Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1925, Blaðsíða 45
Um nokkur eyðibýli og sögustaði
í Helgafellssveit.
29. júní 1924 fór jeg upp í Helgafellssveit til þess að athuga
eyðibýli og sögustaði þar.
Fyrst fór jeg inn í sveit. Með mjer fór Jósafat Hjaltalín hrepp-
stjóri, sögufróður maður og áhugamikili um fornleifar og fornminjar.
Á leiðinni uppeftir skoðuðum við eyðibýlið Þorleifsstaði, það er fyrir
ofan Saura, við innri enda Skjaldarvatns, norðan-undir klettaás. Þar
sjer fyrir tveimur rústum mjög fornlegum. Jeg hygg efri rústina vera
bæjarstæðið. Rústirnar eru svo útflattar að ekki er unt að mæla þær.
Þaðan hjeldum við að Svelgsá. Þar býr Guðbrandur Sigurðsson
hreppstjóri, maður sögufróður, athugull og nákunnugur. Hann sagði
mjer, að þegar sljettað hafi verið í túninu þar, í suðvestur frá húsinu,
hafi komið þar niður á mikið af smiðjugjalli og rauðablástri; sýndi
hann mjer mola af honum, um 1 til IV2 kg. á þyngd. Þar er sljettað
var heitir Bænhúsvöllur. Gat hann þess til að Bænahúsið hefði ver-
ið bygt upp úr rauðablásturssmiðju.
Frá Svelgsá slóst Guðbrandur í för með okkur. Fórum við
fyrst innyfir Svelgsá, fyrir innan ána, móts við bæinn, er skýrt garð-
lag í mýrarhöllum. Myndar garðlagið boga og virðast báðir endar
garðsins hafa náð að ánni. Garðlagið er um 250 faðmar. Litlu
ofar liggur annar garður bogmyndaður eins og hinn, ná endar hans
að neðri garðinum.
Þá vísaði Guðbrandur mjer á gamlar tóftir í Hrísanesi; þær eru
skamt fyrir neðan veginn, sem liggur inn Hrísamela. Mýrlent er þar
í kring sem tóftirnar eru, hefur áður verið skógi vaxið. Frá Hrísum
er þetta venjulega kallað á Tóftum. Mætti geta þess til, að þar hafi
bærinn Hrísar staðið til forna, en verið fluttur þangað er hann stend-
ur nú; landslagið á þarna betur við nafnið. Bæjartóftin er 16 mtr.
á lengd en 8 mtr. á breidd. Tveir milliveggir eru í tóftinni.
Milli nyrðra gafls og næsta milliveggjar eru 6 mtr.; næsta bil eru 5
mtr. og syðsta bilið 5 mtr. Tóftin snýr frá útnorðri til landsuðurs.
Um túnið eru til og frá tóftir af peningshúsum. Hefur síðar verið
bygt ofan á sumar þeirra. Umhverfis túnið hefur verið garður. Að
norðan, utan túngarðsins, eru tvær hringmyndaðar tóftir, allstórar; þær
yirðast mikið yngri,