Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Árgangur

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1925, Síða 29

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1925, Síða 29
27 helst meðan strjálbygt var, litlar samgöngur og lítt kunnar bygðir landsins, hafi eðlilega verið hugsað meira út í frá um héruðin en bæina, og því orðið venja og látið nægja: Kollur í Dölum eða Dala-Kollur, og Örn úr Arnarfirði — þó hann byggi þar í Tjaldanesi. Að þessu athuguðu, virðist mér ekki ólíklegt, að telja mætti alt að 50 af þessum ónefndu bæjum, gegn nöfnum bæja með einkaheit- um og viðurnefnum landn.manna sjálfra. Verða þá nafngjafahlutföll helstu lnm. um alt land í þessu lauslega yfirliti ekki fjærri 5:2. — Tveir bæir kendir við lnm., móti 5, er við annað eru kendir. Þessi hlutföll mundu þó enn breytast og jafnast nokkuð, ef allir leysingjar og synir lnm. m. fl. væru teknir með í reikninginn. Af þessu yfirliti sést það, að mannkend nöfn bæja og bújarða hér á landi byrja með lausn og landnámi leysingja og þræla: Duf- þaksholt, Vífilsstaðir, Grísartunga, Hundadalur, Kjaransvík. — Sbr. líka örnefni þræla Hjörleifs í Vestmanneyjum, og þræla Ketils gufu. — Aðrir kendu nöfnin við þá. Þessi örnefni eru með þeim elstu hér á landi. Af vestrænni rót eru þau runnin að vonum, eins og þræl- arnir, sem flestir voru teknir á vesturlöndum. Og frá írlandi flestir þeir, sem höfðingbornir voru. Vera kann að lnm. hafi gefið býlum nöfn um leið og þeir gáfu leysingjum lönd. En varla hafa þeir skamtað nöfn sonum sínum eða meiri háttar vildarvinum. Dæmi: Af 5 sonum Ketils hængs, sýnist engin bújörð þeirra vera kend við þá í fyrstu, Hrafntættur eru fyrsti fæðingarstaður, sem þekkist á ísl.; en ekki bjó Hrafn þar, heldur á Hofi, eftir föður sinn. Stórólfur Hængss. »bjó at Hvoli«, og er óvíst hvort nafni Stór- ólfs hefur verið bætt framan við bæjarnafnið fyr en eftir hans daga eða þá er Efri- Hvoll bygðist — til aðgreiningar. Um þessa tvo bú- staði finst enginn vafi neinstaðar. Aftur er nokkur vafi og missagn- ir um bústaði hinna bræðranna þriggja. Egils-saga segir (alþ. útg. 57) að þeir hafi allir búið í hvirfing um Stórólf í Hvol- hreppnum. Herjólfur undir Brekku í Fljótshlíð (talið svo þar), Helgi á Velli og Vestarr á Móeiðarhvoli. — Það er líklegt að V. hafi búið á M. því bæði átti hann Móeiði Hildisdóttur, sem bærinn mun kendur við, og hann var nokkuð langt frá Stórólfi. Móeiður var líka vestræn, og verið gæti að hún hefði búið þar eftir hann. Landnáma nefnir ekki bústað Helga. Hún segir líka nokkuð öðru- vísi frá bústað hinna bræðranna tveggja, og verður að meta þá heim- ild meira.1) Þar fá kunnugir varla um það vilst, að »undir Brekkum« 1) Hjer færi slíkur samanburður of langt frá efninu. En gera mætti hann yið athugun bújarða fremur en örnefna.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.