjóði, en nóg horn önnur í að líta,
þar á meðal hinn mikla herskipastólsauka, vegna þess, hve Þjóð-
verjar færa sig hóflaust upp a skaftið með sinn flota. Ellistyrkur-
inn er ætlaður öllum sjötugum gamalmennum, körlum og konum,
þeim er eigi befði miust 10 sh. (9 kr.) við að lifa um vikuna, 5
sh. (4^/n kr.) á viku úr ríkissjóði, hjónuin 7x/2 sh. Asquith bar
sjálfur upp frumvarpið. Hann ætlaði á, að 500,000 eða hálf miljón
niundi nióta styrks og að hann mundi þá nema um 6 milj. pd.
um árið eða nálægt 110 milj. kr. Það er mikið, en þö> ekki meira
eu sem svarar væntanlegum tekjuafgaugi eftir þ. á. fjárhagsáietlun.
Þar er gert ráð fyrir 158 niilj. pnnda tekjum og 152 milj. pd.
útgjöldum. Það er sama sem 2844 og 2736 milj. kr. Hátt upp í
3000 miljónir (3,000.000,000 milj.) á ári hvort um sig.
Gripasýning mikil og glæsileg hófst í Lundúnum á krossmessu
í vor og stendur fram eftir sumri. Þeir hafa lagt saman i hatia,
Frakkar og Hretar, en aðrar þjóðir ekki. Það á að vera til þess
gert að tryggja og festa vináttumálin með þeim nágrönnum. Sýn-
ingarsvæðið gcysivítt, alsett dýrlegum höllum, er hver hefir að geyma
sína tegund sýnismuna, stórra og smárra. Hundrað-halla sviðið
kalla sumir það. Þar kom Fallióres Frakklandsforseíi, og hlaut
hinar dýrlegustu fagnaðarviðtökur af Játvarði konungi og höfðingja-
lýð landsins.
Skömmu siðar, eða um fardagaleytið, áttu þeir málfund með
sér, Játvarður konungur og Nikulás Rússakeisari. Þeir höfðu hann
í Rigaflóa, fram undan Reval. Það þykir ekki hættulaust á landi
fyrir flugumönnum. Skeintiskipin, sem þeir voru á, þessir hinir
einna voldugustu þjóðhöfðingjar í heimi, voru látnir leggjast ekki
nær landi en sem svarar fullri viku sjávar. Ekki er það látið
berast út, hvað þeir ræddust við. Enda enguin blöðum um það að
fletta, að allar hníga slikar viðræður þjóðhöfðingja nú á tímum að