Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1925, Blaðsíða 41
39
ar en þær, sem hjer á undan eru nefndar, mætti álíta þetta þolanlega
sannað mál, að þetta sje Ævarsskarð. Mjer hefur samt tekist að ná
í fleiri rök um þetta efni. Sumarið 1923 var mjer sagt, að fornar
húsarústir væru vestarlega í Litla-Vatnsskarði. Ljek mjer mjög hugur
á, að skoða þær og gerði mjer því ferð þangað vestur 24. maí sl.
Og von mín brást heldur ekki. Eins og áður er getið, stendur Mó-
bergssel austast í skarðinu, en rústabrot þessi, eru miklu vestar, norð-
an við læk, sem fellur vestur úr skarðinu. Aðalrústirnar eru tvær,
standa á sljettum skriðugrundum með lágu nabba-þýfi á stöku stað.
Vestari rústin er hólmynduð og sjest illa fyrir veggjum, en þó munu
þeir þykkir verið hafa og hlaðnir úr torfi að mestu. Rústin er 42
fet á lengd og 24 fet á breidd. Vestast í rústum þessum var nýleg
húsarúst að sjá, sneri út og suður, 24 fet á lengd, 12 á breidd. En
fyrir 6 húsum virtist móta í aðalrústunum, auðsjáanlega miklu eldri.
8 föðmum austar eru aðrar tóftir skýrari, því grjót hefur verið þar í
öllum veggjum, þar markar glögt fyrir 6 húsum, en þó eru þær lægri
en þær vestari, og hygg jeg þær yngri. Þær eru 38 fet á lengd, 24
f. á br., snúa austur og vestur, og skift með vegg að endilöngu, sbr.
1. mynd.
Dyr Dyr
(1. mynd) §
Suður og austur við Iækinn, miðað frá síðastnefndum tóftum, er
lítið tóftarbrot, orðið óglögt og eflaust afarfornt — um 20 fet í þvermál.
Þar myndast ofurlítið nes við lækinn og vottar ógreinilega fyrir garði
bogamynduðum og liggja endarnir að læknum beggja megin við
tóftarbrotið. Bletturinn er þur að mestu og vall-lendiskendur. Þetta
er norðan við lækinn. En sunnan við lækinn, hjer um bil 40 föðm-
um austar er lítið húsabrot, um 42 fet á lengd og 12 á breidd, sjá 2. mynd,