Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1925, Qupperneq 20
20
hafi verið býli í fyrndinni einhverntíma. — Hinar nyrðri eru um 400
skref fyrir sunnan tóftirnar í Herjólfsdal. Eru þar 2 litlar kofatóftir
samfastar. Hin vestari er um 21/a st. að breidd og 3lh að lengd;
eru dyr á suðurhlið austast. í þessum kofa hefur v'erið búið mjög
lengi, gólfskán er um 73 st. að þykt, en
ofan á henni önnur yngri, þunn, og um
5—10 cm. þykt sandlag í milli; virðist
sandurinn einkum hafa fokið innum dyrn-
ar. — Hin eystri er yngri að sjá. Hún
virðist hafa verið um 4 st. að breidd og
um 472 að lengd að innanmáli, en nú
sjást engar leifar af suðurhliðvegg, nema
vestast, og örlitlar af austurendanum.
Dyr hafa verið norður úr norðvesturhorni,
við millivegginn milli kofanna. Hann
er um 2 st. að þykt og er vindauga eða
smuga í gegn um hann sunnantil við
miðju; það er V2 st. að hæð og 0,30
að breidd. Um D/2—2 st. frá milliveggn-
um gengur lítill grjótbálkur inn frá
norðurveggnum í eystri tóftinni; hann
er að mestu leyti þunngerður^mjög, að
eins einföld
röð af hell-
um, sem hafa
verið reistar
á rönd og
erum 7<—V2
st. að hæð.
Gengt virð-
ist hafaverið
fyrir suður-
enda hans. Að líkindum hefur hann verið gerður til varnar gegn því
að glóðir hrykkju úr eystri enda hússins í hinn vestari; en við aust-
urgafl miðjan hefur eldur verið kyntur á hellunum á gólfinu; er það
eldstæði um 3/r st. að þvermáli; 2 steinar eru á gólfinu fyrir framan
það. í báðum þessum kofatóftum var mikið af beinabrotum, bæði
úr nautkindum og sauðkindum, og sel, hval og fiskum. Lítill ferstrend-
ur heinarbútur fanst í eystri tóftinni, og lítill járnmoli; járnleifar,
gagnteknar af ryði, fundust og í vestari tóftinni. — Ætla má að hús
þessi hafi verið verbúðir inanna, er útræði hafa haft vestur á eynni.
Tóftirnar í Herjólfsdal.
a. ógrafið. b. grafið að grjóti.