Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Árgangur

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1925, Blaðsíða 27

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1925, Blaðsíða 27
25 stór býli. En sleppa verður þeim er börðust til landa, keyptu bygð býli eða komust yfir þau á annan hátt, nema þeir hafi líka numið eitthvað óbygt. En að greina þessa alla sundur með nákvæmni, það væri bæði mikið verk og vandasamt, því vafastaðir eru mjög margir. Aftur væri rétt í þrengri merkingu, að telja þá eina lnm., sem námu í fyrstu alt, er þeir komust yfir. Og þó verða þar líka margir vafasamir. En ég held að þeir færu valla að mun yfir 150. Útgefendur Landnámu hafa reynt að fara meðalveg þarna á milli, og þeir hafa víst orðið varir við erfiðleika í aðgreining sinni. í al- þýðuútgáfunni 1891 eru taldir með nöfnum í registrinu 312 lnm. Þeir eru taldir eftir auðkendum nöfnum í reg. útg. frá 1843, og vant- ar þó fáeina. Tala þessi er tekin svo af handahófi, að hún verður ekki lögð til grundvallar við neina nákvæma rannsókn. Taldir eru þar nokkrir vafasamir lnm., en mörgum slept, sem voru meiri háttar. Þessu til sönnunar skal eg nefna hér fáeina. Þrælar Ketils gufu, Flóki og Skorri1) og Þorgils knappi, leysingi Kolls, eru taldir Inm. Þó er slept Vífli og Dufþak, og 3 leysingjum Skallagríms. Rauða-Björn keypti land að Skallagrími. Hann er talinn lnm., en Án rauðfeldur ekki. Án keypti þó líka óbygð lönd, var göfugrar ættar og átti Grelöðu jarlsdóttur. Grímur enn háleyski á Hvanneyri, er að vonum talinn lnm., þó Skallagrímur »gæfi« honum land (og líka Úlfur sonur hans — og Úlfur víkíngur í Ln. 1843, en hvorugur 1891). Samt er konungssonurinn Hámundur heljarskinn ekki talinn lnm., líklega af því að svo er orðað í sumum handritum Ln. að Helgi magri »gæfi« honum land. — Þó komu þeir út saman tengdafeðgarnir, og Hám. sat þar eftir, sem Helgi vildi ekki vera. Steinólfur, ókendur að ætt og lítt merkur, er talin með lnm. í Borgarfirði, en þó hvorki Ingvar, tengdafaðir Skallagríms, né Þorfinnur, tengdasonur hans, er hann »gaf« löndin líka; og hafa þeir síðarnefndu valla verið minni háttar, að frá teknum mægðunum við Skallagrím. í Iandnámi Hrollaugs Rögnvaldss. Mærajarls, á austfjörðum, eru ótaldir í báðum útg. Ln. 5 lnm. Þeir hafa allir verið norrænir menn, og er enginn bústaður þeirra kendur við þá, — 1 ónefndur. Af þeim 40 mönnum, er námu land, keyptu og þágu að gjöf eða tilvísan Skallagríms, í hans landnámi, eru um 30 taldir lnm. Bólstaðir eru kendir við fullan helming þeirra allra. Þar á meðal við alla vestmennina, er munu vera 6. Og 18 eru þar bústaða-nöfn önnur en þeirra, er þar eru taldir. 1) Skorri ef til vill strokuþræll, því eg held vafasamt, að Ketill hafi átt 2 þræla með sama nafni. Alt, sem um þá er sagt í Ln., gæti verið tvöföldun ýtaf missögnum um sama mann. 4
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.