Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Árgangur

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1925, Blaðsíða 36

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1925, Blaðsíða 36
34 Við flettum þá fyrst upp í Landn.: »Þorkell vignír, son Skíða ens gamla, hann nam land um Vatnsskarð alt ok Svartárdal.« Þetta er ekki löng lýsing en þó er hún meira virði en margar síldartunnur. Fyrst og fremst tekur hún af allan vafa um Vatnsskarð. Þar þarf því ekki Ævarsskarðs að leita. í öðru lagi segir þessi bókmentaperla, að Þorkell næmi land um Svartárdal. Af Sturl. (III. B. bls. 323) má sjá að Bólstaðarhlíð er talin í Svartárdal.1) Auk þess er bærinn nefndur á 6 stöðum í Sturl- ungu og aldrei öðru nafni. í fornum skjölum frá 14. og 15. öld er þrásinnis minst á Bólstaðarhlíð og er jörðin ýmist rituð fullu nafni eða aðeins Hlíð. Aldrei annað nafn. (Sbr DI. II.; III. og IV. b.) Þá er hún vanalega talin í Langadal, en allir kunnugir geta þó sjeð, að hún stendur í Svartárdalsopinu norðast, og Svartá rennur þar með fram túninu og koma árnar saman (þ. e. Blanda og Svartá) fyrir norðan Hlíð, enda er hún talin af flestum nú til Svartárdals. Bólstaðarhlíð er og nefnd í Þórðar sögu hreðu.2) Og Finnboga s. ramma segir frá Þorgrími, »auðugum bónda« í Bólstaðarhlíð. »Sigríður hjet kona hans, en Þóra dóttir« (bls. 55.) Ekkert af nöfnum þess- um koma fyrir á ættmönnum Ævars og er þó allvel greint frá ætt hans í Ldn. Verður vikið að því síðar. Það þyrfti álitlega dirfsku til að berja það fram, þvert ofan í allar þessar heimildir, að Ból- staðarhlíð hafi heitið Ævarsskarð. Sje litið til landslags, verður hið sama uppi á teningnum. Bærinn stendur ekki í neinu skarði. En norður frá bænum liggur þröngt gil eða dalur, sem Hlíðaráin rennur eftir. Þar er óbyggilegt og engan hef jeg heyrt halda því fram, að Ævarr hafi búið í þeim dalkreppingi. Nafnið Bólstaðarhlíð bendir á að þarna sje þó landnámsjörð og það liggur beinast við að ætla, að Þorkell vignir hafi búið þar. Verð- ur ekkert mælt með rökum móti því. Ef Finnbogasaga segir rjett frá Þorgrími, sem vel getur verið, þó Vatnsdæla nefni ekki sögnina, þá hefur Þorgrimur búið þar eftir 900 og fram um miðja 10. öld,3) og vafalaust hefur hann verið af góðum og göfugum ættum, þegar Jökull Ingimundarson — höfðingjasonurinn úr Vatnsdal — ætlaði sjer Þóru dóttur hans fyrir konu. Hafi Þorgrímur verið til, gat hann verið son- 1) Vitnað er i Sturlunguútg. Sig. Kristj., Rvk 1908—1915. Hana hafa fiestir við höndina. í registrinu hefur misprentast við Bólstaðarhlíð: II. 316, 320; á að vera: III. 316 o. s. frv. 2) Bls. 38. Ýmislegt bendir á að höf. Þórðar sögu sje Skagfirðingur t. d. skagfirska málvenjan »vestr í Bólstaðarhlið« — ekki »til Bólstaðarhlíðar« sem í Sturl. Kunnugleiki á staðháttum er aðdáanlegur. 3) Miðað við tímatal í Vatnsdælu, að því er Guðbr. Vigfússon telur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.