Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Árgangur

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1925, Blaðsíða 10

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1925, Blaðsíða 10
1 10 ákvæðið í II. 356, er vitnað var til í upphafi þessarar greinar. Segir þar, að á fjórðungaþingum eigi fjórðungsmenn allir saman sóknír, en að undir vorþing heyri þau mál, þar sem aðilar (o: sóknaraðilar) séu allir samþinga og svo þeir menn allir, er fyrir sökum eru hafðir1). . Verði nú sýnt fram á það, að mál sé rekið t. d. á Þórsnesþingi, en bæði varnaraðili og sóknar þingfastir í öðrum þingum í Vestfirðinga- fjórðungi þá eru þar fengnar líkur fyrir því, að átt sé við fjórðungs- þingið í Þórsnesi. Fjórðungsþing Austfirðinga var í Lóni, segir kirknatalið2). Er hér efalaust átt við bygðarlagið Lón í Austur Skaptafellssýslu. Hvergi er annarsstaðar, svo kunnugt sé, sagt frá þinghaldi eða þingstað í Lóni, og hvergi er annarsstaðar berum orðum sagt, hvar fjórðungs- þing Austfirðinga hafi verið háð. En getgátur hafa komið fram um það. Þess hefir þannig verið getið til, að það hafi í fyrstu verið háð í Sunnudal í Vopnafirði, en flutt síðar undir Kiðjafell3). Síra Jón Jónsson á Stafafelli gat þess einnig til, að Kiðjafellsþing hefði verið fjórðungsþing. Taldi hann þann þingstað hentugastan fyrir fjórðungs- þing af öllum þingstöðum í Fljótsdalshéraði, þó hann lægi langt upp til fjalla, því hann hafi legið best við fyrir Álftfirðinga og Skaptfellinga4). Það er næsta ólíklegt, að Sunnudalsþing hafi nokkurn tíma verið fjórðungsþing. Þingstaðurinn hefði legið mjög illa fyrir fjórðungsmenn, ^ því nær á fjórðungsenda, og þær sagnir, sem af Sunnudalsþingi ganga, gefa enga átyllu til að ætla, að það hafi verið fjórðungsþing. Hafi Kiðjafellsþing verið háð, eins og hefir verið talið, innst í suðurdal Fljótsdals, þá er það rétt, að sá þingstaður virðist vera heppilegastur til fjórðungsþinghalds af öllum þingstöðum í Fljótsdals- héraði. Skaptfellingar og Álftfirðingar hafa átt tiltölulega stutta fjall- vegi þangað að sækja. En hinsvegar er mikil óvissa á um þetta þing, svo mikil, að Maurer taldi, að engin söguleg rök væru fyrir þvi, að það hefði verið háð, og væri það »als apokryph zu streichen«5) Fljótsdæla ein getur um þennan þingstað, og aðeins á tveim stöðum. Á fyrra staðnum segir frá því, að Ásbjörn á Aðalbóli stefndi Ölviði á Oddstöð- um »til vorþings til Kiðjafells, — þessi þingstöð er á hálsinum milli Skriðudals ok Fljótsdals«6). Á síðari staðnum er þings þessa getið í sam- 1) Sbr. upi þetta efni Finsen: Inst. bls. 43, Maurer: Vorl. iiber Altn. Rechts- gesch: IV. bls. 423—424, V. bls. 408. 2) DI. XII bls. 5, Kálund II. bls. 484. 3) Kristján Jónsson í Árb. fornl.fél. 1924 bls. 35—36. Á móti því Matthías i Þórðarson 1. c. 4) Timarit bókm.fél. V. bls. 245. 5) Vorl. iiber Altn. Rechtsgesch. V. bls. 329. 6) Fljótsdæla íitg. Kálunds Kbh. 1883 bls. 6.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.