Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1925, Blaðsíða 84
82
Endurskoðunarmenn voru endurkosnir þeir Sigurður Þórðarson
og Eggert Claessen.
Formaður skýrði frá brjefum, er fjelaginu höfðu borist og las
upp skýrslu Þorleifs Jóhannessonar í Stykkishólmi um nokkrar forn-
leifar í Helgafellssveit.
Formaður las ennfremur upp uppkast að brjefi til Alþingis, þar
sem farið var fram á, að fjelaginu yrði veittur sami styrkur og það
hafði fram að þessu ári. Var samþykt að senda brjefið.
III. Aðalfundur 1926.
Hann var haldinn á lestrarsal Þjóðskjalasafnsins laugardaginn 5.
júní 1926, kl. 5 síðdegis.
Formaður minntist 6 fjelagsmanna, er látist höfðu síðan aðal-
fundur hafði verið haldinn árið áður, þeirra Ásgeirs læknis Blöndals
á Húsavík, drs. Helga Jónssonar, skólakennara í Reykjavik, Jóns fv.
landsbókavarðar Jacobsonar í Reykjavík, Páls Jónssonar, kennara í
Einarsnesi, Þórarins St. Eiríkssonar á Torfastöðum og sjera Þorsteins
Benediktssonar. Tóku fundarmenn undir það með því að standa upp.
Því næst skýrði formaður frá hag fjelagsins á umliðnu ári. Fasta-
sjóður fjelagsins hafði í árslok verið 3200 kr. og eign í sparisjóði
613,74 kr.
í fulltrúaráð fjelagsins var kosinn Sigurður prófessor Nordal til
aðalfundar 1927, í stað Jóns heitins Jacobsonar, en varaforseti var
kosinn í hans stað sjera Magnús Helgason.
Formaður bar fram þá tillögu, að fjelagið keypti 200 eintök af
ritum Margeirs kennara Jónssonar á Ögmundarstöðum um torskilin
bæjanöfn í Húnavatns- og Skagafjarðarsýslum og ljeti fjelagsmenn fá
þau með árbók fjelagsins fyrir 1925—26. Tillagan var samþykt í
einu hljóði.
IV. Reikningur hins íslenska Fornleifafjelags árið 1924.
Te k j u r:
1. Sjóður frá f. á.
a. Verðbrjef, veðdeildar 2400, ríkis-
sjóðs 400, bæjarsjöðs 200, Eim-
skipafjelags 100 kr..............kr. 3100 00
b. í Landsbankabók nr. 2260 ... — 597 98
------------- kr. 3697 98
Flyt kr. 3697 98