Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1977, Qupperneq 3
mannamyndir sigurðar málara
9
og fylgdi syrpu af bréfum, minnisbókum, teikningum o.fl. sem allt
var í kofforti Sigurðar sem sr. Pétur í Grímsey, bróðir hans, gaf
safninu árið 1885.9)
Á námsárunum í Kaupmannahöfn 1849—1858 lærði Sigurður að
fara með olíuliti eins og áður er getið, en gerði aldrei nema fá
olíumálverk af mönnum og næstum öll á því tímabili. En meðal
þeirra eru veigamestu mannamyndir hans, svo sem málverkin af
Arnljóti Ólafssyni, Jóni Aðalsteini Sveinssyni, Steingrími skáldi og
sjálfsmyndin. Allur þorrinn af mannamyndum Sigurðar eru blýants-
teikningar. Þó að þær séu hér nefndar svo notar hann oft auk blý-
antsins svart teikniblek (tusch) og hvítan lit til að skerpa andstæð-
ur Ijóss og skugga. Myndapappírinn er nú oft blakkur af elli, en
stundum virðist sem hann hafi verið móleitur frá upphafi. Getur
verið erfitt að greina hvort heldur er.
Sigurður kom heim til Islands snemmsumars 1856 og steig af
skipsfjöl á Akureyri. Það sumar ferðaðist hann um mikinn hluta
Norðurlands og teiknaði þá myndir af mörgum mönnum, að sögn
til að hafa ofan af fyrir sér í ferðinni.10)
Vorið 1858 fór Sigurður svo alfarinn frá Kaupmannahöfn. Þá um
sumarið ferðaðist hann um Vesturland, einkum Breiðafjarðarbyggð-
ir, og gerði allmargar mannamyndir, þar af tvö olíumálverk.
Haustið 1858 settist Sigurður að í Reykjavík og átti þar heima
upp frá því til dauðadags 7. sept. 1874. Reyndar er talið að það hafi
verið ætlun hans að fara aftur utan haustið 1858 og halda áfram
listnámi, en óvænt atvik eru sögð hafa valdið því að það áform fór
út um þúfur.11) Fyrstu árin eftir að hann var sestur hér að gerir hann
margar mannamyndir, en Helgi E. Helgesen gefur í skyn að hann
hafi fljótlega orðið leiður á þeirri iðju,12) enda eru örfáar mynd-
anna gerðar eftir 1860.
Elstu mannamyndir Sigurðar sem tímasettar verða, eru frá 1848,
gerðar heima í Skagafirði árinu áður en hann fer utan til náms, en
sú síðasta sem kunnugt er um er frá árinu 1867. Spannar manna-
myndagerð hans þannig yfir nærri tvo áratugi.
Eftirfarandi skrá tekur nær eingöngu til mynda af nafngreind-
um íslendingum, en þó er sleppt myndum af persónum úr fornsögum.
Myndunum er raðað í stafrófsröð eftir nöfnum. I skránni eru tald-
ar 97 mannamyndir sem full vissa eða sterkar líkur eru fyrir að séu
eftir Sigurð, auk 5 annarra sem meiri vafi er um. Af þeim eru 78
varðveittar, þar af 63 á söfnum, en 15 í einkaeign. Þjóðminjasafn
Islands á nú alls 59 af þessum myndum. Þessar tölur benda til að