Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1925, Blaðsíða 17
17
komist á íót í öllum fjórðungunum, hvar þau hafi verið háð, og að
þau hafi starfað lengur en hingað til hefir verið talið, að þau hafi gert.
Ég skal taka það fram, að mér er það ljóst að nota verður frásagnirnar
um málsóknir á þingum með allri varkárni, og að eigi má gleyma því,
að bæði gat verið um undantekningar frá aðalreglum laganna að
ræða, og enda fullkomnar lögleysur. En mér virðist það varla geta
verið tilviljun, að þær sagnir, er hér geta máli skipt, allar, nema
þessi eina vafasama frásögn um deilu Guðmundar ríka og Þorkels
Geitissonar, lúta að málsóknum annaðhvort á Þórsnesþingi, þar sem
víst er af öðrum gögnum að fjórðungsþing var háð, eða á Hegranes-
þingi, sem er það þing í Norðlendingafjórðungi, er fyrirfram mætti
telja líklegast, að fjórðungsþing hefði verið, vegna legu sinnar.
Ólafur Lárusson.
3