Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Ukioqatigiit

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1925, Qupperneq 5

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1925, Qupperneq 5
5 skiptingin. Sumir fræðimenn töldu fyrrum, að fjórðungaskiptingin hefði verið jafngömul allsherjarríkinu, þ. e. komist á 9301). En nú má telja það fullvíst, að landinu hafi eigi verið skipt í fjórðunga, fyr en nokkrum áratugum eptir upphaf allsherjarríkisins, eða m. ö. o. með lögum þeim, er kend hafa verið við Þórð gelli, og sett voru að til- lögum hans, í tilefni af deilum hans og Tungu-Odds eptir Blundketils- brennu2). Er þetta bygt á frásögn Ara í 5. kap. íslendingabókar. Samkvæmt þessu er nú talið, að fjórðungaskiptingin hafi verið lögtekin um 965, eða nánara tiltekið 962, ef trúa má annálunum, er telja, að Blundketilsbrenna hafi orðið það ár3). Fjórðungaþingin eru því eigi eldri en 962, enda getur Ari setningar þeirra einmitt í sambandi við skiptingu landsins í fjórðunga. Er aðeins um eina sögn i heimildunum að ræða, er þessu mæli í móti, og dró Guðbrandur Vigfússon það af henni, að fjórðungsþingið í Þórsnesi hefði Þórður gellir sett um 9324). Það er sú sögn sumra handrita Landnámu, að Vébjörn Sygnakappi hafi verið veginn á fjórðungsþingi í Þórsnesi5), Þessa sögn þarf því að athuga nánara. Það má nú telja nokkurn veginn víst, að Vébjörn Sygnakappi getur ekki hafa lifað fram yfir 962. Hann var landnámsmaður. Land- náma getur þess, að hann varð skipreika, er hann kom hingað til lands, en Atli í Fljóti, þræll Geirmundar heljarskinns, tók við þeim öllum um veturinn. Segir síðan frá orðaskiptum þeirra Geirmundar og Atla út af þessu6). Af þessu er auðséð, að Vébjörn kom út síðar en Geir- mundur, en þó fyr en Geirmundur lést. Nú er talið, að Geirmundur hafi komið út um 8957). Hann var þá orðinn gamall og hefir varla lifað mikið lengur en til 910. Vébjörn hefir því komið út einhvern tíma á þessu árabili, um 900, telur Guðbrandur Vigfússon8). Hann var þá orðinn fulltíða maður. Hann var elstur af mörgum systkinum, sem þó virðast öll vera uppkomin, er þau komu hingað með honum. Hann hefir því varla verið yngri en 25 ára, er hann kom hingað út, 1) Sbr. t. d. Þórð Sveinbjörnsson í Jur. Tidskr. XXII bls. 11, Jón Sigurðs- son í Isl. sögur II. Kbh. 1843 bls. 174. 2) Sbr. t. d. Finsen; Om den opr. Ordn. af nogle af den isl. Frist. Inst. Kbh. 1888 bls. 80, Maurer: Die Quellenzeugn. iiber das erste Landrecht etc. Miin- chen 1869 bls. 86, Upph. allsherjarríkis á Isl. Rv. 1882 bls. 144. 3) Isl. Annaler útg. G. Storms Kria 1888, við árið 962, Matthías Þórðarson í Árb.fornl.fél. 1916 bls. 2. 4) Safn I. bls. 233, 495. 5) Landnáma, útg. Vald. Ásmundssonar Rv. 1909 II. 29, bls. 111, 6) Landnáma 1. c. 7) Safn I. bls. 228. 8) Safn I. bls. 233.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.