Skírnir - 01.04.1908, Blaðsíða 96
192
Erlend tíðindi.
Enn eru töluverðar skœrur með Þjoðverjum í Afríku útsunnan-
verðri og nágrönnum þeirra þar, Hottentottum. Þjóðverjar borið
•efra skjöld nýlega.
Frá Danmöku. Þar sleit loks þingi 23. f. mán. við lítinn
orðstír, þótti framfaramönnum, en stjórnarliðar stórum hróðugir yfir
mikils háttar nýmælum, er þeir höfðu loks fram á þingi, eftir langt
þóf og leikseigt/ Þeirra stærst eru ný réttarfarslög, í meira en 1000
greinum, fyrirheitin í grundvallarlögum Dana 1849, en vanefndir
á því alt til þessa. Frjálslyndari þingflokknum finst þau vera kák,
tmeð því að stjórnin gerði það til miðlunar við landsþingið, að hverfa
frá ýmsum fyrirhuguðum fyrirmælum, er höfðingjarnir risu öndverðir
í móti, svo sem er fullur aðskilnaður dómsvalds og umboðsstjórnar,
kviðdómaskipun án manugreinarálits eða stéttamunar m. fl. Tolla-
lög fengust og endurskoðuð á þessu þingi, eftir langa mæðu, en
brengluð öll og aflöguð í meðferð frá því sem til var ætlast. Loks
sveitarstjórnarlög ný, sem líkt má um segja. Með hróplegu flokks-
ofstæki tókst að bægja frá Aiberti öllum háska af rannsóku gerða
hans í þingnefnd; með því vaið 1 atkv. fram yfir helming í fólks-
þinginu.
Danir mistu 24. apríl mikinn ágætismann, þar sem var Poul
la Cour prófessor í Askov, 67 ára. Og 13. maí lézt Jo3eph Mie-
haelsen póstmeistari, 82 ára, sá er var upphafsmaður allsherjarpóst-
sambandsins heimsvíða með sama burðareyri um öll lönd. Þá dó
6. apríl fjármálaráðgjafi þeirra Yilh. Lassen, atkvæðamaður og gáfu-
maður mikill, rúml. hálffimtugur.
Miklar skærur með Persakonungi og löggjafarþingi hans. Hann
lét skjóta á þinghúsið nýlega. Stundum fer hann huldu höfði.
Yeginn var 28. apríl landshöfðingi Austurríkiskeisara í Galizíu,
Potocki greifi.
Borgarbruni varð mikill í Ameríku 13. apríl, brann 4. hluti
útborgar þeirrar við Boston, er nefnist Chelsea.