Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Árgangur

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1925, Síða 58

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1925, Síða 58
56 leg«. Þetta kemur vel heim við það, sem Kálund hefir tekið fram í sögustaðalýsing sinni (IB. II, 6), að ekki sje getið um í gömlu jarðabókunum neitt eyðibýli Hof á þessum stað, en sjerstaklega er athugavert það sem Jón Ólafsson frá Grunnavík segir í ritgerð sinni um hauga og fleiri fornleifar, ritgerð sem hann setti saman 1753: »Hofið í Miðfirði. — Til hofsins sjást enn lítil merki á Steins- stöðum. — Þeir eru milli Mels og Sanda. — Mig minnir það snúi milli austurs og vesturs, og hafi dyrnar verið á annari Ianghliðinni miðri og horft á móti suðri«. — Eins og sjá má hjer af grein Jósafats S. Hjaltalíns er þessi rúst, sem hjer er nú, rjett fyrir utan Steinsstaða- túnið. — Jón var vel kunnugur á þessum slóðum, dvaldi oftar en einu sinni á Söndum hjá frændfólki sínu, síðast þrem árum áður en hann samdi ritgerðina um haugana. — Bærinn Hof, sá sem nú sjest tóft eftir, hefur verið bygður eftir miðja 18. öld, en hann hefur lík- lega staðið einungis skamma hríð. — Orðalag Eggerts Ólafssonar í ferðabók hans (bls. 736), þar sem hann getur um hoftóftina, bendir til að þegar hann fór þarna um, 1755, hafi þar verið bær, sem hafi heitið Hof (í Miðfirði). Enginn þeirra er geta um rústina þarna minnist á neina bæjar- rúst þar frá fornöld eða að þarna hafi verið í fornöld bær. Hins vegar er ekki ólíklegt að svo hafi verið og tilgáta Jósafats S. Hjaltalíns getur verið rjett, að Skinna-Björn hafi búið þarna, reist fyrstur hofið og átt það og goðorðið um sína daga, og síðan Miðfjarðar-Skeggi, sonur hans, eftir hann. Eftir að jeg hafði látið þessar athugasemdir í ljós við höfund- inn (J. S. Hjaltalín) skoðaði hann tóftirnar að »Hofi í Miðfirði« og skrifar (25. ág. 1926) að hann sje ekki í minsta vafa um að Hof sie fornbýli. »Það eru túngarðsleifarnar, sem enn sjást merki til, og önnur forn garðlög þar, — sem jeg veit ekki hvað hafa verið —, sem mjer sýnast sanna það«, skrifar hann. Enn fremur kveðst hann hafa átt tal við nokkra kunnuga menn um þetta efni og að þeir hafi sagt, að þessi staður hafi, það þeir til vissu, alt af verið kallaður á Hofi og engan heyrt efast um, að það væri fornbýli. Hann álítur að bærinn, sem var bygður þarna á 18. öldinni, hafi verið settur ofan í hinar fornu bæjarrústir og gripahús ofan í hofsrústina. Höf. telur það villu hjá Jóni Ólafssyni frá Grunnavík, að hofið hafi verið á Steinsstöðum; telur þetta stafa af ókunnugleika og Jón hafi slengt býlunum saman í eitt vegna nálægðar þeirra. — Aðgæt- andi er, að ekki mun hafa verið býli á »Hofinu« er Jón sá það, en hofrústin skamt frá Steinsstöðum. — »Nýbýlið Barð er bygt á Steins- stöðum«, skrifar höf. að endingu. M. Þ.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.