Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1925, Page 16

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1925, Page 16
16 Þess má enn geta, að málssókn Bolla Bollasonar á Hegranesþingi á hendur Þórólfi stærimanni1) kemur ekki þessu eíni við. Bolli er utanfjórðungsmaður. Það mun vera eina dæmi þess í sögunum, að maður höfði mál á héraðsþingi utan fjórðungs síns. Annað dæmið, og hið fjórða af þeim, sem hér hafa verið talin, sýnast ótvírætt benda til þess, að fjórðungsþing Norðlendinga hafi verið háð í Hegranesi. Er það sérstaklega eptirtektarvert, að fjórða dæmið, eptirmál Koðráns frá Möðruvöllum, gerist ekki fyr en um miðja 11. öld. Frá Vaðlaþingi er aðeins ein sögn, er ef til vill gæti bent til þess, að þar hafi fjórðungsþing verið. Guðmundur ríki tók mál á hendur Vöðu-Brandi af Þorbirni á Reykjum, þingmanni sínum, »ok bjó til várþings«. Þegar málsefnið gerðist var Brandur með föður sínum, Þorkeli bónda á Mýri, en var orðinn heimamaður Þorkels Geitissonar í Krossavík þegar málsóknin hófst. Um þingfesti Þorkels á Mýri segir ekki, en vera mætti, að hann hafi verið í Vaðlaþingi, jafnvel í þingi með Guðmundi sjálfum, er átti þingmenn norður í Reykjahverfi. Mætti ætla, að Guðmundur hefði bygt málsóknina á þessu, talið Brand heimamann föður síns og því þingfastan í Vaðlaþingi. En það var lögleysa að höfða mál þetta á Vaðlaþingi, hvort sem það var vor- þing eða fjórðungsþing, því Brandur var þingfastur í Austfirðingafjórð- ungi. Þorkell Geitisson hygst því að verja málið og segir að vera kunni, að Guðmundur hafi eigi það hugað, að Brandur »er eigi þar í fjórðungi«. Á þinginu sækir Guðmundur málið »í Norðlendingadóm« en Þorkell eyddi málinu. Stefndi hvor öðrum síðan til alþingis, Guð- mundur Þorkeli um þingsafglöpun, en Þorkell Guðmundi um rangan málatilbúnað2). Það, er bent getur til fjórðungsþinghalds í þessari sögu, eru orð Þorkels, uin að Brandur sé eigi þar í fjórðungi, og það, að Guðmundur stefndi málinu í Norðlendingadóm. En þó er hæpið að byggja mikið á því. Fyrra atriðið gæti samrýmst því, að hér væri um vorþing að ræða, en uin síðara atriðið er þess að geta, að þar er glundroði allmikill í handritunum. Segja sum handrit jafnvel, að málið væri sótt i Austfirðingadóm. Er því vant að vita, hvað á þessu má byggja. Þrátt fyrir þetta eina dæmi virðast mér því engar líkur fyr- ir því, að fjórðungsþing Norðlendinga hafi verið háð annars staðar en í Hegranesi. Með því, sem sagt hefir verið hér að framan, vona ég að mér hafi tekist að færa nokkrar líkur fyrir því, að fjórðungaþingin hafi 1) Laxdæla útg. Kálunds Halle 1896. LXXXI 1, 2, 4, bls. 238—239. 2) Isl. fornsögur I. bls. 145—149.

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.