Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1925, Qupperneq 12
veg til Þingmúlaþings, úr Berufirði upp í Skriðdal. Þingmannaups
sýnist aptur á móti ekki vera á þeirri leið, og Sunnanmenn, er til
Þingmúlaþings sóttu, geta ekki hafa átt leið um Þingmannaklif í Fljóts-
dal. Það er of mjög úr leið til þess. Það örnefni hlýtur að eiga
við einhverja aðra þingleið. Sé þeirri skýringu hafnað, að Kiðjafells-
þing hafi verið háð frammi í Suðurdalnum, þá gæti varla verið um
annað þing að ræða, en fjórðungsþingið í Lóni, er þetta örnefni væri
kent við. Héraðsmenn hefðu þá farið til þess þings fram úr Fljóts-
dal, annað hvort Öxarhraun niður í Berufjörð, er Njála getur að
Flosi hafi farið1), eða ef til vill einhverja fjallvegi beint niður í Lón.
Um þinghald í Lóni er annars hvergi getið, nema í kirknatalinu.
Fjórðungsþinginu hefði verið vel í sveit komið þar, nálægt fjórðungnum
miðjum, og jafnhægt að sækja þangað fyrir Austfirðinga og Skaptfellinga.
Eru og örnefni þar í sveit, eða hafa verið, er til þinghalds gætu bent.
í kaupbréfi fyrir Hvalnesií Lónifrá 1475, er þess getið, að jörðin eigiskóg-
arhögg »undir þijngmannabrekku i vijkur jördu«2). í jarðabók ísleifs
sýslumanns Einarssonar frá 1703 er þessa sama ítaks getið, en brekkan
þar nefnd Þingbrekka3). Það væri þá í landi jarðarinnar Vík í Lóni,
sem þingstaðarins ef til vill væri að leita, og væri æskilegt, að stað-
hættir og örnefni þar eystra væru rannsökuð nánara um þessi efni.
Fjórðungsþing Sunnlendinga segja sum handrit kirknatalsins að
hafi verið háð undir Ármannsfelli, önnur undir Mosfelli4). Fyrri les-
hátturinn er efalaust réttari. Handritin geta þingsins öll næst á eptir
því að þau geta um kirkjuna á Þingvelli og alþingishaldið þar. Þau
geta og um kirkjurnar á Mosfelli í Mosfellssveit og Mosfelli í Gríms-
nesi, en geta einskis þings i sambandi við þá staði, sem þó hefði
verið eðlilegast, ef fjórðungsþingið hefði verið haldið á öðrum hvorum
þeirra staða. Um þinghald undir Ármannsfelli er getið á einum stað
öðrum í fornum ritum, í Hænsa-Þórissögu5). Þar er talið, að alþingi
hafi verið haldið þar. Rakti ég afstöðu kirknatalsins og sögunnar hvors
til annars allítarlega í Skírnisgrein minni, er áður var getið, bls. 18
—21. Get ég hér vísað til þess, er þar er sagt. Þar er sýnt fram á,
að þessi staður er innskot í sögunni, að frá þinginu er sagt einmitt
í sambandi við setningu fjórðungaþinganna, og að það muni vera af
mistökum afritarans sprottið, er hann lætur alþingi hafa verið háð á
þessum stað. Jafnframt er sýnt fram á það, að sagan verður best
1) Úlg. Finns Jónssonar Halle 1908 134, 31 bls. 323.
2) DI. V. 709.
3) Blanda I. bls. 14.
4) DI. XII bls. 8, Kálund II. bls. 387,
5) Bls. 20—21,