Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1977, Síða 45
MANNAMYNDIR SIGURÐAR MÁLARA
51
systur sinnar. En til öryggis er vert að athuga málið betur. Blýants-
athugasemdin stafar sennilega af því að sá sem hana gerði hefur
ekki kannast við neina Sigríði, dóttur Arnljóts og Ingibjargar, heldur
aðeins Jóhönnu. En báðar voru reyndar til.
Áður en Arnljótur Ólafsson kvæntist átti hann tvær dætur óskil-
getnar, Sigríði, f. 17. júlí 18603) og Jóhönnu Hendriku, f. 14. okt.
1862,4) síðar frú í Kaupmannahöfn, g. Nielsen (sbr. grein nr. 3 hér
að framan). Móðir þeirra beggja var Ingibjörg Einarsdóttir Jónas-
sen, f. 1833, d. 1917. Hún giftist seinna Vigfúsi Guðnasyni, sem var
um tíma dyravörður Lærða skólans, en Einar bakari, gefandi mynd-
arinnar, var sonur þeirra. Vegna fyrri barneignarinnar fékk Arn-
ljótur uppreisn áður en honum var veitt Bægisárprestakall 1863.5)
Þá hafði hann enn ekki gengist við Jóhönnu, en gerði það síðar, eða
11. sept. 1867. Þau ummæli safnskrárinnar að myndin sé ein af „allra
fyrstu myndum“ Sigurðar eftir heimkomuna geta ekki verið bókstaf-
lega rétt, þar sem Sigríður er ekki fædd fyrr en nær tveimur árum eft-
ir heimkomu Sigurðar. Ummælin gætu þó enn síður átt við Jóhönnu
sem er meir en tveim árum yngri.
1 manntalinu frá 1. okt. 1860 sést að þá búa í Austurstræti 1 í
Beykjavík meðal annarra hjónin Jónas Hendrik Einarsson Jónassen
og kona hans Kristjana Jóhannesdóttir, bæði 31 árs, Sigríður Arn-
ljótsdóttir 1 árs, kölluð uppeldisbarn þeirra (Jónas er bersýnilega
móðurbróðir hennar), og síðast en ekki síst er talinn þar meðal íbúa
hússins Sigurður Guðmundsson málari, 29 ára.G)
Allt þetta rennir stoðum undir að myndin sé — eins og hún er upp-
haflega skráð — af Sigríði (eldri) Arnlj ótsdóttur, en ekki Jóhönnu
alsystur hennar. Sigríður dó 3ja ára að aldri 4. nóv. 1863.7)
B Jón Auðuns, op. cit., bls. 86. 2) Óprentuð skrá Mannamyndasafns. 3) Ministeri-
albók Reykjavíkurdómkirkjukall 1839—1860, bls. 353, Þjskjs. 4) Ministerialbók
fyrir Reykjavíkurdómkirkjuprestakall um árin 1861—1880, bls. 25, Þjskjs. 5)
Stjórnarbréf til biskups 1859—1873, Þjskjs. Bps. C, V, 10, bréf dags. 8. júní
°g 18. júlí 1863. °) Svo í manntalinu, en í rauninni var Sigurður þá ekki nema
27 ára, f. 9. mars 1833. 7) Ministerialbók fyrir Reykjavíkurdómkirkjuprestakall
um árin 1861—1880, bls. 369.
79 Sigurður Guðmundsson (1833—1874) málari. Olíumálverk, 65.8 X
55 cm. Áritun engin. Sjálfsmynd þessi var gerð á námsárum Sigurð-
ar í Kaupmannahöfn. I æviágripum Helga E. Helgesen og Páls Briem
segir að hún hafi verið á sýningu í Kaupmannahöfn og hlotið mikið
lof-1) I uppskrift á eftirlátnum munum Sigurðar2) er þessi mynd