Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1925, Side 35
33
Og komst hún í hendur þeirrar nefndar, sem verðlaunar sögufræðls-
leg rit af gjafasjóði Jóns Sigurðssonar, og yfirfór hún ritgerðina.
Þegar jeg sendi ritgerðina, hafði jeg enga hugmynd um tilgátu
hr. H. Þ. um Ævarsskarð, þvi fyrst á miðju ári 1923 barst mjer í
hendur ritgerð hr. H. Þ. í Árbók Fornl. fjel. og sá þar fyrst, að hann
hafði komist þar að sömu niðurstöðu og jeg í þessu atriði; þótti mjer
þetta merkilegt og góður fengur, þótt fullnaðarástæður vantaði.1)
Tilgátu sína hefur og hr. H. Þ. styrkt betur í greininni Kvittun til dr.
Finns Jónssonar, eins og áður er sagt. Hef jeg þá gert grein fyrir
hverjir ritað hafa um deilunafn þetta í rannsóknarskyni. Skal jeg þá
næst rekja aðrar tilgátur um nafn þetta, þótt gamlar sjeu og ekki
með vísindalegu sniði. Húnvetningar hafa ekki alveg gleymt nafninu
Ævarsskarð, þótt staðurinn týndist. Sigmundur Helgason í Köldu-
kinn á Ásum (d. 1723) orti rímur af Sigurði Þögla og segir í síðustu
rímunni:
Endaði fræði að Evarsskarði
öðru nafni Strjúgsstaðir
Hr. H. Þ. bendir rjettilega á, að þetta sje auðvitað rangt (Árb. F. 1923
bls. 65 n. m.), því að Þorbjörn strúgr, launsonur Ævars, bjó á Strúgs-
stöðum og tekur Landn. það skýrt fram. Einnig getur hr. H. Þ. þess
á sama stað, að í »dálitlu ættartölubroti úr Húnavatnssýslu standi í
svigum við Bólstaðarhlíð: »Ævars forna garði«. »En vafalaust er það
að eins getgáta ritarans«, bætir hann við. Það hygg jeg þurfi ekki
að vera, því ýmsir Húnvetningar álíta enn að Ævarsskarð hafi verið
þar sem Bólstaðarhlíð er nú. Getur ritarinn hafa farið eftir almennu
áliti í Hlíðarhreppi.
Það er og mörgum orðið kunnugt, að í nafnaskránni við Land-
námuútgáfu dr. Finns Jónssonar er Ævarsskarð talið að vera, þar
sem Stóra-Vatnsskarð er og þar er og talinn bær með sama nafni.
En þetta hefur ekki stuðning í öðru en bláberum misskilningi. Hvorki
skarð eða bær með þessu nafni hefur verið til á þessum slóðum, fyr
eða síðar og óþarft að blanda því frekar inn í mál þetta. Skarðið
hefur frá öndverðu heitið Vatnsskarð eins og Ldn., Sturl., ísl. fornbr.s.
og aðrar frumheimildir sýna. En þegar Litla-Vatnsskarðs-nafninu skaut
upp, bættu menn Stóra- við til aðgreiningar hinu.
Mjer virðist nú rjett, áður en lengra er rent í þessu efni, að
íhuga nokkru nánar hvert hald sje í því áliti, gömlu og nýju, að
Ævarr hinn gamli hafi búið í Bólstaðarhlíð.
1) Ritgerðin heitir: »Rannsókn og leiðrjettingar á nokkrum bæjanöfnum
á Islandi« og í form. getur höf. þess að greinin sje samin vorið 1921 og birt
«að mestu leyti óbreytt« 1923.
5